Akureyri - 09.01.2014, Blaðsíða 13
139. janúar 2014
AÐSEND GREIN BENEDIKT SIGURÐARSON
Nýtum PISA „fárið“ til að
bæta uppeldi og árangur
Býsna mikið fjaðrafok er haft uppi
varðandi niðurstöður úr PISA 2012
– bæði varðandi lesskilning (einkum
drengja) og líka um stærðfræðiþekk-
ingu 15 ára barnanna okkar. Gert er
mikið úr því hversu neðarlega Ís-
land skorar í samanburði – undir
OECD meðaltalinu - og langt fyrir
neðan „afburðaprófþjóðir“
SA-Asíu. Kannski örlítil
huggun - sem lítið er gert
úr - að nágrannaþjóðir
skruna niður í samanburði
og jafnvel Finnland er ekki
lengur alveg á toppnum.
Það er talsvert uppnám í
nágrannalöndum ekki síst í
Svíþjóð þar sem menn setja
á sama tíma alvarleg spurningarmerki
við afleiðingar sveitarfélagavæðingar
skólanna – og mjög aukinn árangurs-
mun milli skóla. Danir og Norðmenn
og Bretar kvarta líka og markaðsöflin
mala til dýrðar SA-Asíu „undrunum“...
Ekki ný tíðindi
Það eru ekki nein ný tíðindi að árang-
ur drengjanna okkar hafi farið frekar
niður á síðustu árum - jafnvel með
auknum hraða. Stelpurnar spjara
sig hins vegar jafnvel sífellt betur í
gegn um framhaldsskólann. Slakur
lesskilningur eykur á árangursleysi
strákanna og tíðni alvarlegra athygl-
is- og ofvirkni vandamála er líklega
nánast óumdeilanlega vaxandi. Við
fengum þetta ekki neitt sérstaklega
staðfest með PISA – við áttum að
vita það og allir sem ekki hafa lokað
augum vissu þetta.
Álitsgjafar og fjölmiðlar rægja
skólakerfið og kennara og „sölu-
menn“ birtast á tröppunum í því
skyni einu að bjóða sínar eigin „upp-
skriftir“ og kokkabækur – þar sem
foreldrum er ætlað að kaupa dýru
verði og með ærinni vinnu „annað
tækifæri“ með leiðréttingum eða
öðrum lausnarorðum.
Samfélagið okkar hefur verið
að breytast mjög mikið á síðustu
kannski 25 árum. Nýja tæknin er að
verða allsráð - símar og tölvutækni,
myndmál og prívatisering á öllum
sviðum. Við höfum farið í gegn um
hverja bóluna á eftir annarri með
tilheyrandi sveiflu sem tekur neyslu
og hraða framyfir hófsamari gildi.
Mannúð og góð uppeldisfræði á í vök
að verjast í orðræðu fjölmiðlanna
og í skólakerfinu hafa illa grunduð
rekstrarviðmið tekið yfir og hrakið
metnaðarfulla fagmennsku og rann-
sóknarþekkingu af vettvangi.
Svo kom Hrunið stóra . . . . og
enginn treysti sér til að standa gegn
„niðurskurðinum“...
Kerfið kerfisbundið laskað
Skólakerfið hefur látið undan síga
fyrir einfölduðum kröfum um hag-
kvæmni og sparnað. Á sama tíma
hefur orðið gríðarleg kostnaðar-
þensla m.a. í rekstri húsnæðis sem
sjálfvirkt dregur til sín peninga - með
„fasteignafélagavæðingu“ sveitarfé-
laganna og alls konar auknum mið-
lægum kostnaði. Rekstrarumsvif
Sambands íslenskra sveitarfélaga
eru stjórnsýsluleg óhæfa og milli-
stjórnendaþensla í sveitarfélögum og
innan grunnskólanna leiðir ekki til
bættrar kennslu og aukinnar þjón-
ustu við börn og foreldra.
