Fréttablaðið - 22.09.2014, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 22. september 2014 | SKOÐUN | 15
Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi .
Sendu greinina þína á greinar@visir.is
og við komum henni á framfæri hið snarasta.
Margir hafa átt um sárt að binda af
völdum Hrunsins. Fólk missti vinnu,
hús, sparifé, missti tilveru sína. Og
ekki eru öll kurl komin til grafar
með þau áhrif sem Hrunið hafði í
raun og veru á Íslendinga og sjálfs-
mynd þeirra.
Sögurnar eru óteljandi. Fólk stíg-
ur fram á opinberan vettvang og
segir farir sínar ekki sléttar, deil-
ir því með okkur þegar það hefur
verið órétti beitt og leitast við að
virkja vandlætingu okkar og sam-
líðan sem afl til þess að ná rétti
sínum eða að minnsta kosti fá stuðn-
ing í sínum raunum. Öflugt almenn-
ingsálit er mikilvæg auðlind sem
margir reyna að snúa sér í vil.
Og sífellt bætast við nýjar sögur
– stundum úr óvæntum áttum. Þrír
karlmenn hafa nú nýlega komið
fram og harmað hlutinn sinn opin-
berlega, sagt frá því ranglæti sem
þeir telja sig hafa orðið fyrir og
reynt að fá okkur til að fyllast
hneykslun með sér. Hér er þó ekki
um að ræða menn sem eiga um sárt
að binda vegna óspilunarsemi bank-
anna og útrásarvíkinganna. Þetta
eru fyrrum lögreglumaður, sem
kemur nú á ný fram með tveggja ára
gömul klögumál sín um sérstakan
saksóknara; húseigandi í miðbæn-
um sem fær ekki að rífa gömul hús
sem hann hefur komist yfir og svo
nú síðast maður sem ekki á þess
kost lengur að reka einkaskóla sem
virðist hafa verið afar arðbær.
Píslarvottar
Lögreglumaðurinn seldi þrota-
búi Milestone aðgang að því sem
hann hafði komist á snoðir um sem
starfsmaður sérstaks saksóknara
og stefndi þar með í voða dóms-
máli á hendur fyrrum eigendum
þess fyrirtækis. Sérstakur sak-
sóknari kærði manninn en hafði
ekki erindi sem erfiði. Síðan hefur
þessi lögreglumaður gert allt sem í
hans valdi hefur staðið til að draga
úr trúverðugleika saksóknara –
við mikinn fögnuð þeirra sem til
rannsóknar hafa verið hjá sérstök-
um saksóknara fyrir fjármálaums-
vif sín í aðdraganda Hrunsins. Nú
kann eitthvað að vera rétt í frá-
sögn lögreglumannsins þó að rík-
issaksóknari hafi á sínum tíma
ekki séð ástæðu til að gera neitt
sérstaklega með ásakanir hans –
og vissulega á sérhver maður rétt
á réttlátri og sanngjarnri máls-
ferðferð. Þetta breytir samt engu
um gjörðir þeirra sem til rann-
sóknar eru, og hin eiginlegu mál
eiga að snúast um. Og mikilvægt
er að dómstólar leiði þau mál til
lykta, með sýknun eða sakfell-
ingu, fyrir samfélagið sem varð
fyrir búsifjum en ekki síður þá
menn sem þurft hafa að bíða árum
saman eftir því að þessi mál komi
til dóms, og hver manneskja getur
séð að er þungbær bið.
Um svipað leyti „steig fram“ og
sagði sögu sína húseigandi sem á
fallegt hús á Vegamótastíg, sem
margir vildu áreiðanlega eiga þess
kost að fá að gera upp og koma í
íbúðarhæft ástand til að eiga þar
fallega tilveru í sátt við umhverfi
sitt. Í viðtali í Fréttablaðinu útmál-
aði þessi maður það átakanlega
hversu þungbært væri fyrir sig að
þurfa að eiga þetta hús, sem hann
fái ekki að rífa þrátt fyrir að hafa
um árabil gert sitt besta til þess
að láta það grotna niður, og sprakk
meðal annars vatnslögn í því með
tilheyrandi skemmdum. Þetta mál
er hluti af þeirri grenjavæðingu
miðbæjarins sem er einn ömurleg-
asti fylgifiskur bóluáranna, þegar
aðvífandi umsvifamenn keyptu
á uppsprengdu verði gömul og
indæl hús á eftirsóttum stöðum í
miðbæ Reykjavíkur beinlínis í því
skyni að fá að rífa þau – burtséð
frá verndargildi þeirra eða sögu –
svo að reisa mætti ný hús í staðinn
með fullri nýtingu fermetranna.
