Fréttablaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 24
FRÉTTABLAÐIÐ Spotify Streituráð Borghildur gefur ráð. Sólveig sneri blaðinu við. Sigga Dögg. Elma Stefanía viðtal. Fataskápurinn. Trend af pöllunum. Samfélagsmiðlar
2 • LÍFIÐ 3. OKTÓBER 2014
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Umsjón Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is
Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Valgarður GíslasonLífi ðwww.visir.is/lifid
M
arkmið eru góð til að
setja sér stefnu og
gera sér grein fyrir
því hvað maður vill,
það er því mikil-
vægt að markmiðin sem við setj-
um okkur hafi merkingu fyrir
okkur og séu virkilega það sem
við viljum í hjartans einlægni,“
segir Borghildur Sverrisdóttir en á
næstunni kemur út bók eftir hana
sem heitir Hamingjan eflir heils-
una og fjallar m.a. um mikilvægi
hamingjunnar og vellíðunar gagn-
vart heilsu. „Markmið geta hjálp-
að okkur að sækja það sem við vilj-
um í lífinu en aðeins ef það skiptir
okkur máli í raun og veru.“
Hún segir hamingjuna ekki
endilega liggja í því að ná mark-
miðunum sjálfum heldur því hug-
arfari sem við beitum og hvaða af-
stöðu við höfum til þeirra.
„Mörg markmið renna út í sand-
inn af því að afstaða okkar til
þeirra og leiðarinnar að mark-
miðinu er ekki okkur í hag. Til
að auka líkur á að við náum
þeim markmiðum sem við setj-
um okkur skiptir miklu máli
að efla með sér jákvæðni, það
þýðir annars vegar að æfa sig
í jákvæðri afstöðu til hlutanna,
eins og að sjá tækifæri í
stöðunni í staðinn fyrir
erfiðleika og veita litlum
árangri athygli í stað
þess að vilja sjá meiri
árangur,“ segir hún.
Það getur verið and-
lega krefjandi þegar
illa gengur að ná sett-
um markmiðum og til-
finningar eins og reiði,
kvíði, pirringur eða
hræðsla geta látið á sér
kræla. Borghildur segir
mikilvægt að leyfa þess-
um tilfinningum að koma
og reyna um leið að dæma
þær ekki. „Það er ekki hægt að
ætla sér að ná markmiði án þess
að þurfa að takast á við neikvæðar
tilfinningar, því stærri sem mark-
miðin eru, því fleiri og erfiðari
geta tilfinningarnarnar orðið. Það
er því gott að hafa í huga að þegar
við berjumst ekki gegn þeim og
látum þær ekki draga okkur niður
heldur eflum með okkur jákvæðni
fara hlutirnir að ganga betur,“
segir hún.
Borghildur vill frekar leggja
áherslu á það að fólk temji sér já-
kvætt hugarfar og með því víkka
sjóndeildarhringinn og auka sköp-
unargáfu. „Jákvæðni hjálpar
okkur að hugsa skýrar, meðtaka
meira og er talin auka líkur á því
að við vinnum okkur betur og fljót-
ar út úr erfiðum aðstæðum. Já-
kvæðni eykur sköpunargáfu okkar
og eykur þar með virkni til fram-
kvæmda sem aftur eykur ánægju
okkar og með fleiri ánægjustund-
um aukum við hamingju okkar til
framtíðar. Það mætti því segja að
ef við virkilega viljum ná mark-
miðum okkar þurfum við að huga
að því að efla með okkur jákvæðni
um leið með markvissum og með-
vituðum hætti,“ segir hún.
Annað sem hún telur vera mik-
ilvægan hlekk í því að ná árangri í
lífinu er að sýna sjálfum sér sam-
kennd og vinsemd. Það hefur ekk-
ert með sjálfsvorkunn né dekur að
gera heldur byggist það á því að
tala við sjálfan sig eins og maður
myndi gera við góðan vin.
„Við erum ótrúlega góð í að tala
okkur niður, ekki aðeins þegar illa
gengur heldur bara svona dagsdag-
lega,“ segir Borghildur.
