Fréttablaðið - 28.10.2014, Qupperneq 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Þriðjudagur
12
S jónin er eitt mikilvægasta skilning-arvitið sem við búum yfir en með aldrinum er algengt að hún fari að daprast, við verðum fjarsýn og förum að sjá verr í myrkri,“ segir Ásta Kjartans-dóttir, viðskiptastjóri hjá Gengur vel ehf. „Því til viðbótar getur útfjólublátt ljós, þurrt loft og fleiri umhverf-isáhrif haft áhrif á augnheilsu. Bellavista er einstaklega auð-upptakanlegt fyrir líkamann og flestir finna mun á augunum eftir aðeins viku inntöku.“
FJÓRAR ÖFLUGAR JURTIRTil að gera Bellavista að virku fæðubót-
arefni fyrir augun inniheldur það fjórar
öflugar jurtir: bláber, klæðisblóm, bók-
hveiti og gulrætur. Virku efnin í þessum
plöntum hafa jákvæð áhrif á æðakerfi
augans. Auk þess innihalda þær efni sem nýtast mismunandi hlutum augans
meðal annars „gula blettinum“ sesérstakleg
Bellavista andoxunar-efnin selen, C- og E-vít-amín sem hjálpa til við að viðhalda viðkvæmri starfsemi í líkamanum með því að fanga svo-kölluð sindurefni.
HVERNIG VIRKAR SJÓNIN?
Í auganu umbreytist ljósið fyrst í efnaferli í nethimnunni og svo í rafboð í sjóntauginni sem flytur þau til heilans sem svo breytir þeim í myndir af umheiminum. Í þessu ferli leika A-vítamín og sink stórt hlutverk. Þrátt fyrir að flestir fái nauðsynleg næringarefni úr fæðunni er ekki víst að hún innihaldi nægilegt magn af sinki eða A-vítamíni. Það er því mikilvægt að íhuga að auka magn þessara nauðsynleguefna í fæðunni ð
NÁTTBLINDA EÐA AUGNÞURRKUR?GENGUR VEL KYNNIR Bellavista er eitt öflugasta fæðubótarefnið á markaðn-
um fyrir sjónina. Það inniheldur einstaka blöndu náttúrulegra efna sem mikil-
væg eru til að viðhalda góðri sjón svo sem bláber, klæðisblóm (lútein), bók-
hveiti og gulrætur.
ÁSTA
KJARTANSDÓTTIR
VERKFALL LÆKNAÁ vefsíðu Landspítalans, landspitali.is, er að finna hlekk þar sem leita má upplýsinga um verkfall lækna. Þar má finna fréttir og tilkynningar og skoða til að mynda verkfallsáætlun lækna fram í desember.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-11 - laugard. 11-16
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SÓFUM /SÓFASETTUMÍ PHOENIX ÁKLÆÐI
20%
SÓFAR ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞINUM ÞÖRFUMMÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI VET DEKÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2014 Kynningarblað MAX1 Bílavaktin, Dekkjasalan og ný reglugerð um mynsturdýpt
Hér er búin að vera stanslaus vertíð í dekkjaskiptum síð-ustu vikurnar og dagarnir
langir,“ segir Valdimar Sigurjóns-
son, eigandi Dekkjasölunnar.
„Allt hefur gengið mjög vel fyrir
sig og verð ég að hrósa viðskipta-
vinum okkar fyrir ánægjuleg við-
skipti og góða nærveru.“
Tryggir viðskiptavinir
Síðastliðinn vetur bættist nýtt
dekkjaverkstæði við starfsemi
Dekkjasölunnar.
„Við göngum nú í gegnum
fyrstu dekkjatörnina á nýja verk-
stæðinu sem er með góðri að-
stöðu og afbragðs lyftum.“
Fyrir innan verkstæðið er bið-
stofa sem Valdimar segir næstum
aldrei notaða.
„Það skýrist af því að f lestir
sem hingað koma virðast hafa
Dekkjasalan – persó uleg þjónustaÞað var mikil ös og mikið að gera á Dekkjasölunni í Hafnarfirði þegar bl ðamaður kom við til að taka viðtal við forsvarsmenn þar.
