Akureyri


Akureyri - 09.01.2014, Blaðsíða 8

Akureyri - 09.01.2014, Blaðsíða 8
8 9. janúar 2014 VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA? Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu- póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856. LOF OG LAST VIKUNNAR LOF fá Norðlendingar fyrir tillitssemi í umferðinni að undanförnu, segir kona á Brekkunni í bréfi til blaðsins. Hún segist ítrekað hafa orðið vitni að því að fólk hafi hjálpað öðrum að komast leiðar sinnar. Akureyringar láti sig ekki muna um að stökkva út úr eigin bílum til að ýta öðrum bílum ef þurfi, bílum sem t.d. sátu fastir eftir mikla snjóa um jólin. Þetta segir konan til fyrirmyndar... LOF fær Oddur Helgi Halldórsson blikksmiður og bæjarfulltrúi fyrir að ræða af hreinskilni flughræðslu sína og hvernig hann með aðstoð góðs fólks vann loks bug á henni. Þetta segir lesandi sem hafði samband. Oddur hefur bæði stigið fram í Morgunblaðinu og Akureyri vikublaði og sagt sögu sína. Þá þykir lesanda sem grínistinn Baddi rauði á flugteríunni hér fyrir norðan hafa farið á kostum í viðtali við Akureyri vikublað um sama mál... LAST fá þeir sem bera ábyrgð á því að ekki hefur verið greiðfært milli leiða í kirkjugarðinum á Akureyri. Þetta segir karl sem hringdi í blaðið og sagðist hafa reynt að fara um garðinn með aldraðri móður sinni milli jóla og nýárs en heita hafi mátt ófært suma daga um hátíðirnar fyrir þá gesti í kirkjugarðinum sem komnir voru af léttasta skeiði. Í huga karlsins kosti hvorki mikinn pening né tíma að fara á traktor og ryðja gönguleiðir innan garðsins. Það sé ekki gaman fyrir fólk sem hyggst minnast ástvina sinna látinna að hverfa frá vegna sparnaðar í kerfinu. „Þessi mál verði að vera í lagi og þá einkum á stórhátíðum,“ segir karlinn... LAST fá þeir sem kunnu ekki að kveikja almennilega í áramótabrennunni á Akureyri, segir karl sem fór með fjölskyldu að brennunni. Til þess var tekið, segir maðurinn, að eldur hafi „aðeins logað öðru megin í brennunni og virðist sem tæknilegur framkvæmdafeill og skortur á olíu, hafi valdið,“ segir maðurinn. Engum varð þó kalt og stemmning var góð – spurning um að fixa smáatriðin fyrir næstu brennu... LOF fær björgunarsveitin Súlur fyrir frábæra flugeldasýningu í lok brennu... AKUREYRI VIKUBLAÐ 1. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2013 ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is. FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193. RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING 13.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND Hin kristnu gildi Gagnrýnin hugsun tryggir framfarir. Gagnrýnin fréttamennska veitir valdi aðhald. Birting upp- lýsinga getur kostað sársauka og átök en gagnsæi er eitt lykilhugtak góðra samfélaga. Þegar hvatt er til samstöðu um áramót verður að vera ljóst hverjir hafa hag af samstöðunni. Tökum ímyndað dæmi: Samherji ákveður að allir starfsmenn fyrirtæksins skuli kjósa Sjálfstæðisflokkinn og vera andvígir veiðigjöldum. Um þetta er haldinn fundur og gefið í skyn að þeir sem ekki hlýði þessu geti átt von á að missa vinnuna. Vitaskuld er ekki líklegt að í veruleikanum gæti slíkt gerst en í þágu samstöðu innan fyrirtækis og mikilvægis þess að Samherji geti áfram gert vel við starfsfólk sitt er hugmyndinni