Fréttablaðið - 28.10.2014, Page 36

Fréttablaðið - 28.10.2014, Page 36
28. október 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 20 TÓNLIST ★★ ★★★ Við strjúkum þitt enni Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur og Oliver Kentish FRUMFLUTNINGUR Á 400 ÁRA AFMÆLI HALLGRÍMS PÉTURSSONAR Í HALL- GRÍMSKIRKJU LAUGARDAGINN 25. OKTÓBER. Um þessar mundir er haldið upp á 400 ára afmæli Hallgríms Péturs- sonar. Líkið af honum er sjórekið eins og Megas orti á sínum tíma um Jónas Hallgrímsson. En önnur kveður svo: „Spanskgrænan drýp- ur af deyjandi hönd… Hallgrímur, Hallgrímur hart ertu leikinn.“ Þessar línur eru ekki eftir Megas, heldur er þær að finna í ljóðinu Við strjúkum þitt enni eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur. Ljóð- ið var pantað af Tónmenntasjóði Hallgrímskirkju í tilefni hátíða- haldanna. Oliver Kentish samdi við það tónlist. Hún var flutt af Steev van Oosterhout slagverks- leikara og Birni Steinari Sólbergs- syni orgelleikara ásamt kammer- kórnum Hljómeyki undir stjórn Mörtu Guðrúnar Halldórsdóttur. Verkið var á dagskrá í Hallgríms- kirkju á laugardaginn var. Nú hefur maður farið á óteljandi frumflutninga í Hallgrímskirkju – það er frábært hvað kirkjan er stórkostlegur vettvangur fyrir nýsköpun. Þarna heyrðist fyrst hin magnaða Passía eftir Hafliða Hallgrímsson og orgelkonsert Jóns Leifs svo eitthvað sé nefnt. Í samanburðinum var tónlistin nú fremur þunn. Fyrir það fyrsta var hún nokkuð brotakennd. Í henni voru bútar af hinu og þessu. Þetta voru litlar hendingar sem viku svo óvænt fyrir öðru. Þótt þær dúkk- uðu aftur upp seinna urðu þær aldrei að neinu bitastæðu. Maður heyrði fallega lagstúfa sem líktust helst sálmum. En svo var klippt á þá, og við tók eitthvað sem var eins og í hrollvekju. Og svo var ÞAÐ líka búið, alveg fyrirvaralaust. Ekkert í verkinu fékk að njóta sín og komast á flug. Músíkin var full af mótsögnum. Það var synd, því í henni voru margar góðar hug- myndir sem áttu skilið að fá að lifa. Fyrir utan þetta vantaði stíg- andina í verkið. Undir lokin var þó hápunktur, en hann virkaði til- gerðarlegur í samhengi við hræri- grautinn á undan. Tilgerðin var svo undirstrikuð með ofnotuðum rörklukkum, sem gáfu músíkinni glimmerkennda, einhæfa áferð. Eins og slagverk getur nú verið fjölbreytt og spennandi. Þetta kemur á óvart, því Oli- ver hefur vissulega gert margt vel. Hann er gott tónskáld og má vera stoltur af flestum verkum sínum. En kannski náði hann ekki að tengja almennilega við ljóðið hennar Sigurbjargar. Hvað sem þessu líður var flutn- ingurinn góður. Orgelparturinn var einfaldur og hann var ágæt- lega útfærður af Birni Steinari. Sömuleiðis söng kórinn prýði- lega. Fínlegur söngurinn var blæ- brigðaríkur og frábærlega sam- stilltur. Og ljóðið sjálft er magnað, um að Hallgrímur sé dáinn, en að orð hans lifi um ókomna tíð. Ég er ekki viss um að tónlist Olivers muni tóra svo lengi. