Fréttablaðið - 03.10.2014, Síða 28

Fréttablaðið - 03.10.2014, Síða 28
FRÉTTABLAÐIÐ Elma Stefanía viðtal. Fataskápurinn. Trend af pöllunum. Samfélagsmiðlar 6 • LÍFIÐ 3. OKTÓBER 2014 M ig langaði alltaf að verða leikkona en ég sagði engum frá því, ég veit ekki af hverju, ég hafði bara engan áhuga á að auglýsa það sérstak- lega,“ segir leikkonan Elma Stef- anía Ágústsdóttir sem leikur nú í leikritinu Konan við 1000 gráður. Elma útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands í fyrra og hefur síðan þá leikið í hverju verk- inu á fætur öðru og fengið glimr- andi góða dóma fyrir. Hún vakti athygli í leikritinu Harmsögu sem eiginmaður hennar, Mikael Torfa- son, skrifaði en þar fór hún með annað aðalhlutverkið en hitt var í höndum Snorra Engilbertssonar. „Ég var nýútskrifuð og við vorum tvö á sviðinu, ég og Snorri, að halda uppi heilli sýningu. Það var mjög stressandi, sérstak- lega af því þetta var fyrsta verk- ið sem ég tók þátt í eftir útskrift. En við unnum þetta vel saman og þegar ég horfi til baka þá sé ég að þetta var ótrúlega erfitt en líka skemmtilegt. Og við gátum þetta. Það er svo fínt að vita hvað maður getur,“ segir hún brosandi. Harm- saga var síðar sett upp í Kennedy Center í Washington og fékk lof- samlega dóma víðast hvar, meðal annars í hinu virta blaði Washing- ton Post. Elma segist alltaf hafa haft áhuga á leiklist þó það hafi ekki farið hátt fyrr en á fullorðinsár- um. Hún ólst upp á Hvolsvelli en flutti í bæinn sem unglingur. „Það voru mikil forréttindi að alast upp í frelsinu úti á landi. Maður hljóp bara út og það voru engar áhyggj- ur. Ég finn það enn í dag hvað það er gott að komast í sveitina. Tím- inn er öðru vísi þar. Allt er svo miklu rólegra,“ segir hún og bætir við að sér finnist mikilvægt að komast annað slagið út úr bænum. „Ég hef til dæmis verið að hug- leiða mikið undanfarin ár og það er hvergi betra en í sveitinni. Með hugleiðslunni verð ég bæði betri í því sem ég geri, á sviðinu, og svo er ég líka bara betri manneskja fyrir vikið. Hugleiðsla gerir mann rólegri í eigin skinni og umburðar- lyndari gagnvart öllu. Svo bjargar hún geðheilsunni á ögurstundum,“ segir Elma og hlær. Leiðinlegt að vera unglingur Sextán ára gömul flutti Elma í borgina til þess að fara í Kvenna- skólann í Reykjavík. Hún bjó fyrst um sinn hjá vinafólki foreldra sinna. „Mér fannst ég vera orðin fullorðin 16 ára en ég var það svo sannarlega ekki þegar ég lít til baka. Ég beið eftir því að flytja í bæinn. Mér fannst svo lítið spenn- andi að vera unglingur úti á landi, reyndar fannst mér bara ekkert skemmtilegt að vera unglingur yfirhöfuð, úti á landi eða ekki.“ Elma segir menntaskólaár- in ekki hafa verið neitt sérlega skemmtileg. „Kvennó er ágætur skóli en ég hafði engan sérstakan áhuga á náminu og fannst þessi ár frekar leiðinleg. Ég tók stúdents- prófið bara af skyldurækni.“ Hún ákvað svo að freista þess að láta leiklistardrauminn rætast og sótti um í Leiklistarskólanum þegar hún var 23 ára gömul. Þá orðin móðir, en dóttir Elmu, Ísold, var rúmlega eins árs á þeim tíma. Sér ekki eftir að hafa hætt „Ég hefði alls ekki viljað vera yngri þegar ég fór í skólann. Þetta er rosalega krefjandi nám og maður þarf að hafa mikinn sjálf- saga. Ég var í skólanum frá níu á morgnana til sex á kvöldin og síðan var alltaf heimavinna eftir það,“ segir hún. Elma var eins og fyrr segir einstæð móðir á meðan á náminu stóð en var heppin að fá góða aðstoð frá skyldfólki sínu. „Ég fékk hjálp frá frændfólki mínu hér í bænum sem sótti hana fyrir mig á leikskólann og þau hjálpuðu mér mikið. Þá hefði verið gott að vera búin að uppgötva hugleiðsl- una!“ Námið var krefjandi og Elma sá að hún þurfti að skipuleggja líf sitt í kringum það. „Þegar það er mikil pressa þá fer maður að endurskoða líf sitt og endurskipuleggja sig. Ég er mjög metnaðarfull í því sem ég tek mér fyrir hendur. Ég skila af mér hlutum af heilum hug og geri það vel. Þarna ákvað ég því að hætta að drekka sem er ákvörðun sem ég sé ekki eftir. Þar fékk ég fullt af tíma og meiri orku sem ég gat beint í réttar áttir.“ Vill beina orkunni á rétta staði „Það fór mér ekki að drekka,“ segir hún aðspurð hvort áfeng- ið hafi verið henni fjötur um fót. „Það er líka bara þannig að maður ELMA STEFANÍA ÁTTI SÉR LEYNDA LEIKLISTARDRAUMA ALLA TÍÐ Elma Stefanía Ágústsdóttir hefur haft nóg að gera síðan hún útskrifaðist sem leikkona á síðasta ári. Hún segist alltaf hafa vitað að sig langaði til að verða leikkona en sagði engum frá því. Draumurinn rættist þegar hún skráði sig í leiklistarskólann, þá einstæð móðir og sá að hún þyrfti að beina orkunni í rétt- ar áttir og skipuleggja sig upp á nýtt til þess að námið og móðurhlutverkið færu saman Hún leikur í Konunni við 1000 gráður.. IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk. opið til 22 alla daga. Elma segir leiklistarnám- ið hafa verið krefjandi og hún hafi þurft að ein- beita sér að því að beina orkunni í réttar áttir, meðal annars með því að hætta að drekka. Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.