Fréttablaðið - 22.09.2014, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 22.09.2014, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 22. september 2014 | SKOÐUN | 15 Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta. Margir hafa átt um sárt að binda af völdum Hrunsins. Fólk missti vinnu, hús, sparifé, missti tilveru sína. Og ekki eru öll kurl komin til grafar með þau áhrif sem Hrunið hafði í raun og veru á Íslendinga og sjálfs- mynd þeirra. Sögurnar eru óteljandi. Fólk stíg- ur fram á opinberan vettvang og segir farir sínar ekki sléttar, deil- ir því með okkur þegar það hefur verið órétti beitt og leitast við að virkja vandlætingu okkar og sam- líðan sem afl til þess að ná rétti sínum eða að minnsta kosti fá stuðn- ing í sínum raunum. Öflugt almenn- ingsálit er mikilvæg auðlind sem margir reyna að snúa sér í vil. Og sífellt bætast við nýjar sögur – stundum úr óvæntum áttum. Þrír karlmenn hafa nú nýlega komið fram og harmað hlutinn sinn opin- berlega, sagt frá því ranglæti sem þeir telja sig hafa orðið fyrir og reynt að fá okkur til að fyllast hneykslun með sér. Hér er þó ekki um að ræða menn sem eiga um sárt að binda vegna óspilunarsemi bank- anna og útrásarvíkinganna. Þetta eru fyrrum lögreglumaður, sem kemur nú á ný fram með tveggja ára gömul klögumál sín um sérstakan saksóknara; húseigandi í miðbæn- um sem fær ekki að rífa gömul hús sem hann hefur komist yfir og svo nú síðast maður sem ekki á þess kost lengur að reka einkaskóla sem virðist hafa verið afar arðbær. Píslarvottar Lögreglumaðurinn seldi þrota- búi Milestone aðgang að því sem hann hafði komist á snoðir um sem starfsmaður sérstaks saksóknara og stefndi þar með í voða dóms- máli á hendur fyrrum eigendum þess fyrirtækis. Sérstakur sak- sóknari kærði manninn en hafði ekki erindi sem erfiði. Síðan hefur þessi lögreglumaður gert allt sem í hans valdi hefur staðið til að draga úr trúverðugleika saksóknara – við mikinn fögnuð þeirra sem til rannsóknar hafa verið hjá sérstök- um saksóknara fyrir fjármálaums- vif sín í aðdraganda Hrunsins. Nú kann eitthvað að vera rétt í frá- sögn lögreglumannsins þó að rík- issaksóknari hafi á sínum tíma ekki séð ástæðu til að gera neitt sérstaklega með ásakanir hans – og vissulega á sérhver maður rétt á réttlátri og sanngjarnri máls- ferðferð. Þetta breytir samt engu um gjörðir þeirra sem til rann- sóknar eru, og hin eiginlegu mál eiga að snúast um. Og mikilvægt er að dómstólar leiði þau mál til lykta, með sýknun eða sakfell- ingu, fyrir samfélagið sem varð fyrir búsifjum en ekki síður þá menn sem þurft hafa að bíða árum saman eftir því að þessi mál komi til dóms, og hver manneskja getur séð að er þungbær bið. Um svipað leyti „steig fram“ og sagði sögu sína húseigandi sem á fallegt hús á Vegamótastíg, sem margir vildu áreiðanlega eiga þess kost að fá að gera upp og koma í íbúðarhæft ástand til að eiga þar fallega tilveru í sátt við umhverfi sitt. Í viðtali í Fréttablaðinu útmál- aði þessi maður það átakanlega hversu þungbært væri fyrir sig að þurfa að eiga þetta hús, sem hann fái ekki að rífa þrátt fyrir að hafa um árabil gert sitt besta til þess að láta það grotna niður, og sprakk meðal annars vatnslögn í því með tilheyrandi skemmdum. Þetta mál er hluti af þeirri grenjavæðingu miðbæjarins sem er einn ömurleg- asti fylgifiskur bóluáranna, þegar aðvífandi umsvifamenn keyptu á uppsprengdu verði gömul og indæl hús á eftirsóttum stöðum í miðbæ Reykjavíkur beinlínis í því skyni að fá að rífa þau – burtséð frá verndargildi þeirra eða sögu – svo að reisa mætti ný hús í staðinn með fullri nýtingu fermetranna. Þetta er dæmi um þá ónáttúru sem getur gripið vænsta fólk þegar gróðavonin er annars vegar: okkur er flestum eiginlegt, séum við svo lánsöm að eignast húseign, að reyna að prýða