Fréttablaðið - 28.10.2014, Síða 2

Fréttablaðið - 28.10.2014, Síða 2
28. október 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Björn Ingi, ná Hornfirðingar ekki andanum? Jú, þeir ná honum og anda í gegnum nefið þó það sé gasalega erfitt. Björn Ingi Jónsson er bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði. Mjög mikil gosmengun frá Holu- hrauni hefur mælst þar síðustu daga og hafa margir íbúar orðið fyrir óþægindum þess vegna. HORNAFJÖRÐUR Brennisteinsdíoxíð mældist upp undir tíu þúsund míkrógrömm á Höfn á sunnudag og allt að tuttugu þúsund í Hoffelli. Mengunin mældist um 1.400 míkrógrömm um miðjan dag í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNÞÓRA HEILBRIGÐISMÁL 4.500 manns höfðu skráð vilja sinn til líffæragjafar, þegar starfsmenn landlæknis skoð- uðu gagnagrunninn í morgun. Á föstudag var sett upp vefsíða þar sem fólk getur skráð sig sem mögulega líffæragjafa. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra varð fyrstur til að skrá sig. Áður en vefsíðan var opnuð voru engar tölur um það hversu margir vildu gefa líffæri, segir Jórlaug Heimisdóttir, verkefnastjóri hjá landlækni. „Það hefur ekki verið hægt að skrá sig rafrænt. Þetta hefur bara verið á líffæragjafakortinu þannig að fólk hefur verið hvatt til að fylla það út og bera í veskinu sínu. Við höfum ekki haft möguleika á að halda utan um fjölda þeirra sem hafa skráð afstöðu sína fram til þessa. Þetta er í fyrsta sinn sem við höfum tækifæri til þess,“ segir hún. Hún segir að þessi gagnagrunnur muni verða til frambúðar. Við skráningu í gagnagrunninn getur fólk merkt við líffæragjöf sem nær til allra líffæra, líffæragjöf sem takmarkast við ákveðin líffæri, eða að heimila ekki líffæragjöf. Fyrir Alþingi liggur frumvarp um ætlað sam- þykki til líffæragjafa. Í umsögn um frumvarpið segir Embætti landlæknis að frumvarp um ætlað samþykki við líffæragjafir geti verið einn liður í að fjölga líffæragjöfum hér á landi, en rekstur gagna- grunns af þessu tagi sé einnig mikilvægur. - jhh Landlæknir fylgist með því með gagnagrunni hve margir vilja gefa líffæri: Hátt í 5.000 hafa skráð afstöðu LANDLÆKNIR Vefsíðan fór í loftið á föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK UMHVERFISMÁL Þrír loftgæðamælar á Reyðar- firði og einn á Egilsstöðum sendu ekki frá sér upplýsingar frá laugardegi fram á mánudags- morgun vegna bilunar í gagnaflutningi. Mælir í Hornafirði pípti svo mikið vegna gasmeng- unar að rafhlaða sem átti að endast í þrjú ár tæmdist. Mælarnir á Reyðarfirði og Egilsstöðum eru í eigu Alcoa. „Mælarnir söfnuðu upplýsingum en það bilaði einfaldlega gagnaflutningurinn frá þeim,“ segir Þorsteinn Jóhannsson, sér- fræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun. Rafhlaða tæmdist í litlum handmæli sem verið hefur við dvalarheimilið á Höfn en þar á svæðinu hefur mengunin mælst mest undan- farna daga. „Hann var búinn að pípa stöðugt og það er greinilegt að þegar þessir mælar pípa gleypa þeir batteríin miklu hraðar,“ segir Þorsteinn og vísar til þess að rafhlaðan hafi átt að endast í þrjú ár. Handmælir eins og sá sem notaður hefur verið á Höfn kostar að sögn Þorsteins innan við eitt hundrað þúsund. Sjálfvirku og net- tengdu mælarnir sem senda frá sér gögn inn á síðu Umhverfisstofnunar kosta hins vegar þrjár og hálfa milljón króna. Þorsteinn segir nú unnið að því að setja upp slíkan mæli á Höfn. - gar SPURNING DAGSINS Gæði fara aldrei úr tísku Vaskar og blöndunartæki SAMGÖNGUR „Þetta helst í hendur, bætt þjónusta og fjölgun farþega. Farþegum hefur fjölgað mikið síð- ustu misseri og því eðlilegt að halda áfram að bæta þjónustuna,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Strætó. Frá því í fyrra hefur strætisvagnafarþeg- um fjölgað um 5,1 prósent. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi farþega í Strætó bs. í ár nemi um 10 milljón- um og að farþegarnir verði hátt í 11 milljónir á næsta ári. Á nýju ári verða verulegar breyt- ingar á ferðatíðni hjá Strætó og 20 nýir strætisvagnar bætast í flotann. Hver nýr vagn kostar að meðaltali 35 milljónir með virðisaukaskatti. Það kostar Strætó því um 700 millj- ónir króna að kaupa nýju vagnana. „Nýju vagnarnir eru EUR06 sem þýðir að þeir eru umhverfis- vænstu vagnarnir sem eru á markaðnum í dag,“ segir Guðrún. Vögnunum fjölgar raunar ekki um 20 við kaup- in því 14 gömlum strætis- vögnum verður lagt svo strætisvagnaflotinn á höf- uðborgarsvæðinu stækkar um sex. Ný tímaáætlun hjá strætó á höfuðborgarsvæðinu tekur gildi 4. janúar. Eftir þann tíma