Akureyri - 26.06.2014, Qupperneq 4
4 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014
Steinsmiðja Akureyrar • Glerárgötu 36 • S: 466 2800 • sala@minnismerki.is • www.minnismerki.is
Opnunartímar: Mán. - fim. kl. 13:00-18:00, föst. kl. 13:00-17:00
Frábært úrval af minnismerkjum!
Fagmennska • Gæði • Gott verð • 25 ára reynsla
Vandræði í veitingageira
Veitingageirinn sker sig frá annarri
atvinnustarfsemi á Norðurlandi
hvað varðar vandamál og brot
á launþegum, segir Björn Snæ-
björnsson, formaður Einingar-Iðju.
Sem dæmi hafa atvinnurekendur
reynt að láta ungmenni í sumar-
störfum vinna frítt til prufu, nokkr-
ar ábendingar um slíkt hafa komið
upp í sumar.
„Ég vil ekki segja hvort þetta
séu stærri eða minni fyrirtæki, en
það er víða sem atvinnurekendur
í veitingageiranum reyna að koma
sér hjá því að borga fólki laun. Þess
vegna stöndum við þessa dagana
fyrir sérstakri kynningu á réttind-
um launafólks,“ segir Björn.
Formaður Einingar-Iðju telur að
of mikil ævintýramennska einkenni
a.m.k. hluta ferðaþjónustunnar hér
á landi. Atvinnurekendur undirbúi
ekki hlutina sem skyldi þegar þeir
ákveði að stofna ný fyrirtæki. „Það
er ábyrgð að hafa fólk í vinnu, oft er
það ekki vegna ásetnings sem hlutir
eru ekki í lagi heldur er kunnáttu-
leysi um að kenna. Þetta er kapp-
hlaup um kúnnana og mér finnst of
auðvelt að stofna fyrirtæki og fara
út í bissness. Sérstaklega gleymist
að horfa til réttinda starfsmanna,
það er of algengt að menn telji það
sem dæmi aukaatriði að standa skil
á launum.“
Björn segist þó hafa tilfinningu
fyrir því að svartar greiðslur séu
heldur á útleið í ferðaþjónustunni
sem sé fagnaðefni. Enda séu vanda-
málin mörg þar sem fólk í svartri
vinnu hafi staðið uppi slyppt og
snautt eftir áföll. „Við vitum nokk-
ur dæmi um þetta og þess vegna er
mikilvægt að fólk sé meðvitað um
mikilvægi þess að greiða skatta og
skyldur.“
Björn segir að fjöldi vandamála
í ferðaþjónustu sé mun meiri en
nemi umfangi greinarinnar, það
er fjölda allra starfa. „Mér finnst
þeir hjá Ríkisskattstjóra hálfsof-
andi, þeir þyrftu meira fjármagn til
að sinna auknu eftirliti. Miðað við
ávinninginn sem er í boði að upp-
ræta svartar greiðslur, finnst mér
sem hvatinn fyrir auknu eftirliti
ætti að vera fyrir hendi.“ -BÞ
Beint flug hafið
Flugfélagið Greenland Express
stefndi að því hefja millilandaflug
um Akureyri í gær. Samkvæmt til-
kynningu verður flogið á sunnudög-
um og miðvikudögum. Heimahöfn
félagsins er í Álaborg og þess vegna
verður flogið þaðan til Kaupmanna-
hafnar og áfram til Akureyrar.
Flugvélin sem nýtt verður er
nýuppgerð Fokker 100. Vélin tekur
100 manns í sæti. Félagið hefur yfir
tveimur flugvélum að ráða og getur
því tekið að sér leiguflug fyrir fyrir-
tæki, ferðaskrifstofur eða
Starfsmannafélög. „Ef áhugi er
fyrir fótboltaferð til Englands eða
skíðaferð til Frakklands í vetur þá
eru lausnirnar hjá okkur.“
Greenland Express bindur mikl-
ar vonir við Akureyri sem fram-
tíðaráfangastað, segir í tilkynningu.
Bókanir eru á vefsíðunni green-
landexpress.com
Frekari upplýsingar má finna á
fésbókarsíðu félagsins .facebook.
com/GreenlandExpress
Þeir sem vilja fá nánari upplýs-
ingar geta notað netfangið:sales@
greenlandexpress.dk a
HJÓLAR HRINGINN
Mikil hjólakeppni stendur nú yfir þar sem hjólaður er hringurinn í kring-
um landið í þágu góðra áheita. Gunnar Svanbergsson, Akureyringur og
sjúkraþjálfari, er einn norðlenskra fulltrúa í keppninni. Stefnt var að því
að Gunnar hjólaði í gegnum Akureyri í gær um svipað leyti og blaðið fór í
prentun. Gunnar hvetur fólk til að heita á lið í keppninni til styrktar tækjum
á bæklunardeild LSH.
„Þetta verða 40-50 lið. Við stefnum á að rubba hringnum af á tveimur
sólarhringum. Já, við ætlum að vinna þetta, nei það verður ekkert sofið,“
segir Gunnar léttur í samtali við Akureyri Vikublað.
Um tíu eru í hans liði og alltaf verður einhver úr liðinu á fullu á hjóli.
Bílar fylgja hjólreiðaköppunum með mat og annað. Vegalengdin er alls tæpir
1400 kílómetrar. „ Já ég hlakka til, ég hef ekki farið hringinn á hjóli áður.“
Gunnar er 49 ára gamall og mælir mjög með hreyfingu. Hann segist
vera í fínu formi, hafi mikið notað fjallahjól en götuhjólreiðar séu nýlegt
sport há honum. „Þetta er frábær leið fyrir okkur gömlu,“ segir Gunnar
sem m.a. hefur fjallað um mikilvægi hreyfinar í þáttum á Rás 2. -BÞ
Átta hættir vegna óánægju
Átta starfsmenn hafa hætt störf-
um á sömu deildinni á öldr-
unarheimilkinu Hlíð á Akureyri
vegna vandamála í samskiptum
við forstöðumann. Þetta staðhæf-
ir Fréttablaðið. Halldór Sigurður
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Öldrunarheimila Akureyrar, segir í
Fréttablaðinu að forstöðumaðurinn
hafi þrátt fyrir þetta fullt traust til
starfa.
Áður hefur Akureyri vikublað
fjallað um ýfingarnar á Hlíð og við-
brögð við undirskriftalista þar sem
lýst var vantrausti á forstöðumann-
inn. Þá eru sumir starfsmenn afar
ósáttir við að undirskriftalisti hafi
verið látinn hverfa og telja starfs-
menn sem blaðið hefur rætt við að
taka þurfi vandann fastari tökum.
-BÞ
BJÖRN SNÆBJÖRNSSON, formaður
Einingar-Iðju
MÉR FINNST RIGNINGIN góð, sungu börn og fullorðnir á afar vel heppnaðri sólstöðugleði um helgina þegar Akureyrarlaugin
var opin fram til klukkan tvö á laugardagsmorgun. Fjöldi gesta nýtti sér tækifærið og var góður rómur gerður að fram-
kvæmdinni. Rigning breytti því ekki að fjöldi fólks söng og dansaði, plötusnúður keyrði áfram stuðdagskrá, fríar pylsur, ís og
drykkir voru í boði og skemmtiatriði. Vonast er til að framhald verði á. BÞ