Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1993, Page 4
Fimmtudagurinn 9. september 1993
Sjállboðaliðasamtök um náttúrvernd:
Utbjuggu göngustig i Kaplagjotu
-Hafa áhuga á að búa til fleiri stíga á Heimaey á næstu árum.
Félagið Krabbavörn í Vestinannaeyjum:
Veitir öllum fjárhagsaðstoð
-sem þurfa að leita sér lækninga vegna krabbameins.
Um 20 manna hópur frá Sjálf-
boðaliðasamtökunum um náttúru-
vernd lögðu stíg í brekkunni niður
í Kaplagjótu á laugardaginn. Þar
sem brattast er mynda steinar
tröppur sem minnka verulega
slysahættu því í vætutíð er brekkan
mjög hál. Er þess skemmst að
minnast að í sumar fótbrotnaði
ferðamaður í Kaplagjótu.
Þessi samtök eiga sér ekki langa
sögu, voru stofnuð vorið 1986, en á
þessum tíma hefur þeim vaxið fiskur
um hrygg. Starfsemin byggist fyrst
og fremst á vinnuferðum á friðuð
svæði og þá sérstaklega þau sem
mikið eru sótt af ferðamönnum.
Verkefnin eru af ólíkum toga, mest er
um stígagerð á viðkvæmum stöðum
þar sem göngustígar þurfa að falla
svo vel inn í landslagið að þeir sjáist
vart, en bera samt sívaxandi fjölda
ferðamanna. Önnur verkefni sem
samtökin vinna að eru sáning og
landgræðsla, lagfæring gróður-
skemmda vegna aksturs utan vega,
stikun jeppavega og lokun villislóða
svo eitthvað sé nefnt.
Þessar upplýsingar eru að finna í
bæklingi um samtökin, en Þorvaldur
Öm Arnason, annar tveggja verk-
stjóra í ferðinni, sagði í viðtali við
FRÉTTIR að ferðin til Eyja væri sú
sjöunda á árinu. Helgina áður kom
hann í vettvangskönnun við annan
mann og lögðu þeir á ráðin um
stíginn í Kaplagjótu í samvinnu við
Auróru Friðriksdóttur, formann
HUN-nefndar. Hann sagði að verk-
efni hér séu næg fyrir samtökin. Tók
Þorvaldur sem dæmi stíginn upp úr
Herjólfsdal sem er farinn aó grafast
verulega niður. Þama sagði hann að
væri verðugt verkefni fyrir samtökin.
„Það þarf að hugsa út nýja leið upp
Dalinn og undirbúa verkið og skipu-
leggja áður en hafist verður handa.
Við erum tilbúinn og ef fólki hér líkar
það sem við erum aó gera komum við
örugglega næsta sumar.“
Auróra var mjög ánægð með fram-
tak fólksins og sagði það til
eftirbreytni. Eini kostnaóur bæjarins
er fargjaldið með Herjólfi sem er ekki
nema brot af vinnuframlagi fólksins
ef það það yröi reiknað í tímakaupi.
í síðustu viku auglýsti Félagið
Krabbavörn í Vestmannaeyjum
merkjasölu Krabbameinsfélags
íslands og var tekið fram að þrír
fjórðu ágóðans rynni til félagsins
hér. Til að forvitnast nánar um
starfsemi Krabbavarnar í Vm.
hafði blaðið samband við
Kristínu Baldvinsdóttur, for-
mann félagsins og Eddu Tegader
ritara.
Þær upplýstu að tilgangur
félagsins væri eingöngu sá, að
styðja við bakið á þeim sem þurfa
að leita sér lækninga vegna
krabbameins.
Upphaflega var Krabbavöm
stofnað í Vestmannaeyjum árið
1949 og var Einar Guttormsson
læknir fyrsti formaður félagsins.
Starfsemin lá niðri í nokkur ár en
félagið var endurreist árið 1990 og í
dag eru félagar 302. „Við viljum
gjaman fá fleiri í félagió því félags-
gjöldin, sem em aðeins 500 krónur
á ári, eru okkar eina trygga tekju-
lind og svo hluti af merkjasölu
Krabbameinsfélags íslands," sagði
Kristín.
Edda sagði að eini tilgangur
félagsins væri að létta undir með
þeim sem þurfa að leita sér
lækninga vegna krabbameins. „Við
styrkjum alla Vestmannaeyinga
fjárhagslega sem þurfa að leita sér
lækninga í Reykjavík og á síðasta
ári fengum við hingað fólk sem hélt
fund um krabbamein og var hann
vel sóttur. Við viljum leggja áherslu
á að við emm ekki að safna
peningum og viljum því hvetja fólk
sem þarf á aðstoð að halda vegna
krabbameins að hafa samband við
félagið," sagði Edda.
