Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1992, Síða 4
Fimmtudaginn 30. apríl 1992 - fréttir
ORÐ-
SPOR
Bæta við átta stöðum í Evr-
ópu. Með sumaráætlun Flug-
leiða bætast átta viðkomustaðir
inn á áætlunina og ráðgera for-
svarsmenn félagsins að flytja
rúmlega 5% fleiri farþega í Evr-
ópuflugi en í fyrra. Staðirnir sem
bætast við eru Munchen, sem er
nýr viðkomustaður hjá félaginu.
Flug til Munchen hefst i byrjun
júlí og verður flogið þangað einu
sinni í viku fram í miðjan sept-
ember. Frankfurt og París, en
flug þangað hófst í síðustu viku
og verður flogið tvisvar í viku til
að byrja með en í sumar verður
mest flogið fjórum sinnum í viku
til Frankfurt og fimm sinnum til
Parísar. Hamborg, sem flug
hefst til um miðjan maíog verður
flogið þangað einu sinni í viku til
að byrja með en síöar tvisvar í
viku. Zurich, sem flogið verður til
vikulega fyrst eftir að ferðir hefj-
ast í lok maí og síðan tvisvar í
viku. Helsinki, en þangað hefst
flug í byrjun júní og verðurflogið
vikulega. Vín og Saizburg, sem
flogið verður til einu sinni í viku
frá fyrri hluta júnímánaðar.
Jafnframt fjölgun áætlunarstaða
í Evrópu verður ferðatíðni til
helstu áætlunarstaða í Evrópu
og Bandaríkjunum aukin.
íþróttaferðir út í heim. íþrótta-
deild Úrvals-Útsýnar, undir
stjórn Harðar Hilmarssonar og
Þóris Jónssonar hefur undanfar-
in ár skipulagt margar ferðir
íþróttafólks vísvegar um heim-
inn. Þessar ferðir eru allt frá því
að vera „Old boys“ skemmtiferð-
ir til þaulskipulagðra æfingaferða
fyrir landslið þjóðarinnar. Iþrótta-
deildin skipuleggur ferðir fyrir
íþróttamenn úr öllum greinum,
boltaíþróttum, sundi, fimleikum,
frjálsum o.fl.
Meðal staða sem íþróttadeiid
Úrvals-Útsýnar skipuleggur ferð-
ir til eru Algarve í Portúgal og
Belgía þar sem knattspyrnuskóli
KB verður starfræktur i lok maí
fyrir stráka á aldrinum 13-16
ára. Yfirkennari skólans er Pól-
verjinn Lubanski og honum til
aðstoðar eru þekktir þjálfarar frá
Belgíu.
Nýverið fengu (þróttaferðir Úr-
vals-Útsýnar einkaumboð fyrir
glæsilega íþróttamiðstöð í
útjaðri borgarinnar Sittard í
suðurhluta Hollands, við landa-
mæri Hollands, Þýskalands og
Belgiu.
íþróttamiðstöðin sem ber heitið
National Sportcentrum Sittard,
er ein besta íþróttamiðstöð í
Evrópu. Þar eru nokkrir knatt-
spyrnuvellir, frjálsíþróttavöllur,
stórt íþróttahús, tvær sundlaug-
ar 25 m. og 50 m. langar, heitir
pottar, líkamsræktaraðstaða,
borðtennis, billjard og ýmislegt
fleira. Fyrsta flokks gistiaðstaða
er í íþróttamiðstöðinni, rúmgóð
herbergi með baði, útvarpi, síma
og sjónvarpi og góður veitinga-
salur.
Framkvæmdastjóri Iþróttamið-
stöðvarinnar verður staddur hér
á landi í byrjun maí til að kynna
miðstöðina fyrir forystumönnum
íþróttafélaga, þjálfurum og öðr-
um framámönnum íþróttahreyf-
ingarinnar.
Úrval-Útsýn og Flugleiðir efna til
kynningarfundar með fram-
kvæmdastjóranum í Eyjum, 3.
maí n.k. Verður fundurinn í Týs-
heimilinu kl. 14:00 á sunnudag-
inn og geta forystumenn íþrótta-
hreyfingarinnar í Eyjum mætt
þar og kynnt sér hvað alþjóðlega
íþróttamiðstöðin f Sittard hefur
uppá að bjóða.
Vestmannaeyingar ■ Vestmannaeyingar
Nú bjóöum við hjónum helgarpakka frá föstudagskvöldi
til sunnudagskvölds í maí á kynningarverði.
W DÆMI:
Bíll
Flug Bílaleigan
Flogið á Selfoss Hrísmýri 3
með Val Andersen Gisting Sími: 98-21416
/ESTHUS HE
Við Engjaveg Selfossi
VERÐ. 20.725 kr.
Njótið lífsins og skoðið ykkur um á Suðurlandi
Upplýsingar í síma 98-22999 og 98-21416
Orlofseigendur
Þeir viðskiptavinir íslandsbanka sem óska eftir að láta
millifæra orlofsfé sitt inn á sparisjóðsbók eða tékka-
reikning sinn, eru beðnir að hafa samband við bankann
í síðasta lagi 7. maí.
ATHUGIÐ: Aðeins er hægt að millifæra inn á reikning
sem ber sömu kennitölu og orlofsreikningurinn.
Útborgun orlofs af ráðstöfunarreikningum hefst þriðju-
daginn 12. maí.
Sama dag verða orlofsávísanir póstsendar til þeirra
aðila sem ekki hafa ráðstöfunarreikninga.
ISLANDSBANKÍ
BARNFÓSTRU-
NÁMSKEIÐ
Skráning er hafin á Barnfóstrunámskeiðið. Námskeiðið
er ætlað fyrir stráka og stelpur 11 ára (fædd 1981) og
eldri.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Lóu í áima 12044
og Fanney í síma 12293.
Rauðakrossdeildin í Vestmannaeyjum
GOLFARAR
Munið vinnuna í vellinum
1. maí.
Mætum öll.
Stjórnin
® NAestimmmwjjafc&r
Atvinna
Flokksstjórar vinnuskóla skólagarða
Auglýst er eftir flokksstjórum fyrir vinnuskóla og
umsjónarmanni skólagarða með þekkingu á matjurt-
arækt. Æskilegt er að umsækendur hafi náð 20 ára
aldri. Starfið hefst 10. júní og stendur yfir til 24. júlí.
Þeir, sem áhuga hafa eru vinsamlega beðnir að skiia
umsóknum í Ráðhúsið eigi síðar en 15. maí nk. en þar
fást einnig umsóknareyðublöð.
Allarnánari upplýsingar veitirtómstunda- og íþróttafull-
trúi.
Atvinna- Gæsluvöllur
Laus er til umsóknar 50% staða á gæsluvellinum við
Miðstræti. Einnig auglýsum við eftir starfsfólki til sumar-
afleysinga á gæsluvellinum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráð-
hússins og óskast skilað á sama stað fyrir föstudaginn
15. maí.
Félagsmálastjóri
Sundlaugardiskó
Árlegt Sundlaugardiskó verður haldið í kvöld kl. 20:00
og hefst fjörið inni í sundlaug. Þaðan verður haldið í
Féló, þar sem diskóið verður. Forsala aðgöngumiða
verður til kl. 18:30 í Féló. Fjörið er fyrir 7., 8. og 9. bekk.
Frá sorphirðumönnum
Að gefnu tilefni eru húsráðendur beðnir að setja ekki
mold í sorppokana.
Frá Bæjarveitunum
orðsending vegna lekaleitar
vegna lekaleitar í dreifikerfi hitaveitu, má búast við
rennslistruflunum á heita vatninu í neðri hluta bæjarins
næstu vikur. Aðeins verður um stuttan tíma að ræða í
einu, ca. 1 - 2 klst.
Atvinna
Byggðarsafn Vestmannaeyja
Menningarmálanefnd Vestmannaeyja óskar eftir að
ráða safnvörð við Byggðarsafn Vestmannaeyja í 50%
starf. Skilyrði er að umsækjendur hafi tungumálakunn-
áttu, þekkingu á staðháttum og sögu Eyjanna og einnig
er nauðsynlegt að umsækjandi hafi ómældan áhuga
fyrir varðveislu minja og málefnum Byggðarsafnsins.
Laun samkvæmt kjarasamningi Vestmannaeyjabæjar
og Starfsmannafélagsins.
Umsóknir skulu berast Menningarmálanefnd merkt,
MENNINGARMÁLANEFND IJMSÓKN UM STARFfyr-
ir 5. maí nk.
Upplýsingar veitir forstöðumaður Safnahúss Nanna
Þóra Áskelsdóttir.
Páska- og bílnúmera-
happdrætti ÍBV
Páska- og bílnúmerahappdrætti Handknattleiksdeildar karla ÍBV hefur
verið frestað til þriðjudagsins 5. maí.
Þeir sem ekki hafa fengið bílnúmerin sín en hafa áhuga á að kaupa
miða geta haft samband við; Sigga í síma 11737, Óskar Frey í síma
12695 eða Kára í síma 12626.