Fréttir - Eyjafréttir - 15.11.1984, Page 1
11. árgangur
Fimmtudagur 15. nóvember 1984
47. tölublað
A fund fjárveitinga
nefndar
Fjárveitinganefnd Alþingis
tekur á móti fulltrúum sveitar-
félaga og annara sem eru með
fjárlagabeiðnir í október og
nóvember á hverju ári. Fulltrúar
bæjarins verða hjá nefndinni í
dag og leggja þar fram og gera
grein fyrir erindum bæjarins
vegna fjárlaga ríkisins 1985.
Helstu fjárlagabeiðnir munu
vera vegna áframhaldandi bygg-
ingar Hamarsskóla, og skuldar
ríkissins vegna skólans og hluta
ríkisins í hafnarframkvæmdum,
byggingu sjóvarnargarða og
styrkingu Eiðisins.
Þá mun einnig verða lagt fram
erindi vegna starfsmannabú-
staðar við Sjúkrahús/heilsu-
gæslustöð auk fleiri erinda.
Auk ofangreindra erinda ligg-
ur fyrir beiðni um skuldbreyt-
ingalán fyrir hitaveitu og hluta
hafnarsjóðs í byggingu skipa-
lyftu vegna lánsfjáráætlunar
1985.
Fulltrúar bæjarins í viðræðum
við fjárveitinganefnd verða Arn-
ar Sigurmundsson, form. bæjar-
ráðs, Ólafur Elísson, bæjar-
stjóri og Andrés Sigmundsson,
bæjarráðsmaður, en þeir munu
einnig þinga með þingmönnum
kjördæmisins síðar í dag.
• •
Ol er innri maður
Þetta spakmæli datt okkur í
hug, þegar okkur bárust fréttir af
áfengisútsölu á landinu í júlí,
ágúst og september.
Þar kom í ljós að heildameysla
á landinu, eða heildarsala áfeng-
isverslunar ríkisins hafði aukist
um 38% yfir allt landið, en aðeins
um 11% hér í Eyjum.
Mann rekur náttúrulega í
rogastans, því að þetta er m.a.
Þjóðhátíðarmánuðurinn sem er
mjög þurftafrekur á áfenga
drykki hér í Vestmannaeyjum.
Sem siðgæðispostulum og
skírlífísmönnum verður okkur
náttúrulega það fyrst á að
gleðjast, en síðan sækja ýmsar
efasemdir á hugann. Hvernig
stendur á þessu? Hefur liðið
hætt að drekka upp til hópa?
Hafa neðstu stæðurnar komið
með meira af bjór og brennivíni
en vanalega? Eða er þetta
kannski dæmi um hin versn-
andi lífskjör sem landsbyggðin
og þá sérílagi byggðarlög sem
byggja allt sitt á sjávarútvegi búa
við í dag?
Hvar minnka menn við sig ef
það er ekki í ósómanum?
Mylluhóll var stækkaður um daginn, eins og sjá má af
myndinni. Er hann nú mun eingangraðri frá Hallarlundi en
áður var og er það mörgum kráaraðdáendum sjálfsagt léttir.
Síldarsöltun er nú lokið hér í Eyjum og var saltað í 15.000 tunrur í þetta sinn.
Merkur áfangi
Sunnudaginn 11. nóvember
s.l., var afganginum af skolpinu
sem frá bænum kemur og runnið
hefur í höfnina, loks hleypt út
fyrir Eiði.
Það kom fram i ræðu Sig-
urðar Jónssonar, forseta bæjar-
stjómar, að útfallspípumar frá
bænum em þrjár. Ein er vestur á
Hamri og rennur 10% af skolp-
inu þar á haf út. Eldri pípan á
Eiðinu leiddi 45% af skolpinu út
fyrir og nú þegar nýja pípan er
komin í notkun er semsagt allt
skolp komið eins langt frá
Auglýs-
ingar
Fréttir og Jóhann Jónsson (Jói
Listó) hafa tekið upp samstarf í
auglýsingagerð. Mun Jói vera
með vinnuaðstöðu á Fréttum og
jafnframt vera auglýsendum
Frétta innanhandar við gerð
auglýsinga í blaðið.
Vonumst við til að þetta
samstarf sé öllum í.hag, aug-
lýsendum jafnt sem okkur.
Ritstjórn.
byggðu bóli og hægt er að koma
því^á hagkvæman hátt.
Utfallspípan, sem liggur út af
Eiðinu, er nú 27 metra löng og
70 sentimetrar í þvermál. Næsta
sumar er ætlunin að lengja hana
um 16 metra.
„Það má alveg koma fram að
við greiðum 10% ofan á það
loðnuverð sem samþykkt var í
haust,“ sagði Bernharð Ingi-
mundarsson hjá Fiskimjölsverk-
smiðju Vestmannaeyja í samtali
við Fréttir um það hversu mikið
væri búið að bræða hjá þeim.
í gær var búið að taka á móti
9.778 tonnum hjá FIVE. Þar af
áttu heimabátar þennan hlut:
Óstaðfestar frétiir, en nokkuð
áreiðanlegar herma að hafin sé
útgáfa á nýju vikublaði hér í
Vestmannaeyjum.
Abyrgðarmaður og ritstjóri
blaðsins mun vera Ragnar Sig-
urjónsson og mun blaðið víst
heita Litla - Fréttablaðið.
I byrjun mun blaðið koma út í
Kostnaður við verkið mun
vera kominn upp í 30 millj-
ónir króna.
Vestmannaeyjabær er eina
sveitarfélagið á landinu, sem
hefur komið upp dælustöð í
þeim tilgangi einum að hreinsa
skolp á sómasamlegan hátt út úr
bænum.
Sighvatur Bjarnason, 3.528 t.,
Gullberg, 1826 t., ísleifur, 1409
t., Kap II, 12911., Huginn, 1120
t. og Sæbjörg 602 tonn.
í FES er búið að taka á móti
11.000 tonnum af loðnu til
bræðslu, en þar fékkst ekki
uppgefið hvort um einhverja
aukagreiðslu væri að ræða fyrir
loðnuna.
2000 eintökum á fimmtudögum
og vera fjórar síður að stærð, en
brotið mun eitthvað minna en
gengur og gerist hér í Eyjum.
Eitt viðtal mun vera í hverju
blaði, svo og íþróttafréttir og
spurning dagsins.
Við bjóðum Ragga Sjonna
velkominn í slaginn.
FTVE borgar meira
Nýtt vikublað?
Það hefur
aldrei verið
meira, úrvalið
af lömpum,
Ijósum og skermum.
Otrúlegt en satt!
Allir eru að tala um hátt vöruverð í Eyjum.
Við eigum kristallampa:
Kjarna
verð:
Nú skaltu líta inn! 1760
Reykjavíkur-
verð:
2200
egi 1