Pólitísk afskipti sveitarstjórnar-
fulltrúa - með Excel sér til ráðgjafar
- geta auðveldlega slegið niður frum-
kvæði og árangursmetnað skóla-
stjóra og lamað vinnugleði kennara.
Alltof margir kennarar
eru því miður í hálfgerðri
gíslingu sinna eigin stéttar-
félaga – undirlagðir af inni-
haldsrýrri kröfu um að hver
og einn skuli fremur vera
sérfræðingur í háskóla-
kennslugreinum – heldur
en að vera sérfræðingur í
kennslu- og uppeldi barna
- enda hálf skammarlegt að vera
bara „umsjónarkennari“ með engan
status.
Dekur við einkalausnir sem
hæpaðar eru upp – án þess að fyrir
liggi grundvallarþekking og rann-
sóknarreynsla. Þar sem foreldrar
velja börnum sínum skóla og bakka
þau upp á ´“íhaldssömum forsend-
um“ er eðlilegt að mældur árangur
í PISA verði yfir meðaltali. Ekkert
skal ég hafa á móti því að skólar njóti
stuðnings frá Viðskiptaráði og mark-
aðselítunni - eins og Hjallastefna og
Hraðbraut, en dekur við slíkar lítið
grundaðar tískubólur er líklegt til að
draga kraftinn frá nýsköpun í þágu
fjöldans.
Samfélagslýðræði útrýmt
Þráseta Sjálfstæðisflokksins í
menntamálaráðuneytinu (og stutt
viðkoma elítu-stefnu VG) hef-
ur reyndar leitt til þess að samfé-
lagsfræði og lýðræðislega virkum
kennsluháttum hefur meira og minna
verið útrýmt sl. 30 ár og íslenski
skólinn sker sig algerlega frá öðrum
vestrænum skólakerfum að því leyti
að hér fær umhverfismennt verulega
takmarkað (eða alls ekkert) rými.
Þrátt fyrir að framhaldsskólinn
hafi ekki enn verið styttur í 3 ár að
kröfu Sjálfstæðisflokksins þá hefur
samt sem áður hellingur af efni úr
abstrakt stærðfræði menntaskólans
verið troðið niður í grunnskólann.
Ekki vegna þess að reynsla eða rann-
sóknir hafi leiðbeint okkur þar um
- þvert á móti eru greindarpróf og
skólaþekking sammála um að alltaf
verði umtalsverður hluti hvers ár-
gangs algerlega ófær um að ná tök-
um á óhlutstæðum viðfangsefnum
jafnvel 17-18 ára. NEMA MEÐ
GRÍÐARLEGRI ÞJÁLFUN OG
ENDURTEKNINGUM.
Það er einmitt þarna sem lýðræð-
islaus samkeppnisþjóðfélög SA-Asíu
koma sterkust inn. Með endurtekn-
ingum og þrotlausri þjálfun þar sem
skólinn er ekki bara eina 9 mánuði
frá kl 8-15. Nei samkeppnisinnval,
með eftirskóla, og heimanámi og
helgarskóla og sumarnámskeiðum
– og hvergi gefið eftir eina stund.
Þessa tegund uppeldis mundi mega
flokka sem þrælabúðir, en þannig
skapast árangur í samanburðarpróf-
um sem setja íslenska fjölmiðla og
besservissera bloggheimsins á annan
endann.
Singapúr, Sjanghaí-Kína og
Hong-Kong geta ekkert kennt okkur
um lýðræði og frelsi eða hamingju-
samt uppeldi og nú er svo komið að
elítuháskólar Vesturheims eru jafnvel
farnir að forðast slíka „toppnem-
endur“ sem hafa lært eins og vélar
en kunna ekkert til mannlegra sam-
skipta eða skilnings á raunveruleika
sem er utan námsgreinanna þeirra.
Og ekki styttist meðaltími til
lokaprófs í framhaldsskólanum með
þessum flutningi framhaldsskólaefn-
is niður í grunnskólann hjá okkur -
og ekki fjölgar þeim drengjum sem
blómstra í gegn um skólana – þvert
á móti og þar er tölfræðin ólygin.
