Akureyri - 12.06.2014, Page 2
2 22. tölublað 4. árgangur 12. júní 2014
Kynntu þér BELLAVISTA á www.gengurvel.is
Á H R I F A R Í K
LEIÐ TIL AÐ VIÐHALDA
G Ó Ð R I S J Ó N
BELLAVISTA er eitt öflugasta fæðubótarefnið á
markaðnum fyrir sjónina. Náttúrulegir plöntukjarnar
ásamt vítamínum og steinefnum sem gegna mikil-
vægu hlutverki í að viðhalda góðri og skarpri sjón
langt fram eftir aldri. Í BELLAVISTA er hátt hlutfall
af bláberjaþykkni og lúteini.
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
Bjart yfir þessum meirihluta
„Það er bjart yfir bænum í dag og
verður bjart næstu fjögur árin á
meðan þessi meirihluti starfar,
sagði Guðmundur Baldvin Guð-
mundsson, verðandi for-
maður bæjarráðs þegar
fulltrúar L-listans, Sam-
fylkingar og Framsóknar-
flokks kynntu nýjan
meirihluta í bæjarstjórn
Akureyrar.
Á blaðamannafundi
sl. þriðjudag kom fram
að Matthías Rögnvalds-
son verður forseti bæjar-
stjórnar en Guðmundur
Baldvin formaður bæj-
arráðs. Samfylking fær
umboð til að stýra fjór-
um nefndum af átta og verður Logi
Már Einarsson formaður Akur-
eyrarstofu. Hann boðar breytingar.
Til skoðunar er að kljúfa atvinnu-
málin burt frá stofunni. Þá fái Ak-
ureyrarstofa aukið kynningarhlut-
verk. „Við munum tefla fram nýrri
hugsun og því besta liði sem í boði
er,“ sagði Logi Már. Kært
virtist með bæjarfull-
trúunum sex sem munu
mynda meirihlutann
næstu fjögur árin.
Nokkuð var rætt
hvers vegna þessir þrír
flokkar hefðu sniðgengið
Sjálfstæðisflokkinn, sig-
urvegara kosninganna.
Fram kom að Logi Már
og Guðmundur Baldvin
höfðu horft til samstarfs
fyrir kosningar, enda ríki
gott traust milli þeirra.
Matthías Rögnvaldsson hjá L-list-
anum sagði vilja kjósenda L-listans
fremur þann að vinna með Fram-
sókn og Samfylkingu en Sjálfstæð-
isflokknum. „Ég held þetta verði
mjög farsæl ákvörðun, við leggjum
áherslu á að við erum eitt lið.“ Þá
kom fram á fundinum að sjálfstæð-
ismenn hefðu horft til meirihluta-
samstarfs með Framsókn og Bjartri
framtíð.
Oddvitar flokkanna segja að
eitt brýnasta forgangsmálið nú við
stjórnun Akureyrar sé að koma
heilsugæslumálum Akureyringa í
lag. Eins og Akureyri Vikublað fjall-
aði um í síðustu viku er ófremdar-
ástand innan Heilsugæslustöðvar
bæjarins. M.a. verða þingmenn
kjördæmisins kallaðir á fund til að
ræða framtíð heilbrigðismála sem
og fleiri mál sem brenna á fólki, s.s.
rafmagnsflutninga.
FÉLAGSLEGT RÉTTLÆTI
18. júní næstkomandi verður
meirihlutasamningur formlega
kynntur en í málefnaskrá segir
m.a.:
„Við leggjum áherslu á félagslegt
réttlæti og viljum berjast fyrir því
allir njóti mannréttinda án tillits
til kynferðis, trúarbragða, skoð-
ana, þjóðernisuppruna, kynþáttar,
litarháttar, efnahags, ætternis og
stöðu að öðru leyti.Þetta ætlum við
að hafa að leiðarljósi í öllum okkar
störfum.