hana sem best, laga, dytta að, mála, skreyta og hlusta á það sem gamla húsið hefur að segja okkur, enda þurfum við að læra að hlusta á gömul hús eins og Þórbergur kenndi okkur, því að þar ómar niður aldanna. Sé um það samfélagsleg sátt að tilteknar húseignir eigi að fá að standa, sögu sinnar vegna eða útlits, er það ekki í verkahring einstaklinga – jafnvel þótt stöndugir séu – að breyta þeim ákvörðunum. Viðkvæmar persónuupplýsingar? Síðasta dæmið er af manni sem kom á fót einkaskóla sem starfar ekki lengur, en hefur kært Katr- ínu Jakobsdóttur fyrir að tilteknar upplýsingar um fjárhag og rekst- ur skólans skuli hafa komið fyrir almennings sjónir. Í augum þessa manns er það augljóslega sambæri- legt við lekamálið alræmda þegar upplýsingum og vangaveltum um rekkjunauta og faðernismál fólks var komið á framfæri við fjölmiðla til að réttlæta það að erlendum smælingja skyldi vísað úr landi. Þær upplýsingar sem skólastjór- anum finnast jafngilda slúðri um viðkvæmustu einkamál vegalausra manna eru meðal annars þær, að því er fram kemur á Facebook-síðu Jóns Trausta Reynissonar fyrrum aðstoðarritstjóra DV, að ríkisend- urskoðun hafi gert athugasemd- ir við rekstur skólans, meðal ann- ars vegna þess að skólastjórinn hafði tekið yfir 80 milljónir í arð og skuldaði ríkinu 192 milljónir króna vegna ofgreiddra styrkja frá árun- um 2003 til 2009 að mati ríkisend- urskoðunar. Hann hafði líka lánað 55% af eigin fé skólans til „tengdra aðila“. Þetta eru ekki viðkvæmar trúnaðarupplýsingar heldur snúast þær um meðferð opinberra fjár- muna, og eiga svo sannarlega erindi við allan almenning. Það er sjálfsagt að sýna fólki hlut- tekningu þegar það á við mótlæti að stríða. En lög og reglur verða samt fá að að hafa sinn gang. Og ranglæt- ið blasir kannski ekki beinlínis við venjulegum blaðalesendum í þess- um málum, og kann jafnvel að orka á suma eins og þegar gljáandi fal- legum bíl er lagt í stæði fyrir fatl- aða af fullfrískum einstaklingum. Slíkur bíll er af krökkunum kall- aður „vælubíllinn“. Vælubíll í vitlausu stæði Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Og ranglætið blasir kannski ekki beinlínis við venjulegum blaðales- endum í þessum málum, og kann jafnvel að orka á suma eins og þegar gljáandi fallegum bíl er lagt í stæði fyrir fatlaða af fullfrískum einstaklingum. Slíkur bíll er af krökkunum kallaður „vælubíllinn“. AF NETINU Fjaðurvigt í pulsumenningunni Mér finnst fátt betra en unnar kjötvörur og kóladrykkir. Pulsa og kók og hrossabjúgu og uppstúf eru í mesta upp- áhaldi. Sælgætisgrís er ég líka og neytandi áfengis og tóbaks, mismikið á hverjum tíma. Fell því illa að lýðheilsustefnu síðustu ríkisstjórnar og þess vegna greitt hærra hlutfall tekna minna í sameiginlega sjóði en gengur og gerist. Kvarta svo sem ekki undan því. http://pressan.is Brynjar Níelsson alþingismaður. Fjárlagafyrirvari Sjálfur forsætis- ráðherra og allir aðrir ráðherrar Framsóknar, ásamt öllum þing- mönnum flokksins gera formlegan fyrirvara við helsta stefnuplagg ríkisstjórnarinnar! Ríkisstjórnir hafa sprungið af minna tilefni enda er það einfald- lega þannig að ef ekki er nægur stuðningur við fjárlagafrumvarpið þá hefur ríkisstjórnin ekki stuðning meirihluta þingsins. http://blog.pressan.is/oddnyh/ Oddný Harðardóttir þingmaður. Vúdú-hagfræðin Nú er Sjálfstæðisflokk- urinn kominn til valda og formaðurinn Bjarni Benediktsson orðinn fjár- málaráðherra þjóðarinnar, sem fer með skattamál. Bjarni er sem sagt í stöðu til að setja vúdú-hagfræðina í framkvæmd: lækka skatta og láta ríkissjóð græða á galdrabrögðunum, án þess að nokkur finni fyrir neikvæðum afleiðingum neins staðar. En nú er annað uppi á teningnum. http://blog.pressan.is/stefano/ Stefán Ólafsson prófessor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.