Vandi landsbyggðardrengja
Auðvitað er árangur íslenskra nem-
enda of slakur; einkum drengjanna
á landsbyggðinni og víst að athyglis-
vandi og ofvirkni verður sífellt tíðari.
Stórfjölskyldur heilla byggðarlaga
eru undirlagðar af lestrarvanda og
við bætist að 20-30% barnanna í
einstökum skólum á foreldra af er-
lendu bergi - ótalandi og ólesandi á
íslensku. Við virðumst illa kunna að
skapa árangur í lestrarnámi við þær
aðstæður að börnin lesi ekki heima
og að enginn geti lesið með þeim eða
fyrir þau.
Auðvitað má spara helling í um-
gjörðinni um skólastarfið – lækka
framkvæmdakostnaðinn við alltof
dýrar skólabyggingar og taka út
sjálfvirkan mokstur á peningum frá
skólunum til fasteignafélaga sveitar-
félaganna. En hvergi hefur verið sýnt
fram á að það sé skynsamleg aðferð
við niðurskurð að fjölga í bekkjum
og námshópum og auka á erfiði um-
sjónarkennaranna.
Skólastjórn verði bætt
Auðvitað er bæði sanngjarnt og rétt
að gera metnaðarfullar kröfur til
skólanna og til þess að við skilum
fleira fólki – hamingjusömu til ár-
angurs fyrir framtíðina. Það gerum
við hins vegar ekki með illa grunduð-
um ásökunum, upphróunum og róg-
burði - og ekki með einkavæðingu
í anda Hjallastefnunnar eða Hrað-
brautar.
Það gerum við ekki með því að
reyna að innleiða þrælabúða-uppeldi
í anda prófþjóðanna í SA-Asíu.
Við gerum það miklu fremur með
því að bæta stjórnun skólanna og
bæta nýtingu bestu þekkingar og
reynslu þeirra afburða skólastjóra og
farsælu kennara sem ennþá finnast
innan íslenska skólakerfisins.
Við gerum það með því að styðja
foreldra í uppeldishlutverkum sínum
og með því að krefja skólastjóra og
kennara um að leiðbeina foreldrum
og kalla þá til samábyrgðar og til
liðs við börnin og árangur þeirra og
hamingju.
Við megum ekki láta „lukku-
riddara og besservissera“ – villa
okkur sýn eina ferðina enn – í þeim
vafasama tilgangi að maka sinn eigin
krók á kostnað heildarinnar.
Við eigum þvert á móti að kapp-
kosta „að koma öllum til nokkurs
þroska“ – og til aukins þroska, því
bættur árangur eins tekur ekkert frá
öðrum. Mestur ávinningur er að því
að bæta árangur þeirra sem eru langt
undir getu – og það verður alltaf lé-
leg nýting á fjármunum að auka við
kostnað hjá þeim sem eru núþegar að
skila góðum eða toppárangri.
Samkeppnisskólinn eða for-
réttindaskólinn er reistur á fölskum
forsendum - með það eitt að mark-
miði að skammta fjölda þeirra sem
komast í fremstu röð.
Fjárfestum meira í framtíð barn-
anna í uppeldi þeirra og árangri og
í hamingju fjölskyldnanna – með
því bætum við líf allra kynslóða á
Íslandi. Það er efnahagslega ábyrg
stefna og líkleg til að gera Ísland
eftirsóknarverðan bústað til langr-
ar framtíðar.
(millifyrirsagnir eru blaðsins)
Benedikt
Sigurðarson
Alltof margir kennarar eru því
miður í hálfgerðri gíslingu sinna
eigin stéttarfélaga
SLAKUR LESSKILNINGUR eykur á árangursleysi strákanna og tíðni alvarlegra athyglis- og ofvirkni vandamála er líklega nánast óumdeilanlega vaxandi. Við fengum þetta ekki
neitt sérstaklega staðfest með PISA – við áttum að vita það og allir sem ekki hafa lokað augum vissu þetta. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Völundur