Akureyri - 08.05.2014, Síða 4
4 17. tölublað 4. árgangur 8. maí 2014
Bærinn fái að njóta veiðigjalda
Dögun, stjórnmálasamtök um rétt-
læti sanngirni og lýðræði, hefur lagt
fram stefnuáherslur. Dögun bauð
fram til þingkosninga árið 2013 án
þess að fá þingmann en brýtur blað
með framboði í sveitarstjórnarkosn-
ingum nú með þátttöku sinni á Akur-
eyri. Fimm efstu sætin skipa:
» Hlín Bolladóttir kennari
» Inga Björk Harðardóttir
gullsmiður
» Erling Yngvason tannlæknir
» Michael Jón Clarke
tónlistarmaður
» Sigurbjörg Árnadóttir ráðgjafi.
Í áherslupunktum framboðsins
kemur fram að Dögun skilgreini sig
hvorki til hægri né vinstri í hefð-
bundnum skilningi en leggi af stað
með gleði og bjartsýni að leiðarljósi.
Meðal stefnumála eru að sveitar-
félög njóti auðlindagjalda af sjáv-
arútvegi og orkuvinnslu og með
hlutdeild sveitarfélaga/landshluta
í eðlilegri skattheimtu á ferðaþjón-
ustuna, sem sé stærsta vaxtargrein
samtímans. M.a. með því að uppræta
svarta starfsemi, hækka fasteigna-
gjöld á gistiíbúðum/frítímaíbúðum
og taka skatt af skemmtiferðaskipa-
gestum og farþegaflutningum.
Gjaldfríar skólamáltíðir verði
innleiddar í öllum skólum og unnið
verði að því að öll börn fái aukin
tækifæri til að leggja stund á íþróttir,
listir og árangursmiðaða tómstund –
án verulegrar gjaldtöku - og í nánu
samhengi við skóladaginn.
BÆJARSTJÓRN AKUREYR-
AR BEITI SÉR FYRIR:
Flugsamgöngum til Evrópu allt árið
– með því að flugvellir NA-lands verði
markaðssettir og reknir í sérstöku
félagi
Leitað verði sátta um hagkvæma
staðsetningu flugvallar í eða við
Reykjavík – t.d. á Álftanesi - og horf-
ið af braut illdeilna milli Reykjavík-
ur og landsbyggðarinnar. Sérstakt
átak þarf til að tryggja hagkvæmni
og virka samkeppni í rekstri innan-
landsflugs þannig að miðaverð lækki
umtalsvert og geti nýst almenningi
til hagsbóta.
Hafin verði enduruppbygging á
Sjúkrahúsinu á Akureyri og snúið af
braut niðurskurðar og skerðingar á
þjónustu í landshlutanum. Fjölga
þarf sérgreinum og bæta aðstöðu og
tækjakost þannig að unnt verði að
ráða fleiri sérfræðinga og tryggja að
sjúkrahúsið standi undir nafni sem
varasjúkrahús fyrir LSH. Kalla þarf
um leið eftir beinni aðild bæjaryfir-
valda og sveitarstjórna í landshlut-
anum að skipulagi heilbrigðisþjón-
ustunnar í heild.
Unnið verði að víðtæku fjöl-
þjóðlegu samráði um þjónustu og
björgunarmiðstöð fyrir hafsvæðið
til Grænlands og til NA af landinu –
og varanleg staðsetning þyrlusveitar
og strandgæslu á Akureyri og við
Eyjafjörð
Margfölduðum stuðningi við
nýsköpun og fjárfestingar í vaxtar-
greinum og þekkingariðnaði.
Sérstakt átak verði gert til að
tryggja áframhaldandi aðgengi að
sérfræðilæknum í barna- og ung-
lingageðlækningum. -BÞ
Engin reiðhjól í strætó
Frá og með 1. maí sl. var hætt að
flytja reiðhjól með strætó á Akureyri.
Stefán Baldursson, forstöðumaður
Strætisvagna Akureyrar, segir að
þetta sé fyrst og fremst gert vegna
þess að reiðhjólin hafi valdið öðrum
farþegum umtalsverðum óþægind-
um enda hafi oft og tíðum verið
heldur of mörg reiðhjól í hverri ferð.
Einnig virðist nokkuð hafa verið um
það að hjólafólk á öllum aldri geri
sér það til skemmtunar að renna nið-
ur brekkurnar á stálfákum sínum en
taki síðan strætó til baka upp eftir
og fari jafnvel nokkrar þannig ferðir
á dag. Þetta háttarlag veldur öðrum
ama og því er Strætisvögnum Akur-
eyrar nauðugur sá kostur að hætta
að veita þessa þjónustu.
Hörð viðbrögð hafa þegar orðið
við þjónustuskerðingunni. Á frétta-
vefnum akureyrivikublad.is lýsa
margir bæjarbúar óánægju með að
geta ekki lengið kippt reiðhjólum
með um borð í strætó. Orðið aftur-
för kemur það ítrekað fram og ljóst
að ákvörðunin vekur afar blendin
viðbrögð. Valgarður Júlíusson segir:
„Þetta er aðför að börnum, ungling-
um og eldra fólki... Eða réttara sagt:
ÖLLUM.“ -BÞ
Tungumálaerfiðleikar hafa skapað
vanda við gangagerð í Vaðlaheiði
Innlendum starfsmönnum í
Vaðlaheiðargöngum hefur hríðfækk-
að m.a. vegna samskiptavanda sem á
sér rætur í tungumálaerfiðleikum og
vinnuaðstæðum. Starfsmaður segir
að aðeins fjórir Íslendingar vinni nú
inni í fjallinu á vegum verktakans
Ósafls við gerð ganganna.
