Akureyri


Akureyri - 26.06.2014, Blaðsíða 22

Akureyri - 26.06.2014, Blaðsíða 22
22 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014 Smíðum sérlega vandaðar bílskúrs- og iðnaðarhurðir eftir málum. Þær eru léttar og auðveldar í notkun. Einangrun er á öllum köntum. Fáanlegar í mörgum stærðum og gerðum, með eða án glugga. Einnig fáanlegar með mótordrifi. Vagnar & þjónusta ehf Tunguháls 10, 110 Reykjavík Sími: 567­3440, Fax: 587­9192 BÍLSKÚRA- OG IÐNAÐARHURÐIR Skrímslin koma! Upp úr tjörninni við Minjasafnið á Akureyri og garði þess spretta nú skrímsli sem eiga fætur sínar og hala að rekja til landakorta sem eru á sýningunni Land fyrir stafni- Ís- landskort 1547-1808. Skrímslin ætla að ganga á land æi dag, fimmtudaginn 26. júní kl. 20 við Minjasafnstjörnina á Akureyri. Þar sem sæskrímsli eiga erfitt með að hreyfa sig á landi verð- ur þeim hjálpað síðasta spölinn á Minjasafnið þar sem þau taka sér nú bólfestu á sýningunni. Gengið verður í hersingu við hljómfagra tónlist með  dans- andi hreyfilistafólki , blásurum, trumbuleikurum og ýmsum smá- skrímslum. Þessi skrímslalæti eru unnin í samstarfi við Skapandi sumarstörf Akureyrarbæjar, trumbuleikarana Jón Hauk og Hjört, Volla blásara, hreyfilistafólkið Camilo, Urði og Birnu.  Anne Balanant sér um tón- list en Brynhildur Kristins klæðir skrímsli sem Anna Richards hefur taumhald á. Þórarinn Blöndal er yfir- sæskrímslahönnuður verkanna á sýningunni. Brostu framan í skrímslin í dag kl. 20 á Minjasafninu á Akureyri, segir í tilkynningu frá Minjasafn- inu. Enginn aðgangseyrir. Fylltur silungur Þú getur bæði grillað eða ofnsteikt fiskinn, eða hrein- lega bundið hann með sláturgarni saman og smjörsteikt á pönnu. FYLLTUR SILUNGUR FYRIR 2 » 2ja punda silungur » 3 msk smjör » 1 laukur, fínsaxaður » 1 hvítlauksrif, fínsaxað » 125gr sveppir, sneiddir » 30gr brauðmylsna » rifinn börkur af 1 lime » 3 vorlaukar, saxaðir » 1 msk söxuð mynta » 40gr furuhnetur » 1 msk ólífuolía Bræddu smjörið í pönnu, steiktu lauk, hvítlauk og sveppi í 3-4 mín- útur þar til laukurinn er gullin. Kryddaðu til með salti og pipar. Láttu allan vökva renna af blöndunni í pönnunni. Sveppir eiga til að gefa frá sér mikinn vökva þegar þeir eru steiktir ef þeir hafa ekki nægilegt pláss á pönnunni. Ef þú vilt stökka steikta sveppi þá verðurðu að steikja þá á pönnu þannig að þeir snertist ekki. Þegar þú ert búin/n að láta vökvann renna af sveppunum þá færirðu blönduna í skál, blandar brauðmylsnu, limeberki, vorlauk, mynto og furuhnetunum saman við. Blandaðu vel saman. Settu fyllinguna innan í fiskinn og lokaðu honum með tannstöngl- um eða bittu saman með slátur- garni. Reyndu að koma allri fyll- ingunni fyrir. Vefðu fiskinn inn í álpappír og steiktu á heitu grilli í 4-5 mínútur á hvorri hlið. Berðu fram með nýjum kartöfl- um og brakandi fersku salati. a MATARGATIÐ FLEIRI UPPSKRIFTIR Á WWW.ALLSKONAR.IS Helga Kvam allskonar.is Norðlenska fær gullmerki Norðlenska hlaut nýverið gullmerki Jafnlaunaúttektar fyrirtækisins PricewaterhouseCoopers. „Þetta eru gleðileg tíðindi og staðfestir að hjá Norðlenska er jafnrétti kynj- anna haft að leiðarljósi við launa- ákvarðanir. Niðurstaðan hvetur okkur til að vinna áfram með sama hætti,” segir Jóna Jónsdóttir, starfs- mannastjóri Norðlenska. PwC gerði jafnlaunaúttektina að beiðni Norðlenska. Launagögn voru greind m.a. með tilliti til aldurs, starfsaldurs, menntunar og eðli starfa. Niðurstaðan leiddi í ljós að óútskýrður launamunur kynj- anna hjá Norðlenska er einungis 2,7%. Því hlýtur fyrirtækið gull- merkið, sem áður var nefnt, en til að hljóta þá viðurkenningu má óút- skýrður launamunur að hámarki vera 3,5%. Þess má geta að skv. könnunum er launamunur kynj- anna á almennum vinnumarkaði talsvert meiri. „Okkur langaði að vita hvort ein- hver óútskýrður launamunur væri á milli kynja í fyrirtækinu. Hann er 2,7% og hallar reyndar á kon- ur, en munurinn er miklu minni en gengur og gerist og gæti átt sér eðlilegar skýringar því það hefur ekki verið rannsakað. En við erum mjög ánægð með útkomuna og hún hvetur okkur áfram - stefnan er sú að enginn kynbundinn launamunur sé í fyrirtækinu,” segir Jóna. a

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.