Akureyri - 19.07.2012, Síða 8
8 19. JÚLÍ 2012
Hugspretta virkjuð
við Glerárgötuna
Það þekkja vafalaust flestir þá
undarlegu tilhneigingu hug-
mynda að verða að engu. Þær
sem slá í gegn eiga það þó allar
sameiginlegt að hafa orðið að
veruleika, hvort sem þær eru
stórar eða litlar.
Ljósmyndari Akureyrar-
blaðsins fangaði eina hugmynd á
viðkvæmu stigi þar sem lista-
maður varpaði hugmyndum úr
myndvarpa eins og þeim sem
dönskukennarar fortíðarinnar
notuðu til að kenna íslendingum
að þekkja falska vini frá þeim
sem eru vinir í raun.
AÐSEND GREIN
Æskulýðsmót á Akureyri
Æskulýðsstarf Akureyrarkirkju
stendur fyrir 70 manna fjölþjóð-
legum ungmennaskiptum dagana
20. – 30. júlí. Yfirskrift ungmenna-
skiptanna er“ European Youth and
the Icelandic Forces of Nature“ og
er styrkt af Evrópu unga fólksins
en Evrópa unga fólksins er íslenska
heitið á Ungmennaáætlun Evrópu-
sambandsins, Youth in Action, og
er samstarfsverkefni ESB, Mennta-
og menningarmálaráðuneytisins og
UMFÍ. Áætlunin veitir styrki fyrir
ungt fólk á aldrinum 13-30 ára og
þá sem starfa með ungu fólki.
Ungmennaskiptin í Akureyrar-
kirkju eiga sér þó orðið langa sögu
en Svavar Alfreð Jónsson, sóknar-
prestur Akureyrarkirkju, hóf sam-
starf ´99 við þýskan prest í Bochum,
Ortwin Pflaging á grundvelli æsku-
lýðsstarfs um árleg ungmennaskipti.
Núna er svo komið að um ræðir
samskipti fjögurra Evrópulanda og
hefur verið styrkt af ungmennaá-
ætlun Evrópusambandsins - Youth
in Action Program um nokkurt skeið.
Í vetur hlaut æskulýðsstarf kirkj-
unnar stóran styrk til að halda þessi
ungmennaskipti, með þeim stærstu
sem EUF styrkir eða fyrir 60 ung-
menni, sjálfboðaliða og hópstjóra,
alls 68 manns. Þetta eru ungmenni úr
lúterskum kirkjum í Eistlandi, Finn-
landi, Þýskalandi og Íslandi.
Við verðum núna hér dagana
20. – 30. júlí, byrjum í Kirkjumið-
stöðinni við Vestmannsvatn og end-
um í heimagistingu á Akureyri en
lokadagurinn 30. júlí verður stór í
Akureyrarkirkju en þá höldum við
upp á fjögurra ára afmæli þessa
stóra verkefnis (áður voru það bara
Akureyrarkirkja og Þýskaland,
tveggja þjóða samstarf). Þar mun-
um við vera með sýningu á því sem
við höfum verið að gera, ásamt því
að vera með eitthvað skemmtilegt
frá ungmennaskiptum liðinna ára og
hefst viðburðurinn kl.17.00 í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju. Við mun-
um í þessu verkefni skoða íslenska
náttúru og munum halda umhverfis-
þing og skoða virkjanir, óbeislaða
náttúru og hafið sem sérstakt nátt-
úruafl. Að auki sem þetta verkefni
er á kirkjulegum grunni, þá fjöllum
við um Guð og sköpunina og veltum
fyrir okkur náttúruöflunum og guð-
fræðinni. Förum að Kárahnjúkum, í
hvalaskoðun, skoðum Kröfluvirkjun
og Dettifoss svo eitthvað sé nefnt.
Markmiðið er að reyna að ná fram
hjá ungmennunum þeirra skoðun-
um og þeirra gagnrýna sjónarhorni
á þessar stóru virkjanaframkvæmdir
gegn óbeislaðri náttúrunni og hennar
kröftum.
Þetta verkefni er gríðarlega
mikil vægt og hefur mikið forvarnar-
gildi og hefur að auki gert það kleift
að það er öflugt ungmennastarf
menntaskólanema í Akureyrar-
kirkju, eitthvað sem hefur átt erfitt
uppdráttar í kirkjum landsins og
þessir unglingar hafa m.a haldið tvö
ár í röð styrktarbingó fyrir Mæðra-
styrksnefnd fyrir jólin. Algjörlega
frábærir unglingar á Akureyri. Á
lokadeginum okkar í Akureyrar-
kirkju kemur líka Svavar Knútur
trúbador og heldur styrktartónleika
í kirkjunni fyrir æskulýðsstarfið og
eru þeir tónleikar kl. 21.00 og kostar
1000kr inn. Hvetjum fólk til að koma
og leggja okkur lið : ) ! a
Sunna Dóra
Möller
Við munum í þessu
verkefni skoða ís-
lenska náttúru og
munum halda um-
hverfisþing og skoða
virkjanir, óbeislaða
náttúru og hafið