Ein rök þess að fara í Vaðlaheiðar-
göng var að göngin yrðu innspýting
fyrir atvinnulíf í samdrættinum í
kjölfar efnahagshrunsins. Hilm-
ar Brynjólfsson vélamaður sagði í
Akureyri vikublaði fyrir skemmstu
að hann hefði hætt störfum eftir
að sprengt var inni í göngunum án
þess að hann fengi viðvörun. Það
var í þriðja skipti sem sprengt var
á sama tíma og Hilmar var inni í
göngunum. Hilmar sagði ýmsan ann-
an vanda steðja að starfsmönnum.
Fleiri starfsmenn sem blaðið hefur
rætt við hafa tekið undir það.
Fyrirtækin Ósafl er meginverk-
taki fyrir evrópska fyrirtækið Marti
og ÍAV. Verkkaupi er Vaðlaheiðar-
göng. Valgeir Bergmann, fram-
kvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga,
kannast við að til ágreinings hafi
komið. Hann telur að brugðist hafi
verið við umkvörtunum, m.a. í því
skyni að auka öryggi starfsmanna.
Eitt af því sem starfsmenn hafa
nefnt er að sjóðheitt vatn hafi skapað
mikinn vanda fyrir starfsmenn inni í
fjallinu. M.a. hefur Akureyri vikublað
upplýsingar um að tekist hafi verið á
um hver eigi að greiða fatnað starfs-
manna vegna hitans. Starfsmönnum
fannst svo heitt og erfitt að vinna þar
sem hitinn var mestur að þeir vildu
vera berir að ofan. Því var hafnað
vegna kröfu um að starfsmenn bæru
endurskinsmerki í þágu öryggis. Þá
fóru starfsmenn fram á að vinnu-
veitandi keypti létt föt á þá. Því var
hafnað. Valgeir Bergmann segir að ef
það hefði orðið mjög kalt í göngun-
um og menn hefðu þurft að kaupa
kuldagalla þá væri vart verkkaupa
að standa straum af slíkum kostnaði.
Starfsmaður sem ekki vill kom
fram undir nafni af ótta við af-
leiðingar segist ósáttur við lítil
viðbrögð verkalýðsfélaga og Vinnu-
eftirlits þrátt fyrir tíðar kvartanir
frá starfsmönnum. Vandi hafi ítrekað
verið hundsaður með þeim afleiðing-
um að starfsmenn með sjálfsvirðingu
hætti störfum. Eftir að undirverk-
tökum hafi verið falið að taka eina
vakt yfir af Ósafli séu aðeins fjórir
íslenskir starfsmenn Ósafls eftir inni
í göngunum.
„Þar sem þessar stofnanir, verka-
lýðsfélögin og Vinnueftirlitið, hafa
sofið á verðinum er svo komið að
íslenskir starfsmenn eru að hverfa
frá þessu verkefni. Það koma er-
lendir starfsmenn í okkar stað og
mér finnst til háborinnar skammar
hvernig þetta hefur þróast,“ segir
starfsmaðurinn.
Spurður um þetta atriði segir Val-
geir Bergmann að hann sé sammála
því að of mikil starfsmannavelta hafi
einkennt framkvæmdina.
Einn heimildarmanna blaðsins
segir að að íslenskum starfsmönnum
finnist erfitt að vinna undir erlendum
yfirmönnum. Ekki síst vegna margs
konar tungumálaerfiðleika sem hafi
verið vandamál frá því að sprengi-
vinna hófst.
Gert er ráð fyrir að göngin verði
tilbúin í árslok 2016. Kostnaður er
áætlaður 11,5 milljarðar króna.
Ekki náðist í talsmann Ósafls við
vinnslu fréttarinnar. -BÞ
Skárri tittlingaskítur
fyrir norðan en sunnan
Akureyrarbær vill koma á framfæri
vegna frétta um að tímakaup í vinnu-
skólanum sé tittlingaskítur sem ekki
auki sjálfsvirðingu ungmenna, að
tímakaup með orlofi í vinnuskólan-
um á Akureyri sumarið 2013 hafi þó
verið hærra en í flestum sambærileg-
um sveitarfélögum. Þannig fengu til
að mynda 16 ára unglingar á Akur-
eyri 609 kr. á tímann og áttu kost á
vinnu í 144 klukkustundir á meðan
16 ára unglingar í Reykjavík gátu
unnið í 105 klukkustundir og buðust
aðeins 582 kr. í tímakaup.
Kópavogur greiðir vinnuskóla-
börnum bestu launin. -BÞ
ÍSLENDINGUM SEM STARFA inni í Vaðlaheiði hefur fækkað nokkuð, skýring er sögð
tungumálavandi milli íslenskra starfsmanna og erlendra. Ein rökin fyrir gerð ganganna
voru að þau væru staðbundin atvinnuskapandi aðgerð á krepputímum.
HLÍN BOLLADÓTTIR KENNARI leiðir
listann. Völundur