hefst akstur á sunnudagsmorgnum klukkan 9.30, eða tveimur tímum fyrr en verið hefur undanfarin misseri. Önnur stór breyting er að ferðatíðni á mörgum leiðum eykst. Strætisvagnar koma til með að aka á 15 mínútuna fresti í Grafarholti, Kópavogi, Árbæ, Norðlingaholti og við HR. Auk þess verða strætis- vagnasamgöngur bættar við Land- spítalann í Fossvogi og Háskóla Íslands. Með þessu verða öll helstu hverfi á höfuð- borgarsvæðinu komin með 15 mínútna tíðni á annatíma kvölds og morgna. Jafn- framt eru fyrirhugaðar minni háttar breytingar á einstökum leiðum og tíma- áætlunum nokkurra leiða. Í Reykjavík eru 540 bið- stöðvar fyrir strætó. Á 370 þeirra eru biðskýli og á Reykjavíkurborg og rekur um 230 skýli, en AFA JCDecaux á Íslandi á og sér um rekstur og viðhald um 140 strætóskýla í Reykjavík samkvæmt sérstökum samningi. Biðstöðvar án biðskýlis eru um 170 talsins. Hluti þeirra biðskýla sem Reykja- víkurborg á er kominn til ára sinna. Þetta eru gráu skýlin sem lokuð eru á þrjá vegu. Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar vinnur að því að greina núverandi stöðu og koma með tillögur um úrbætur á bið- stöðvum strætó í Reykjavík. Meg- ináhersla er lögð á úrbætur á bið- stöðvum án skýlis. johanna@frettabladid.is Strætó fær tuttugu nýja strætisvagna Um tíu milljónir farþega fara með strætó á þessu ári. Ef spár ganga eftir verða þeir nálægt ellefu milljónum 2015. Vögnum fjölgar og ferðatíðni verður aukin á annatímum auk þess sem strætisvagnar hefja akstur fyrr á sunnudagsmorgnum. FARÞEGAFJÖLDI MEÐ STRÆTÓ 10.000.000 8.000.000 6.000.000 4.000.000 2.000.000 0 2007 2009 2011 2013 7.696. 304 7.518. 506 9.012. 872 9.808. 103 NÝ BIÐSKÝLI Hluti biðskýla Reykjavíkurborgar er gamall og verður væntanlega skipt út á næstunni. Það vantar hins vegar biðskýli á 170 biðstöðvar á höfuðborgar- svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GUÐRÚN ÁGÚSTA GUÐMUNDS- DÓTTIR Bilaðir gasmælar eystra komnir í lag og nýr sjálfvirkur mælir verður settur upp á Höfn í Hornafirði: Tæmdi þriggja ára rafhlöðu yfir helgina HEILBRIGÐISMÁL Fyrsti dagur í verkfalli lækna var í gær og var um 30 skurðaðgerðum á Landspítalanum frestað vegna verkfallsaðgerðanna. Læknar á rannsóknarsviði Landspítalans og kvenna- og barnasviði sem og hjá heilsugæslustofnunum um allt land lögðu niður störf í gær og í dag. Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum, vonast eftir því að deiluaðilar nái sáttum sem allra fyrst. Mikil óvissa sé uppi á spítalanum vegna verkfallsins og áhrifa gæti víða. „Við höfum sinnt bráða- og neyðarþjónustu eins og venjulega en mikil röskun hefur orðið á starfseminni hjá okkur, eins og við mátti búast,“ segir Ólafur. Langt er á milli aðila í kjaradeilunni en samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hafa stjórnvöld boðið læknum 2,5 til 3 prósenta launahækkun en læknar krefjast 30 til 36 prósenta hækkunar. - vh / fbj Mikið ber í milli aðila í kjaradeilu lækna og stjórnvalda: Mikil röskun á starfsemi spítala FUNDAÐ Læknar mæta til fundar á ný hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú á mið- vikudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR HEILBRIGÐISMÁL Þegar varað er við háum gildum brennisteinsdíoxíðs (SO2) í lofti þurfa dýraeigendur að hafa í huga að mengunin hefur sambærileg áhrif á dýr og fólk. Áhrifin eru þeim mun meiri því lengur sem dýrin verða fyrir menguninni. Dýraeigendur þurfa að draga sem mest úr álagi á dýrin þegar magn brennisteinsdíoxíðs í andrúmslofti er mikið, líkt og við hlaup, erfiða vinnu og streituvald- andi aðstæður. Fylgjast þarf með dýrum á úti- gangi og hýsa þau ef vart verður við einkenni eins og roða í augum, hósta eða öndunarerfiðleika, eða hegðun sem bendir til að dýrin finni fyrir óþægindum. - glp Áhrif brennisteinsdíoxíðs: Draga þarf úr álagi á dýrin ÚKRAÍNA Flokkar sem styðja bæði friðarsamkomulag um að binda enda á átökin í Úkraínu og sam- starf við Evrópusambandið sigr- uðu í úkraínsku þingkosningunum sem fram fóru um helgina. Útgönguspár benda til þess að flokkur Petrós Porósjenkó, for- seta Úkraínu, verði stærsti flokk- urinn á þingi en flokkur forsætis- ráðherrans, Arsenís Jatsenjúk, fylgir fast á eftir. Endanleg úrslit koma í ljós á næstu dögum. Porósjenkó ætlar að hefja við- ræður um myndun nýrrar stjórnar á næstu dögum en hann telur lík- legt að Jatsenjúk, núverandi for- sætisráðherra, verði áfram í því embætti. - glp Viðræður hefjast á næstunni: Evrópusinnaðir flokkar stærstir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.