Akureyri


Akureyri - 26.06.2014, Qupperneq 12

Akureyri - 26.06.2014, Qupperneq 12
12 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014 Þetta mál var þaggað í hel Erling Ingvason tannlæknir frambjóðandi og fyrrum sjómaður er áhugamaður um þjóðmál, kvótann, helmingaskiptareglur, góð stjórnmál og vond. Hann ræðir skoðanir sínar og reynslu tæpitungulaust í viðtali. Greinir m.a. frá því sem gerðist á sjónum eftir að kvótinn komst á. „Þá hófst þetta yfirgengilega brottkast,“ segir hann. Sjómenn sem vitnuðu um máttu þola atvinnu- missi og talsmenn útgerðarmanna sögðu þá ljúga. „Þetta mál var þaggað í hel.“ Erling, í mínum huga ertu tann- læknirinn sem enginn þekkti í tengslum við þjóðmálaumræðu en skömmu eftir hrun steigstu fram á ritvöllinn og hefur æ síðan sagt skoðun þína tæpitungulaust og kannski má segja með vaxandi þunga. Hvað olli þessari breytingu? „Þar kemur eitt og annað til, maður gengur á sínum vegi og held- ur að allt sé eins og best verður á kosið, svolítið eins og Birtíngur Voltaires. Maður klárar sitt nám, eignast fjölskyldu og mæðist í mörgu, reynir að “vinna mikið og vera rosa hress” eins og minni kyn- slóð karlmanna var innprentað sbr. spurningarnar tvær; “ertu ekki hress?” og “er ekki nóg að gera?” Rétta svarið við þeim er; “jú, ég er alveg eldhress og það er brjálað að gera”. Þú kannast við þetta. Grímulaus lygi Það gerist kannski á svipuðum tíma að sprungur koma fram í glansmynd þessa fullkomna heims og það fór að myndast ögn meiri tími í lífi mínu til að setjast niður, horfa til baka, gaumgæfa og pæla í samhengi hlutanna. Eitt hafði til dæmis angrað mig alla tíð, þegar ég var ungur maður var ég töluvert til sjós á tíu ára tímabili frá 1981-1990 en kvótakerfi var innleitt í sjávarút- vegi á miðju tímabilinu. Það hefur verið sagt æ síðan að “umgengnin um auðlindina” hafi batnað mikið með tilkomu þess. Ég, hins vegar, var þarna og sá með eigin augum að þetta var grímulaus lygi. Brottkast á fiski var nær óþekkt fyrir tíma kvótans en varð alveg hreint voða- legt með tilkomu hans. Eitthvað svipað gerðist þegar bankarnir voru einkavæddir og strákar fengu að kasta fjöreggi þjóðarinnar á milli sín eftirlitslaust ...og misstu það náttúrulega. Þá var öllu snúið á hvolf, hvítt sagt svart og svart hvítt. Eins myndi ég vilja nefna meðferðina á vini mínum, Grími Björnssyni, jarðfræðingi, í sambandi við skýrsluna hans um Kárahnjúka, hann var þaggað- ur niður, það var fyrir neðan allar hellur. Eins vildi ég nefna stuðn- inginn við innrásina í Írak og margt fleira. Það kom semsagt að því að mér ofbauð og í stað þess að bölva í hljóði þá steig ég bara fram þó mér sjálfum finnist það hafa verið með afar hógværum hætti. Ég ætla ekki að fara að liggja á skoðunum mín- um af þeirri einu ástæðu að einhver kynni að stökkva upp á nef sér.“ Staða fjórflokksins enn of sterk Þú hefur boðið þig fram fyrir Dögun, bæði til Alþingis og eins fyrir bæjarstjórnarkosningar á Ak- ureyri nýverið. Dögun hefur ekki hlotið nægt brautargengi til að fá fulltrúa. Hver er þín skýring á því? Ertu að berja höfðinu við steininn? ERLING INGVASON TANNLÆKNIR OG FRAMBJÓÐANDI. Við höfðum 300 þúsunda króna “budget” fyrir kosn- ingarnar hér á Akureyri. Það er sama upphæð og hver verktaki var að leggja í kosningasjóð Sjálfstæðisflokks- ins fyrir kosningarnar 2006, það er ójafn leikur.

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.