2 SÉRBLÖÐ
Vetrardrekk | Fólk
Sími: 512 5000
28. október 2014
253. tölublað 14. árgangur
MENNING Pólskar og ís-
lenskar smásögur fimm höf-
unda í brennidepli. 20
LÍFIÐ Elsa Nielsen opnar
sýninguna Borgin mín á
kaffihúsinu Mokka. 30
SPORT Strákarnir okkar
ætla að tryggja Íslandi sæti
á næsta EM. 26
Neyðarkall
Stöndum saman,
stöðvum ebólu!
Sendu sms-ið
STOPP í númerið 1900
(1.900 krónur) og
leggðu þitt af mörkum.
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
ht.is
Næsta bylgja
sjónvarpa
er komin
með Android
SKOÐUN Sigríður I. segir
ekkert mál að fjármagna
uppbyggingu Landspítala. 12
Bolungarvík 1° NA 10
Akureyri 0° NNA 8
Egilsstaðir 2° N 7
Kirkjubæjarkl. 4° N 6
Reykjavík 3° NNA 9
NORÐANÁTT víða 8-13 m/s, hvassast
NV-lands og úrkoma N- og A-til en
úrkomulaust syðra. Hiti víðast 0-5 stig,
mildast syðst. 4
NIÐURLÆGÐUR Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, komst ekki á frumsýningu myndarinnar Samsuðu vegna þess
að hjólastólaaðgengi í Bíói Paradís er verulega ábótavant. „Niðurlægjandi,“ segir Guðjón um að það hafi átt að bera hann inn í
salinn til að sjá myndina. - sjá síðu 4 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
HEILBRIGÐISMÁL Ungar konur á
aldrinum 18 til 35 ára eru lang-
stærsti hópur þeirra sem þiggja
endurhæfingarlífeyri.
Algengustu ástæður þess að ein-
staklingar þiggja slíkar bætur eru
geðraskanir og stoðkerfisvanda-
mál.
Í júlí síðastliðnum voru 447
konur á aldrinum 18 til 35 ára
á endurhæfingarlífeyri en 230
karlar á sama aldursbili. Heim-
ilt er að greiða endurhæfingar-
lífeyri í allt að 18 mánuði þegar
ekki er ljóst hver starfshæfni
verður til frambúðar í kjölfar
sjúkdóma og slysa.
Halldóra Ólafsdóttir, yfirlækn-
ir á geðsviði Landspítalans, segir
að fólk greinist yngra með geð-
raskanir nú en fyrir 50 árum.
- hó / sjá síðu 10
Geðraskanir og stoðkerfisvandamál tíðustu ástæður endurhæfingarlífeyris:
Ungar konur stærsti hópurinn
Stundum er það
hins vegar ekki heiglum
hent á Íslandi að fá góða
sannreynda meðferð við
algengum geðröskunum.
Halldóra Ólafsdóttir, yfirlæknir
á geðsviði Landspítalans
SAMKEPPNISMÁL Ólafur M. Magnús-
son hefur kært Mjólkursamsöluna
(MS) og Kaupfélag Skagfirðinga
(KS) öðru sinni. Telur Ólafur að
MS hafi beitt blekkingum með því
að skilgreina sig sem afurðastöð og
þannig undanþegna samkeppnis-
lögum.
Kæran snýr að því að MS sé ekki
afurðastöð í skilningi búvörulaga
og því ekki undanþegin samkeppn-
islögum. Kæran var send Sam-
keppniseftirlitinu í gær og hefur
Fréttablaðið hana undir höndum.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins, staðfestir að
stofnuninni hafi borist kæran og nú
verði farið yfir forsendur hennar á
næstu dögum.
Kæran beinist að MS, Kaupfélagi
KS, Mjólku og Auðhumlu. Í henni er
tilgreint að MS og KS hafi frá því
að MS tók til starfa þann 1. janúar
árið 2007 haft með sér umfangsmik-
ið samráð á mörkuðum fyrir mjólk
og mjólkurvörur sem er í andstöðu
við samkeppnislög.
