Akureyri - 12.06.2014, Blaðsíða 1
22. tölublað 4. árgangur 12. júní 2014
VI
KU
BL
AÐ
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata, HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7, AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
MIKIÐ ÚRVAL VARAHLUTA
Sími: 535 9000www.bilanaust.is
3 ÁRA
ÁBYRGÐ
flóra
Hafnarstræti 90 / 600 Akureyri / 6610168 / floraflora.is / opið alla daga kl. 10-18
Kristín Gunnlaugsdóttir / ný og nýleg verk / 14. júní - 17. ágúst 2014
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
2 0 1 4
NÝR MEIRIHLUTI var kynntur á Akureyri í vikunni. Myndin er tekin við það tækifæri. Nýr formaður bæjarráðs er Matthías Rögnvaldsson,
Guðmundur Baldvin Guðmundsson verður forseti bæjarstjórnar en Logi Már Einarsson verður formaður stjórnar Akureyrarstofu. Völundur
VMA-kennari móti múslimum
Elías Þorsteinsson sem opinberlega
hefur blandað sér í hóp þeirra sem
vara við „múslimavæðingu“ Íslands er
kennari við Verkmenntaskólann
á Akureyri. Á kennurum hvíl-
ir ábyrgð og skylda til að tjá
sig með ábyrgum hætti. Skóla-
meistari VMA hyggst aðhafast
vegna ummæla Elíasar.
Nokkur hatursummæli um
múslima voru tekin saman á
herdubreid.is eftir að umræða
um moskur stóð hæst vegna
„herbragðs“ Framsóknarflokks-
ins eins og fyrrum formaður flokksins,
Jón Sigurðsson, kallaði útspilið um
moskuumræðuna. Þar má m.a. lesa eft-
irfarandi ummæli Elíasar sem kennir
vélfræði við VMA: „Á meðan múslim-
ar haga sér eins og staðreindin [svo] er,
þá á ekki að byggja Mosku. Konur eru
lítillækkaðar. Í sumum ríkjum
fá þær ekki einu sinni bílpróf
eða almenn réttindi. Þekki þetta
af eigin raun. Þeir sem vilja
Múslimavæða Ísland vita ekki
hvað þeir eru að kalla yfir sig.
Mæli með því að Múslimasinnar
skoði sögu og tilurð múslima-
trúar og taki afstöðu eftir það.
Múslimar eiga ekki heima á Ís-
landi.“
Blaðið spurði Elías hvort hann væri
rasisti. Hann svaraði ekki fyrirspurnum.
Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari
VMA, var spurður hvort skólinn myndi
grípa til viðbragða vegna ummæla El-
íasar. Hann segist ekki geta haft áhrif
á það sem starfsmenn skólans tjái sig
um á opinberum vettvangi nema um
ræði málefni skólans. En VMA sé skóli
án aðgreiningar; hvort sem varði kyn,
litarhátt, þjóðerni, stjórnmálaskoð-
anir, kynferði, námsgetu eða trú. „Ég
mun ræða þetta atvik við umræddan
kennara þegar hann kemur úr sumar-
leyfi.“
Lögmenn sem blaðið hefur rætt við
telja að vammleysiskrafa ætti að eiga
við um kennara í framhaldsskólum. Ef
ummæli Elíasar séu ekki beinlínis brot
á lögum kunni þau a.m.k. að vera brot á
góðum siðum.
-BÞ
ELÍAS
ÞORSTEINSSON