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Klént, yfirborðslegt tónverk sem þó var glæsilega flutt. Hart varstu leikinn, Hallgrímur KAMMERKÓRINN HLJÓMEYKI „Fínlegur söngurinn var blæbrigðaríkur og frábærlega samstilltur. Og ljóðið sjálft er magnað …“ Nú fer að líða að lokum Lestrar- hátíðar í Bókmenntaborg, en henni líkur föstudaginn 31. októ- ber. Stærsti viðburðurinn í loka- vikunni er pólskt-íslenskt smá- sagnakvöld í Iðnó í kvöld klukkan 20. Þar er kastljósinu beint að pólsku skáldunum Piotr Paziński og Zienowit Szczerek og íslensku skáldunum Kristínu Eiríksdóttur, Halldóri Armand Ásgeirssyni og Þórarni Eldjárn. Öll lesa þau upp úr sögum sínum og ræða smá- sagnaformið við rithöfundinn, bókmenntafræðinginn og útvarps- manninn Hauk Ingvarsson. Dagskráin er hluti af evrópska smásaganaverkefninu Transgres- sions: International Narrat ives Exchange sem Reykjavík Bók- menntaborg tekur þátt í á þessu ári. Höfundar frá Íslandi, Pól- landi, Noregi og Liechtenstein skrifuðu nýjar sögur af þessu til- efni og birtust þær allar á pólsku í safnritinu Transgressje: Anto- logia, sem kom út í Wrocław, Póllandi fyrr í þessum mánuði. Íslensku sögurnar og tvær þær pólsku munu einnig birtast á íslensku í Nestisboxinu á vef Bók- menntaborgarinnar frá og með deginum í dag. Þessar fimm sögur sem kynntar verða í kvöld eru afar ólíkar að inntaki og stíl. Allar eiga þær þó það sameiginlegt að taka ein- hvers konar mæri, mörk eða rof til umfjöllunar, hvort sem þau eru landfræðileg, sálfræðileg, menn- ingarleg eða af einhverjum öðrum toga. Á dagskránni í Iðnó lesa höf- undarnir örstutt brot úr sögunum og einnig mun Haukur Ingvarsson spjalla við skáldin. Kynnir er Olga Hołownia. Umræður fara fram á ensku en sögurnar verða ýmist lesnar upp á íslensku eða pólsku. Þýðingum verður varpað á tjald, íslenskri með pólsku sögunum og pólskri með þeim íslensku. - fsb Pólskar og íslenskar smásögur Smásagnakvöld verður haldið á vegum Lestrarhátíðar í Iðnó í kvöld. Þar koma fram þrjú íslensk skáld og tvö pólsk og lesa úr nýjum smásögum sínum. TRANSGRESSIONS Kristín Eiríksdóttir er eitt fimm skálda sem lesa upp úr nýjum smásögum í Iðnó í kvöld. Hér er hún á smásagnahátíðinni í Wroclaw fyrr í mánuðinum. MYND: OPOWIADANIE.ORG Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, kemur fram hádegistón- leikum Íslensku óperunnar í dag ásamt píanóleikaran- um Antoníu Hevesi. Á tónleikunum, sem haldnir verða í Norðurljósum í Hörpu klukkan 12.15, verða meðal ann- ars flutt Söngurinn til mánans úr óperunni Rúsölku og rússneska þjóðlagið Solovej moi eða Næturgal- inn, þar sem söngkonan líkir eftir hljóðum nætur- gala með tilheyrandi trillum og háum tónum. Diddú söng síðast í sýningu hjá Íslensku óper- unni hlutverk Næturdrottningarinnar í Töfra- flautunni og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir hlutverkið. Blóm og næturgalar Diddú á hádegistónleikum Íslensku óperunnar MENNING EKKI GLEYMA NESTISBOXINU – ljúffeng saga á hverjum degi á bokmenntaborgin.is SJÁ DAGSKRÁ Á BOKMENNTABORGIN.IS HVAÐ EIGA BESSASTAÐIR, GEORGÍA, KOLAPORTIÐ, BLAUT DÝNA OG BÓKADÚFUR SAMEIGINLEGT? Fram koma pólsku skáldin Piotr Paziński og Ziemowit Szczerek ásamt íslensku skáldunum Kristínu Eiríksdóttur, Halldóri Armand Ásgeirssyni og Þórarni Eldjárn. Spjall verður á ensku og upplestrar á íslensku og pólsku.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.