Þetta er dæmi um þá ónáttúru
sem getur gripið vænsta fólk
þegar gróðavonin er annars vegar:
okkur er flestum eiginlegt, séum
við svo lánsöm að eignast húseign,
að reyna að prýða hana sem best,
laga, dytta að, mála, skreyta og
hlusta á það sem gamla húsið hefur
að segja okkur, enda þurfum við
að læra að hlusta á gömul hús eins
og Þórbergur kenndi okkur, því
að þar ómar niður aldanna. Sé um
það samfélagsleg sátt að tilteknar
húseignir eigi að fá að standa, sögu
sinnar vegna eða útlits, er það ekki
í verkahring einstaklinga – jafnvel
þótt stöndugir séu – að breyta þeim
ákvörðunum.
Viðkvæmar persónuupplýsingar?
Síðasta dæmið er af manni sem
kom á fót einkaskóla sem starfar
ekki lengur, en hefur kært Katr-
ínu Jakobsdóttur fyrir að tilteknar
upplýsingar um fjárhag og rekst-
ur skólans skuli hafa komið fyrir
almennings sjónir. Í augum þessa
manns er það augljóslega sambæri-
legt við lekamálið alræmda þegar
upplýsingum og vangaveltum um
rekkjunauta og faðernismál fólks
var komið á framfæri við fjölmiðla
til að réttlæta það að erlendum
smælingja skyldi vísað úr landi.
Þær upplýsingar sem skólastjór-
anum finnast jafngilda slúðri um
viðkvæmustu einkamál vegalausra
manna eru meðal annars þær, að
því er fram kemur á Facebook-síðu
Jóns Trausta Reynissonar fyrrum
aðstoðarritstjóra DV, að ríkisend-
urskoðun hafi gert athugasemd-
ir við rekstur skólans, meðal ann-
ars vegna þess að skólastjórinn
hafði tekið yfir 80 milljónir í arð og
skuldaði ríkinu 192 milljónir króna
vegna ofgreiddra styrkja frá árun-
um 2003 til 2009 að mati ríkisend-
urskoðunar. Hann hafði líka lánað
55% af eigin fé skólans til „tengdra
aðila“. Þetta eru ekki viðkvæmar
trúnaðarupplýsingar heldur snúast
þær um meðferð opinberra fjár-
muna, og eiga svo sannarlega erindi
við allan almenning.
Það er sjálfsagt að sýna fólki hlut-
tekningu þegar það á við mótlæti að
stríða. En lög og reglur verða samt
fá að að hafa sinn gang. Og ranglæt-
ið blasir kannski ekki beinlínis við
venjulegum blaðalesendum í þess-
um málum, og kann jafnvel að orka
á suma eins og þegar gljáandi fal-
legum bíl er lagt í stæði fyrir fatl-
aða af fullfrískum einstaklingum.
Slíkur bíll er af krökkunum kall-
aður „vælubíllinn“.
Vælubíll í
vitlausu stæði
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Og ranglætið blasir
kannski ekki beinlínis
við venjulegum blaðales-
endum í þessum málum,
og kann jafnvel að orka á
suma eins og þegar gljáandi
fallegum bíl er lagt í stæði
fyrir fatlaða af fullfrískum
einstaklingum. Slíkur bíll
er af krökkunum kallaður
„vælubíllinn“.
AF NETINU
Fjaðurvigt í
pulsumenningunni
Mér finnst fátt betra
en unnar kjötvörur og
kóladrykkir. Pulsa og
kók og hrossabjúgu og
uppstúf eru í mesta upp-
áhaldi. Sælgætisgrís er
ég líka og neytandi áfengis og tóbaks,
mismikið á hverjum tíma. Fell því illa
að lýðheilsustefnu síðustu ríkisstjórnar
og þess vegna greitt hærra hlutfall
tekna minna í sameiginlega sjóði en
gengur og gerist. Kvarta svo sem ekki
undan því.
http://pressan.is
Brynjar Níelsson alþingismaður.
Fjárlagafyrirvari
Sjálfur forsætis-
ráðherra og allir aðrir
ráðherrar Framsóknar,
ásamt öllum þing-
mönnum flokksins gera
formlegan fyrirvara við
helsta stefnuplagg ríkisstjórnarinnar!
Ríkisstjórnir hafa sprungið af
minna tilefni enda er það einfald-
lega þannig að ef ekki er nægur
stuðningur við fjárlagafrumvarpið
þá hefur ríkisstjórnin ekki stuðning
meirihluta þingsins.
http://blog.pressan.is/oddnyh/
Oddný Harðardóttir þingmaður.
Vúdú-hagfræðin
Nú er Sjálfstæðisflokk-
urinn kominn til valda
og formaðurinn Bjarni
Benediktsson orðinn fjár-
málaráðherra þjóðarinnar,
sem fer með skattamál.
Bjarni er sem sagt í stöðu til að
setja vúdú-hagfræðina í framkvæmd:
lækka skatta og láta ríkissjóð græða á
galdrabrögðunum, án þess að nokkur
finni fyrir neikvæðum afleiðingum
neins staðar. En nú er annað uppi á
teningnum.
http://blog.pressan.is/stefano/
Stefán Ólafsson prófessor.