Akureyri - 08.05.2014, Side 20
20 17. tölublað 4. árgangur 8. maí 2014
Persónulegt landslag
Síðastliðinn mánudag var opnuð samsýn-
ing meir en 40 listamanna í Verksmiðjunni
á Hjalteyri, þar sem áður var iðnaðarstarf-
semi. Akureyri vikublað slóst í för með þeim
Dominuque og Sébastien og fékk að njóta
leiðsagnar frönsku myndlistarkennaranna
um ganga Verksmiðjunnar. Með te í bolla
gengu þeir milli verkanna og ræddu hug-
myndir nemenda jafnt sem fullskapaðra lista-
manna. Þegar blaðið spurði hvernig mætti
lýsa tilgangi svona fjölbreyttrar samsýningar
í einni setningu var svarið að eitt markmið
myndlistarkennara væri að laða fram hið
persónulega í myndlistarnemanum, öll verk-
in væru einhvers konar sýn eða hugmynd þar
sem væri samsömun milli verksins og lista-
mannsins. Landslag, umhverfi, sjálfbærni,
húmor og kreddur koma þar m.a. við sögu.
„Æfin endist varla til að fanga landslagið
umhverfis listrýmið en við höfðum viku til
þess að finna okkar stað á svæðinu. Það virð-
ist hvorki styttra, né síður spennandi,” segja
þeir frönsku félagar. Innblástur sýningarinnar
er sóttur í ýmisskonar landslag í nágrenni
Verksmiðjunnar og er forvitnilegt að kynnast
framandi sjónarhorni á þá náttúru sem okkur
Íslendingum er kunn.
Eitt listaverkanna í Verksmiðjunni gerir
grín að því að aðeins sé hægt að kaupa áfengi í
einni búð á Akureyri og ekki alla daga vikunn-
ar! Furðuleg staðreynd í huga Frakka. Önnur
verk spyrja spurninga um samband hins nátt-
úrulega og ónáttúrulega þegar kemur að gróðri
og grasi. Strigafrumskógur er enn eitt verkið,
myndlist þar sem gestir sýningarinnar verða
hluti strigans þar sem þeir ganga um undir og
milli verkanna, ómálaðra. Ljós og skuggar, lykt
af löngu horfnum fiski sem yfirskrift sýningar
er kennd við og stundum hljóðmyndir munu
enn auka galdurinn í listsmiðjunni.
Ævintýrið má rekja til þess að Gústav
Geir Bollason sem er nokkurs konar skapari
átaksins hitti annan frönsku prófessoranna í
Frakklandi fyrir tveimur áratugum. Afrakstur-
inn er fjölþjóðleg sköpunarsmiðja sem standa
mun fram 20. maí um helgar kl. 14:00 -17:00,
á öðrum dögum eftir samkomulagi.
Sjálfur vill Gústav Geir ekki gera mikið úr
eigin þætti en viðurkennir að síðustu vikur hafi
verið annasamar enda nokkurt umfang fólgið í
því að hafa tugi erlendra gesta við listsköpun
hér fyrir norðan og augljóslega gjaldeyrisskap-
andi þótt enginn á Hjalteyri nenni að ræða
peninga. Nóg er nú samt um það...
TEXTI Björn Þorláksson
MYNDIR Völundur Jónsson
HÚMOR OG GALSKAPUR einkennir sum verkanna, önnur eru alvarlegri.SÉBASTIEN MONTÉRO: FINNST Verksmiðjan á Hjalteyri vera magnað rými.
STRIGAFRUMSKÓGUR. Gestir sýningarinnar verða hluti verksins þar sem þeir ganga um undir og milli striganna, ómálaðra.