Við viljum virkja íbúa til lýð-
ræðislegrar þátttöku og gera
stjórnsýsluna skilvirkari m.a. með
aukinni rafrænni stjórnsýslu, ein-
faldari og skýrari verkferlum og
virkara samtali við bæjarbúa.
Lögð verður aukin áhersla á
langtíma áætlanagerð um örugga
og ábyrga fjármálastjórn og for-
gangsröðun verkefna. Við viljum
auka fjölbreytni atvinnulífsins og
munum beita okkur fyrir frekari
samvinnu skóla og atvinnulífs. Þá
ætlum við að bæta samstarf og
samráð við starfsfólk sveitarfélags-
ins, fjölga tækifærum til starfsþró-
unar og öðrum leiðum sem efla þá
í starfi.
Við teljum nauðsynlegt að auka
fjármagn til uppbyggingar skóla
og velferðarmála og við fjárhagsá-
ætlanagerð munum við miða að því
að styrkja þessa þætti rekstursins
ásamt því að jafna stöðu bæjarbúa.
Bæjarfélag sem býr yfir fjöl-
breyttu atvinnulífi, góðum skólum,
líflegri menningu og öflugu íþrótta-
lífi er líklegt til að laða að sér nýtt
fólk og halda í þann mannauð sem
fyrir er. Við ætlum að leggja okkar
af mörkum til að Akureyri megi
áfram styrkjast og dafna.“
Eiríkur Björn Björgvinsson
verður áfram bæjarstjóri.
-BÞ
Áfangasigur í baráttunni um
fóstur barnanna
Foreldrar barnanna sem dæmd
voru í 12 mánaða fóstur hjá vanda-
lausum 9. maí sl í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra segja að áfanga-
sigur hafi unnist í baráttu þeirra
við barnaverndaryfirvöld. Eins og
Akureyri vikublað hefur fjallað
um er úrskurður barnaverndaryfir-
valda sem staðfestur var fyrir dómi
umdeildur. Foreldrar hafa sagt að
betra væri að fóstra börnin hjá
ættingjum en vandalausum eins og
úrskurðað var um. Eldra barnið, 14
ára gamall drengur strauk úr fóstr-
inu og er nú með samþykki barna-
verndaryfirvalda kominn suður
til Reykjavíkur til náins ættingja
annars foreldranna. Vonir ættingja
og foreldra barnanna standa til að
systir drengsins, sem er níu ára, fái
einnig flutning burt af fósturheim-
ili sínu til bróður síns svo systkinin
geti verið saman.
Hæstiréttur mun á næstu mánuð-
um úrskurða hvort barnaverndaryf-
irvöld hafi brotið meðalhófsreglu í
málinu en löglært fólk hefur sagt að
svo kunni að vera. Ýmsir hafa stig-
ið fram og talið vafasamt að dæma
börn í fóstur í t.d. trássi við vilja
yfirgeðlæknis á Akureyri. Börnun-
um hefur samkvæmt þeim skjölum
sem Akureyri vikublað hefur undir
höndum aldrei stafað ógn af móð-
ur sinni og þau vilja búa hjá henni,
auk þess sem faðirinn vill hafa þau.
Hermt hefur verið að nýgreind ein-
hverfa annars barnsins og andlegir
erfiðleikar móður hafi mætt for-
dómum og skilningsleysi hjá barna-
verndaryfirvöldum. Eitt meginum-
kvörtunarefni yfirvalda er dræm
mæting barnanna tveggja í skóla.
Samkvæmt heimildum blaðsins
hefur kvörtunarbréfum rignt inn á
Barnaverndarstofu vegna málsins.
-BÞ
BÆJARFULLTRÚARNIR SEX SEM skipa munu meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar 2014-2018. Í minnihluta sitja þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks, einn frá VG og einn frá Bjartri framtíð. Völundur
EIRÍKUR BJÖRN
BJÖRGVINSSON