Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1992, Side 3
i fúlustu alvöru
Það hefur orðið að samkomu-
lagi að Garri stingi niður penna
af og til í FRÉTTIR um þetta og
hitt sem honum liggur á hjarta.
Nú á þessum árstíma væri því
líklega eðlilegast að skrifa um
sinubruna því fólk virðist ekki
halda vatni, hvorki hér eða í
Reykjavík yfir sinubrununum og
skiptast menn í tvo hópa yfir
gagnsemi eða þá skaðsemi sinu-
brennslu. En Garri ætlar ekki að
skrifa um sinubruna að þessu
sinni. heldur atvinnumál og mór-
al í Vestmannaeyjum.
Það eru komin nokkuð mörg
ár síðan Garri fluttist hingað til
Eyja og aldrei hefur hann fyrr
fundið fyrir þeirri tilfinningu að
íbúarnir hér séu uggandi um sinn
hag. vegnaatvinnumála. Hér hef-
ur alltaf verið nóg að gera, at-
vinnulausir uppi á landi hafa
getað komið hingað ef eitthvað
hefur á bjátað með atvinnu þar.
Að sumarlagi hafa börn brott-
fluttra Eyjamanna jafnan getað
komið hingað og fengið vinnu í
frystihúsi. En nú er annað uppi á
teningnum. Hver skyldi hafa trú-
að því fyrir tveimur þremur árum
að atvinnuleysi yrði skráð í Eyj-
um og það á hávertíð? Og það
bæði sjómenn og verkafólk. Er
nema von að fólk sé uggandi um
sinn hag?
Kvóti, kvóti, æpa menn og
hrópa, rétt eins og hægt sé að
skella allri skuldinni á kvótamál.
Vissulega hafa takmarkanir á
fiskveiðum sitt að segja en ekki
allt. Þetta er ekki í fyrsta sinn á
þessari jarðkringlu sem atvinnu-
leysi gerir vart við sig og þetta er
ekki fyrsti staðurinn.
Þar sem samdráttur á borð við
þennan hefur átt sér stað, hafa
menn yfirleitt brugðist við á
tvennan hátt. Annars vegar að
láta hlutina ganga at sjálfu sér,
gráta gamla góða tíma og hugsa
sem svo að við þessu sé ekkert að
gera. Þetta sé eins og hver önnur
bölvun sem lögð sé á lýðinn og
því verði að hlýta. Hins vegar
hafa menn snúið við blaðinu,
hætt að gráta og barma sér og
fundið nýjar leiðir til að mæta
vandanum, lagt á hilluna úrelta
atvinnuvegi og fundið sér eitt-
hvað nýtt að gera.
Og nú kann einhver að spyrja
hvort eitthvað slíkt sé hægt að
gera í bæ eins og Vestmannaeyj-
um þar sem allt hefur snúist um
fisk. Og af hverju ekki? Það sem
vantar, er hugsandi fólk með
hugmyndir. Og númer eitt er að
yfirvöld, þá sérstaklega bæjaryf-
irvöld, séu með á nótunum og
jákvæð, helst í fararbroddi. Og
þar skortir nokkuð á hjá okkur.
Stjórnendur okkar eru allt of
daufir og bundnir við gamlan
hugsunarhátt.
Það er ekki nóg að stilla upp
einhverri nefnd, gefa henni nafn-
ið Atvinnumálanefnd, setja í
hana eitthvert skrípahö og varpa
svo öndinni léttar.
Ut úr slíku kemur ekkert að
gagni, í mesta lagi hægt að hlæja.
Slíka nefnd þýðir ekki að skipa
eftir pólitískum litarhætti, helst
mætti enginn pólitíkus vera í
henni. Pólitíkusareigaþaðnefni-
lega til að hugsa í fortíðinni og
það gengur ekki í svona nefnd.
Og meðan fólk er svo jarð-
bundið því að ekkert sé hægt að
gera í Vestmannaeyjum annað
en að veiða fisk og verka fisk, þá
verður hér áfram atvinnuleysi
hangandi yfir meðan dregur úr
afla. Það ætti að hlusta á þá aðila
sem koma fram með hugmyndir
sem ekki snúast eingöngu um fisk
og hætta að hlæja að þeim.
Garrí.
Grill - Grill - Grill
Erum með allt á qrillið
Nýtt - þurrkryddaö og marineraö kjöt
Vorum að fá hin
sívinsælu gasgrill
á kr. 14.990,-
SÉRTILBOÐ PIZZUR
Kindabacobuff á kr. 691,- Paprikubuff á kr. 677,- á aðeins kr. 349 stk.
Vorum að fá gróðurmold og kartöfluútsæði.
KAUPFÉLAGIÐ GOÐAHRAUNI
S12052 - Opið laugardaga kl. 10 -13
VESTMANNAEYINGAR
Málningartilboð
sem enginn getur hafnað
30%
AFSLÁTTUR Á
Útitex plastmálningu - Rex skipamálningu
Rex þakmálningu - Texolin fúalög
vegna útlitsgalla á umbúöum. meóan birgðir endast.
Leitið ekki langt yfirskammt Allar byqqingavorur á einum sta
HÚSEY
TT
HUSEY
BYGGINGAVORUVERSLUN
VESTMANNAEYJA
Garðavegi 15 - sfmi 1 1 151
USTAFASTEICNASALAjALHLIÐALÖCFRÆÐIÞJÓNUSTAFASTEICNASALAALHLIDALÖCFRCÐIÞJÓNUSTAFASTEICNAÍALAALHLIÐALðCFRJEÐIILHLIDALðCF
Faxastígur 39, neðri hæð
Stórt eldhús, tvö svefnherbergi, stofa
og borðstota, baðherbergi, þvottahús
og geymsla. Bflskúrsplata.
Verð: 5.600.000,-
Áshamar 27
Mjög gott raðhús. Þrjú svefnherbergi,
hol, stofa, eldhús, baðherbergi og
þvottahús. Bílskúr innbyggður.
Verð: 9.000.000,-
Dverghamar 41
Mjög gott parhús á mjög góðum útsýn-
isstað. Fjögur svefnherbergi, eldhús,
baðherbergi, þvottahús og geymslulofl.
innbyggður bílskúr. hagstæð lán áhvil-
andi. Skipti möguleg á einbýli.
Verð: 8.700.000,-
Báran, söluturn við Bárustíg
Góður söluturn í hjarta bæjarins.
Nýlega endurnýjað.
Verð: Tilboð.
Foldahraun 38 b og d
Mjög þægilegar tveggja herbergja
ibúðir á jarðhæð á góðum stað. Sérinn-
gangur. Svefnherbergi, stofa, eldhús
og baðherbergi ásamt geymslu.
Verð: 3.500.000,-
2ja til 3ja herbergja fbúðir
HEIÐARVEGUR 11, NEÐRI HÆÐ
Stór þriggja herbergja íbúð.
Verð: 4.100.000,- hagstætt verð.
Stærri eignir
FAXASTlGUR 33, NEÐRI HÆÐ
Fjögurra herbergja íbúð. Þrjú svefnher-
bergi, stór stofa, eldhús, baðherbergi,
sér þvottahús og útigeymsla.
Ath. hagstætt verð: 4.600.000,-
Asavegur 12, efri hæð og ris
Stór sérhæð á rólegum stað. Tvær
stofur, 4 - 5 svefnherbergi, tvö baðher-
bergi, stórt eldhús, þvottahús og geym-
sla. Stór bílskúr. Risið er allt endurnýj-
að.
Verö. 8.000.000,-
'ögmannsstofan
^ Bárustíg 15, Vestmannaeyjum
Jóhann Pétursson, hdl.
Löggiltur fasteignasali
Viðtalstfmi: 16:30 -18:00
Beinn sími: 13191
PT4l»»991VOnHiniVSVN9l3iSVdVlSflN9Miaarad901VOIlinniVSVN9iaiSV»lSnNQMI«rad301VanHlW1VSVN9l31SVdVlSnNör4ll»nid9
Vélstjórar
Þeir vélstjórar sem hafa áhuga á aö dvelja í sumar í
bústað félagsins aö Hraunborgum í Grímsnesi, láti vita
fyrir 10. maí. - Þeir ganga fyrir sem ekki hafa fengið
úthlutað áður.
Upplýsingar í síma 12192, Gústaf eða Marta.
Vélstjórafélag Vestmannaeyja
Orlofsgreiðendur
Þeir orlofsgreiðendur sem leggja orlof inn á reikninga í
íslandsbanka eru vinsamlegast beðnir að leggja inn í
síðasta lagi 7. maí.
ÍSLAN DSBAN Kl
RÆÐIÞJÖNUSTAFASTEICNA!