Akureyri


Akureyri - 26.06.2014, Blaðsíða 16

Akureyri - 26.06.2014, Blaðsíða 16
16 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014 G r e i f i n n V e i t i n g a h ú s | G l e r á r g ö t u 2 0 | 6 0 0 A k u r e y r i | w w w . g r e i f i n n . i s Pantaðu á greifinn@greifinn.is eða í síma 460 1600 Ættarmót | Brúðkaup | Stórafmæli | Starfs mannahóf Hvar sem er - hvenær sem er ! Nýjir spennandi seðlar ! Verð frá kr. 1990 Tvívirkni í Deiglunni Laugardaginn 28. júní opnar GÓMS tvíeykið sýninguna Tví- virkni Í Deiglunni. GÓMS skipa þeir Georg Óskar og Margeir Dire sem hafa bundist sjónrænum bönd- um í einlægu bræðralagi og birtast hér “dreggjar karlmennskunnar á sinn fegursta hátt” eins og segir í tilkynningu. Í verkum tvíeykisins má glögg- lega sjá að allar hugmyndir hafa ákveðið vægi og hlaðast saman á einum myndfleti sem endurspegl- ar andrúmsloft og undirliggjandi samhengi hlutanna. Útkoman er að- ferðafræði sem kallast „absorbism“ eða „óbeislað hugmyndaflæði“. Á sýningunni renna tveir hugarheimar saman í einn undir einkunnarorðun- um „Gera meira, blaðra minna!“ Sýningin stendur til 31. ágúst og er aðgangur ókeypis. a Barokkhátíð hefst á Hólum í dag Barokkhátíðin á Hólum í Hjaltadal verður haldin í sjötta sinn dagana 26.-29. júní. Aðalgestur hátíðarinn- ar að þessu sinni er breski fiðluleik- arinn og prófessorinn Peter Han- son sem heldur námskeið og stýrir Barokksveit Hólastiftis á lokatón- leikum hátíðarinnar sunnudaginn 29. júní kl. 14. Þrír fyrirlestrar verða haldnir á hátíðinni, þrennir hádegistónleikar, kammersveitin Reykjavík barokk heldur tónleika, Jón Þorsteinsson heldur söngnám- skeið og Ingibjörg Björnsdóttir kennir barokkdans. Hátíðin hefst með hádegistón- leikum í Hóladómkirkju kl. 12.30 í dag, þar sem leikið verður á virginalinn sem Barokksmiðjan eignaðist í fyrra og ýmis ein- leikshljóðfæri. Þar eru á ferð fé- lagar í kammersveitinni Reykja- vík barokk en sú sveit heldur síðan tónleika klukkan 20 sama kvöld í Hóladómkirkju. Ingimar Ólafsson Waage listmálari held- ur fyrirlestur um list barokktím- ans en hann hefur nýlega gefið út kennslubók í listasögu ásamt Halldóri Birni Runólfssyni list- fræðingi. Í dag hefst líka söng- námskeið Jóns Þorsteinssonar sem haldið er fyrir opnum dyr- um og dansnámskeið Ingibjargar Björnsdóttur sem er sömuleiðis opið til þátttöku fyrir alla sem vilja. Barokksveit Hólastiftis kemur saman til æfinga, einnig lítil danshljómsveit og allt iðar af lífi á Hólum. Hádegistónleikar föstudagsins bera yfirskriftina Bach og Händel á bassann. Þar leika þeir Þórir Jó- hannsson kontrabassaleikari og Eyþór Ingi Jónsson organisti kl. 12.30 í Hóladómkirkju. Klukkan 15.30 flytur Jóhanna Halldórs- dóttir, söngkona og söngkennari, verklegan fyrirlestur um líkamann sem hljóðfæri. Um kvöldið verða tónleikar þar sem nemendur Jóns Þorsteinssonar koma fram en líka barokk-quiz þar sem glímt verður við ýmsar spurningar um barokkið, allt í léttum dúr. Þrír ungir söngvarar sem koma til hátíðarinnar frá Hollandi halda söngtónleika í Hóladómkirkju kl. 12.30 laugardag. Síðdegis kl. 15.30 er svo á dagskrá fyrirlestur Ragnheiðar Traustadóttur forn- leifafræðings þar sem hún fer yfir það hvað Hólarannsóknin segir okkur um barokktímann á Hól- um, hin mikla fornleifarannsókn sem gerð hefur verið á Hólum frá aldamótum. Um kvöldið verður hátíðarkvöldverður í Hólaskóla, dansaður barokkdans við undir- leik lítillar danshljómsveitar og almenn gleði. Barokkmessa verður í Hóla- dómkirkju kl. 11. Jón Aðalsteinn Baldvinsson biskup prédikar og Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup þjónar fyrir altari. Barokksveit Hólastiftis leikur og fleira tónlistarfólk tekur þátt í tón- listarflutningi. Klukkan 14 lýkur Barokkhátíðinni á Hólum 2014 með hátíðartónleikum Barokksveitar Hólastiftis í Hóladómkirkju. Þar uppsker sveitin því sem sáð hefur verið undanfarna daga og Peter Hanson leiðir sveitina. Flutt verð- ur barokktónlist og jafnvel laum- ast aðeins í örlítið yngri tónlist, t.d. Mozart. a Styttist í landsmót harmonikkuunnenda Landsmót Harmonikkuunnenda verður haldið að Laugum í Reykja- dal dagana 3. til 5. júlí 2014. Þetta er mikill viðburður að sögn Pálma H. Björnssonar og er reiknað með 700 til 900 manns ef vel tekst til. „Þarna verða tónleikar alla dagana frá há- degi og fram á kvöld og svo dansleikir á eftir fram á nótt. Það kemur gesta- spilari frá Noregi, Hávard Svensrud, þekktur spilari og  snillingur. Svo verður sér dansaball á föstudags- kvöldinu undir stjórn danskennara og fleira og fleira,“ segir Pálmi. a

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.