Í fylgigögnum sést að MS kaup-
ir ekki mjólk af bændum heldur af
Auðhumlu. MS hefur þannig ekki
keypt neina mjólk beint af bændum
frá því fyrirtækið var sett á lagg-
irnar. Í búvörulögum er afurðastöð
skilgreind sem hver sú atvinnu-
starfsemi lögaðila sem tekur við
búvörum úr höndum framleiðenda.
Því vill Ólafur meina að MS sé í
raun ekki afurðastöð.
„Ég tel það mjög alvarlegt að for-
svarsmenn MS hafa með blekking-
um haldið því fram að MS sé afurða-
stöð og því undanþegin ákvæðum
samkeppnislaga. Þessari blekkingu
hefur verið haldið fram gagnvart
samkeppnisyfirvöldum og neytend-
um til að réttlæta brot fyrirtækisins
á samkeppnislögum. Þessu verður
að linna,“ segir Ólafur.
Forsvarsmenn MS telja þá sam-
vinnu sem MS, KS og tengdir aðil-
ar stunda falla undir búvörulög þar
sem um afurðastöðvar sé að ræða.
Afurðastöðvum í mjólkuriðnaði
er heimilt að gera samninga sín á
milli um verðtilfærslu milli tiltek-
inn afurða.
Einar Sigurðsson, forstjóri MS,
telur vangavelturnar byggðar á
misskilningi. „ Mjólkursamsalan er
skilgreind afurðastöð samkvæmt
Matvælastofnun. Skilgreining á
afurðastöð er ekki hvort fyrirtækið
sé í reikningssambandi við bændur.
Auðhumla sér um reikningshaldið.
Innvigtun mjólkur er á okkar hönd-
um þó mjólkin sé greidd í gegnum
Auðhumlu. Auðhumla er aðili að
samtökum afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði. Að mínu mati eru vangavelt-
urnar byggðar á misskilningi.“ - sa
Segir MS beita blekkingum
KÚ hefur kært Mjólkursamsöluna og Kaupfélag Skagfirðinga fyrir ólögmætt samráð. MS er sögð hafa beitt blekk-
ingum með því að skilgreina sig sem afurðastöð. Hefur ekki keypt mjólk af bændum frá því fyrirtækið var stofnað.
20 nýir vagnar
Um tíu milljónir farþega fara með
strætó á þessu ári. Vögnum og
ferðum verður fjölgað. 2
Herör gegn ofbeldi Borgaryfirvöld
og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
eru í víðtæku samstarfi við úrvinnslu
heimilisofbeldismála. 6
Kennarar missa vinnuna Nái áform
ríkisstjórnarinnar fram að ganga
munu um 20 menntaskólakennarar
missa vinnuna. 8
Háar mælingar brennisteins Gera
má ráð fyrir mikilli brennisteins-
díoxíðsmengun á Suðurlandi í dag og
fram á kvöld. 10
Ég tel það mjög
alvarlegt að forsvarsmenn
MS hafa með blekkingum
haldið því fram að MS sé
afurðastöð.
Ólafur M. Magnússon,
Forsvarsmaður KÚ ehf.
BRUNI Eldur kom upp í íbúð Eygló-
ar Harðardóttur félagsmálaráð-
herra við Mjósund í Hafnarfirði í
gær. Þrjár íbúðir eru í húsinu og
er íbúð Eyglóar töluvert skemmd
samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins. Engan sakaði í brunanum en
Eygló er ekki stödd á landinu.
Í skilaboðum sem Eygló sendi
frá sér á Facebook í gær segir
hún fjölskyldunni vera brugðið.
Skemmdirnar séu miklar en von-
andi geti þau flutt aftur inn sem
fyrst. Þá þakkar hún lögreglu og
slökkviliði fyrir hjálpina. - bá
Mikið tjón í Hafnarfirði:
Eldur í íbúð
ráðherra
MIKIÐ TJÓN Íbúð Eyglóar við Mjósund
er töluvert skemmd eftir brunann.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM