Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1992, Síða 9
FRÉTTIR - fimmtudaginn 30. apríl 1992
Endurvinnslan
auglýsir
Opnunartími Endurvinnslunnar er sem hér
segir:
Alla virka daga frá kl. 11:00 - 12:00 og frá kl.
13:00 - 14:00.
ATH. Aðeins er tekið á móti flokkuðum
umbúðum, þ.e.a.s. gler - plast - seltzer - ál.
Ef flokkað er og talið er staðgreitt.
Sölubörn
1. maí merki verða afhent til sölubarna að Heiðarvegi 7
(Snótarhúsinu) kl. 10 f.h. 1. maí
Nefndin
1. maí kaffi
Verður í Alþýðuhúsinu frá kl. 15:00 1. maí. Handbolta-
ráð kvenna ÍBV sér um kaffisölu.
1. maí ávarp
Nemendur Tónlistarskóla Vestmannaeyja
skemmta kaffigestum
Nefndin
Aðalfundur
Sjómannafélagsins
Jötuns
Aðalfundur Sjómannafélagsins Jötuns verður haldinn
fimmtudaginn 30. apríl í Alþýðuhúsinu kl. 16:30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Samningarnir.
3. Önnur mál. Stjornm
TILKYNNING
um aðstöðugjald í
Vestmannaeyjum 1992
Ákveðið er að innheimta aðstöðugjald í Vestmannaeyj-
um á árinu 1992 samkvæmt heimild í V. kafla laga nr.
81/1962 um aðstöðugjald.
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar verður gjaldstig
sem hér segir:
a) 0.33% af rekstri fiskiskipa og flugvéla.
b) 0,65% af fiskiðnaði og rekstri verslunarskipa.
c) 1,00% af öllum iðnrekstri.
d) 1,30% af öðrum atvinnurekstri.
Aðstöðugjaldsskyldir aðilar skulu skila skattstjóra sér-
stakri greinargerð um aðstöðugjaldsskyidan rekstrar-
kostnað í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Grein-
argerð þessari skal skila með skattframtali framtals-
skyldra aðila samkvæmt lögum um tekjuskatt og eign-
arskatt, en þeir sem undanþegnir eru þeirri framtals-
skyldu, skulu fyrir 31. maí n.k. skila greirargerð þessari
ásamt ársreikningi til skattstjóra í því umdæmi, þar
sem þeir eiga lögheimili.
Vestmannaeyjum, 24. apríl 1992
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum
Sumarhús í
Ölfusborgum
Félagsmenn athugið. Byrjað verður að taka við
umsóknum um dvöl í sumarhúsunum í Ölfusborgum á
skrifstofu Verkakvennafélagsins Snótar fimmtudaginn
7. maí kl. 9:00.
Verkakvennafélagið Snót
Verkalýðsfélag Vestmannaeyja
Sjómannafélagið Jötunn
Sumarafleysingar
Staða lögreglumanns til sumarafleysinga við embættið
er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins.
Umsóknir berist, sem fyrst til lögreglustjóra eða yfirlög-
regluþjóns, sem gefa frekari upplýsingar ef óskað er.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Sveinafélags járniðnaðarmanna í Vest-
mannaeyjum, fyrir árið 1991, verður haldinn í húsi
félagsins að Heiðarvegi 7, laugardaginn 2. maí
kl. 14:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Um kvöldið verður haldin árshátíð félagsins á Höfðan-
um og hefst hún kl. 19:30.
Stjórn Sveinafélags járniðnaðarmanna
í Vestmannaeyjum
Félagar í Starfsmannafélagi Vestmannaeyja-
bæjar. Atkvæöagreiösla um miðlunartillögu
sáttasemjara fer fram á skrifstofu félagsins
Hilmisgötu 13, dagana 4. og 5. maí n.k. frá
kl. 13:00 - 19:00.
Stjórnin
Kosning um
miðlunartillögu
Ríkissáttasemjara
Verkakvennafélagið Snót og Verkalýðsfélag Vest-
mannaeyja hafa ákveðið að kosning um miðlunartillögu
Ríkissáttasemjara fari fram þriðjudaginn 5. og miðviku-
daginn 6. maí 1992.
Kosningin fer fram á skrifstofum félaganna frá kl. 9:00
til kl. 18:00 báða dagana.
Jafnframt verður hægt að kjósa í húsi ísfélagsins hf.
Strandvegi 26 - 28 og húsi Vinnslustöðvarinnar Hafn-
argötu 2 báða dagana á vinnutíma.
Félögin hvetja félagsmenn sína til að koma og greiða
atkvæði um miðlunartillöguna.
Verkakvennafélagið Snót
og Verkalýðsfélag Vestmannaeyja
auglýsingar
Bíll til sölu
Rauður Trans Am, 350 vél. skipti
möguleg.
Upplýsingar í síma 12230.
fsskápur óskast
Óska eftir að kaupa lítinn
ísskáp.
Upplýsingar í síma 13211 eða
11376.
Til sölu
Tveir ónotaðir Mark 120 W. hát
alarar og notað Pioneer útvarps
og kassettutæki.
Upplýsingar í síma 12528.
Barnakerra
Til sölu barnakerra og sófasett.
Upplýsingar í sima 12480.
13 ára stelpa
Öska eftir að ráða 13 ára stelpu
til að þrífa íbúð einu sinni í viku
og sinna hundi öðru hvoru.
Á sama stað er til sölu 22 m.
velúrefni og 2 letistólar Ikea og 2
hlómtæki, fást fyrir Iftinn pening.
Upplýsingar í síma 12158.
Bíll til sölu
Nissan Van sendibíll, árgerð
1985, til sölu. Bifreiðin er
skemmd eftir árekstur.
Nánari upplýsingar veitir Arnar
Sigurmundsson hjá Samfrost í
síma 11950 og 11122.
Bíll til sölu
Galant GLS 2000, árgerð 1985,
sjálfskiptur með overdrive,
vökva- og velti stýri, rafmagn í
öllu og digital mælaborð.
Upplýsingar í síma 12934.
íbúð til leigu
2ja til 3ja herbergja íbúð á góð-
um stað í Eyjum til leigu.
Upplýsingar í síma 91-680471.
fbúð til leigu
2ja til 3ja herbergja íbúð á góð-
um stað í Eyjum til leigu.
Upplýsingar í síma 91-680471.
íbúð til leigu
Til leigu 3. herbergja íbúð í Vest-
mannaeyjum.
Upplýsingar í síma 94-1336.
Ibúð til sölu
Til sölu góð þriggja herbergja
íbúð í Foldahrauni 40.
Upplýsingar S 12837.
Nintendo
Til sölu Nintendo tölva með 11.
leikjum, 2 stýripinnum og byssu.
Upplýsingar S 12867 eftir kl. 6.
Til sölu
BMW 323i árgerð 1981, skoðað-
ur 1993. Verð: Tilboð.
Upplýsingar I síma 11795 frá kl.
9-21.
Hús til leigu
Einbýlishús á góðum
bænum til leigu.
Upplýsingar 91-46385.
stað
Bíll og skellinaðra til sölu
BMW 315, árgerð 1982, til sölu.
Á sama stað er einnig til sölu
skellinaðra sem þarfnast lag-
færingar.
Upplýsingar í síma 12567.