um skoðanafrelsi fórnað. En hvort skiptir meira máli, mannréttindi starfsfólks eða klink í pyngju? Þorskastríð voru í áramótaávarpi forseta Íslands nefnd sem sigrar sem spruttu upp af samstöðu þjóðar- innar. Þó vita ýmsir sem hafa kynnt sér söguna að þorskastríðin unnust vegna þess að Íslendingar voru ekki sjálfstæð þjóð þegar barist var um þorskinn. Gögn benda til að hin fífldjörfu þorskastríð hafi unnist vegna þess að Íslendingar voru vegna hagsmuna Bandaríkja- manna undir verndarvæng ameríska hersins þegar við hjóluðum í Bretana. Vegna hernaðarmáttar Banda- ríkjanna hafi Bretar kosið að lúffa í stað þess að sigla okkur ekki í kaf. Ekki vegna þess að hér væri svo góð samstaða meðal tækifærissinnaðra Íslendinga heldur vegna risans í vestri. Hér á landi er margt sem þarf að gagnrýna og ræða opinskátt. Ekki er hægt að vænast samstöðu meðal þjóðar þegar vaxandi misskipting auðs er staðreynd, engin sátt er um nýtingu auðlinda og fleira mætti nefna. Það er ekki fjölmiðlum að kenna að Íslendingar séu sundraðir eftir eitt helsta réttlættisbrot sem framið hef- ur verið á okkur, hrunið og eftirmál þess. Lykilástæða ólgunnar er að hér hefur engin iðrun enn átt sér stað meðal helstu sökudólga hrunsins. Án iðrunar skapast ekki tóm fyrir nýtt upphaf í kjölfar trúnaðarbrests. Fáir höfuðgerendur hafa axlað ábyrgð á því tjóni sem varð og bitnar daglega á öllum almenningi, t.d. með mjög löskuðu velferðarkerfi. Sá stjórnmálaflokkur sem ber mesta sök á hruninu, nánast brenndi eigin sann- leiksskýrslu á báli á landsfundi í stað þess að læra af henni, gera hana opinbera og reyna að fá nýtt umboð hjá almenningi til að njóta trausts meðal almennings. Slíkt hlýtur að valda gremju þeirra sem telja sig lifa eftir gömlum gildum því skilboðin eru m.a. andstæð þeim biblíuboðskap sem Sjálfstæðisflokkurinn segist halda mjög upp á. Hvað varð t.d. um þá góðu speki að við eigum öll að koma eins fram gagnvart öðrum og að við viljum að aðrir komi fram gagnvart okkur? Og hvað varð um boðskap um samhjálp og jöfnuð? Til hinna minnstu systra og bræðra? Hvar eru hin kristnu gildi í framkvæmd sem stundum er talað fyrir? Eru þau í orði – en ekki á borði? Björn Þorláksson Var boðið að halda jól með akureyrskri fjölskyldu Franskir ferðamenn sem gistu á Akur- eyri Backpackers um jólin fengu draum sinn uppfylltan, að kynnast íslensku jólahaldi með persónulegum hætti. Þeir ákváðu að láta reyna á hvort akureyrsk fjölskylda myndi bjóða þeim heim á aðfangadag og leyfa þeim að upplifa íslenskar jólavenjur. Stilltu sér upp á Glerártorgi með skilti þar sem spurt var hvort einhver vildi bjóða þeim heim um jólin. Og viti menn. Akureyrsk fjölskylda, barnafólk, gaf sig fram og aðfangadegi var reddað. Nutu Frakkarnir gestrisni þeirra, snæddu andabringur og upplifðu norðlenska jólasiði. En sagan er ekki öll sögð. Svo vel fór á með Frökkunum og akureyrsku fjöl- skyldunni að frönsku ferðamönnunum var líka boðið í fjölskylduboð á annan í jólum. Það tókst að sögn heimildar- manna blaðsins ekki síður vel en sam- sætið á aðfangadag. Eru allir sagðir hafa grætt á samskiptunum og mýta hrakin. Getur einhver haldið því fram í ljósi þessarar jólasögu að Akureyringar séu lokaðir?! a UPP UPP MÍN SÁL OG ALLT MITT GEÐ! Völundur

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.