Að lokum hvetur Borghildur les-
endur til þess að veita því athygli
næstu daga hvernig við tölum til
okkar sjálfra. Munu orðin bæta
líðan okkar? Myndum við tala
svona við okkar besta vin?
HEILSA MÖRG MARKMIÐ
VILJA RENNA ÚT Í SANDINN
Margir setja sér markmið í Meistaramánuði en til þess að ná þeim þarf að hafa jákvæða afstöðu til þeirra og temja
sér sjálfsvinsemd. Borghildur Sverrisdóttir er höfundur bókarinnar Hamingjan efl ir heilsuna sem kemur út síðar í
mánuðinum. Hún segir jákvætt hugarfar og sjálfsvinsemd vera lykilatriði í því að ná settu marki.
Lífið mælir með því að þú
hugsir jákvætt til sjálfs þín
og umhverfisins.
Allt byrjar og endar innra með þér.
Hugleiðslugúrúinn Andrew Johnson
er búinn að búa til hið fullkomna
snjallsímaforrit sem hjálpar þér við
að slaka á, bæta þankaganginn
og krydda hann með jákvæðum
hugsunum. Forritið var valið eitt af
þeim allra vinsælustu af starfsfólki
Apple-risans og ekki að ástæðu-
lausu. Forritið er bæði til fyrir iP-
hone og Android-síma.
LÍFIÐ MÆLIR MEÐ
… JÁKVÆÐRI
HUGSUN INN
Í HELGINA
Heilsuvísir er kominn á Spotify.
Þar finnurðu frábæra tónlist sem
hvetur þig áfram við íþróttaiðkun
eða slökunina og allt þar á milli.
Listi vikunnar er orkumikill og upp-
lagður fyrir útiskokkið.
1 DO IT AGAIN
RÖYKSOPP
& ROBIN VS.
MOBY MIX
2 SATISFY NERO
3 COME GET IT BAE
PHARRELL
WILLIAMS
4 CHANDELIER SIA
5 STAY HIGH – HABITS REMIX TOVE LO
6 A SKY FULL OF STARS COLDPLAY
7 PRAYER IN C – ROBIN SCHULZ REMIX
LILLY WOOD & THE PRICK
8 FIVE HOURS DEORRO
9 PARÍS NORÐURSINS PRINS PÓLÓ
10 ALL OF ME – TIESTO’S
BIRTHDAY TREAT-
MENT REMIX
JOHN LEGEND
á Spotify
Oft þegar álagið er mikið, finnst þér þú einangrast
með hugsanir þínar og vandamál.
Streituráð vikunnar
Deildu vandamálum þínum með öðrum.
Heilsuvísir
Borghildur Sverrisdóttir segir
hamingjuna ekki endilega
liggja í markmiðinu sjálfu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Deildu vandamálum
þínum með öðrum.
Þá færð þú skilning,
ráð og stuðning.
Og gleymdu ekki að
styðja aðra.
Það er þér mjög mikilvægt að geta
gefið af þér og það veitir þér gleði
að deila reynslu þinni og veita
öðrum stuðning. Um leið eflir það
þig og veitir þér tilgang.
Heimild: Stress.is
Miracle
Cream
Kremið sem umbreytir húð þinni
frá fyrstu snertingu
Nýjung
UMBREYTIR
HÚÐINNI
GEGN ÖLDRUN
OG AÐLAGAST
HÚÐLIT ÞÍNUM
FULLKOMLEGA
/garniericeland
UMBREYTING Á AUGABRAGÐI
Einstök innihaldsefni í kreminu eru rík af örsmáum
litarögnum, sem sjálfkrafa aðlaga sig að húð þinni
a
Formúlan gegn öldrun inniheldur 7 virk innihaldsefni
Prófað á yfir 1500 konum með mismunandi húðgerð
og húðlit.
„Það er ekki hægt að ætla sér að ná
markmiði án þess að þurfa að takast á
við neikvæðar tilfinningar.”