Kristín sagðist vilja leggja
áherslu á að þó félagsmenn væm
allir af vilja gerðir gætu þeir ó-
mögulega vitað um alla sem rétt
eiga á fjárhagsaóstoð frá félaginu.
„Fmmkvæðið verður því aö koma
frá sjúklingunum sjálfum eða að-
standendum þeirra en ekki öfugt,“
sagði Kristín og sem dæmi um
aðstoð sem félagið veitir nefndi hún
að félagið greiðir leigu á íbúðum
sem Krabbameinsfélagið hefur yfir
að ráða í Reykjavík fyrir krabba-
meinssjúklinga af landsbyggóinni.
Er Krabbavöm í Vestmannaeyjum
eitt fyrsta félagið sem það gerir.
Þær sögðu að merkjasalan hefði
gengið mjög vel og vildu þær koma
á framfæri þakklæti til allra bæjar-
búa og sölufólks sem vann frábært
starf.
Þeir sem vilja afla sér upplýsinga
um starfsemi félagsins og þá aðstoð
sem það getur veitt er bent á að hafa
samband við Kristínu í síma 11872,
Eddu í síma 11864, Trausta Mar í
síma 11200 og. Herdísi í síma
11247.
Stígurinn sem sjálfboðaliðarnir gcrðu liggur skábalt niður Kaplagjótuna.
NÝFÆDDIR
Vestmannaeyingar
Þann 24. ágúst sl. eignuðust Helgja Björk Ólafsdóttir og Sigursteinn
Leifsson dreng. Hann vóg 14 og hálf mark og var 52 sm. Drengurinn
er frumburður þeirra: Ljósmóðir: Guðný Bjarnadóttir.
Þann 22. ágúst sl. eignuðust Kolbrún Matthíasdóttir og Hörður
Pálsson dreng. Hann vóg 16 merkur og var 53 sm. Drengurinn er
frumburður þeirra. Ljósmóðir var Sigríður Þórhallsdóttir.
Eyjamaður vikunnar: Elías Jensson skipstjóri
Gæs er uppáhalds maturinn
Elías Jensson stýrimaður, var
skipstjóri á björgunarbátnum
Þór sem kom s.I. sunnudag.
Bátnum var siglt í áföngum
frá Noregi. Fimm manna á-
höfn var um borð og reyndist
björgunarbáturinn mjög vel á
leiðinni. Elías sýnir á sér hina
hliðina fyrir lesendur
FRÉTTA.
Fullt nafn? Elías Vigfús Jens-
son.
Fæðingardagur og ár? 16.
ágúst 1954.
Fæðingarstaður? Vestmanna-
eyjar.
Fjölskylduhagir? Kvæntur
Sigríði Gísladóttur og eigum við
þrjú börn, Gísla, Jens Kristinn
og Anítu.
Bifreið? Ford Sierra.
Menntun og starf? Stýrimanna-
skólinn. Stýrimaður og
skipstjóri.
Fyrri störf? Allt mögulegt, t.d.
hjá Bænum og Rafveitunni hér
áóur, smíðar o.fl. en mest verið á
sjó frá '73.
Helsti galli? Oþolinmæði.
Helsti kostur? Læt aðra svara
því.
Uppáhaldsmatur? Gæs.
Versti matur? Hákarl.
Uppáhaldstónlist? Tónlist
síðari hluta sjöunda áratugarins.
Uppáhalds íþróttamaður?
Enginn sérstakur.
Hvaða stjórnmálamanni hefur
þú mestar mætur ár? Hef lítið
álit á þeim og því enginn sér-
stakur í uppáhaldi.
Hvert er eftirlætissjónvarps-
efnið þitt? Fréttir og
náttúrulífsþættir.
Hvaða sjónvarpsefni finnst
þér Ieiðinlegast? Sápuóperur á
borð við Dallas og Dynasti.
Uppáhaldsleikari? Clint
Eastwood er alltaf góður.
Hvað gerir þú í frístundum
þínum? Mikið af mínum frítíma
undanfarin ár hefur farið í húsið,
annars hef ég gaman af utiveru.
Hvað veitir þér mesta af-
slöppun? Góöur svefn.
Hvað metur þú mest í fari
annarra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Oheiðar-
leiki og lævísi.
Fallegasti staður sém þú hefur
komið á? Þeir eru margir, en
Ystiklettur með allan sinn fjöl-
breytileika er fallegur svo og að
horfa á sólaruppkomuna.
Hvaða námsefni líkaði þér
verst í skóla? Vélritun.
Elías Vigfús Jensson.
Hvað myndir þú gera ef þú
yrðir bæjarstjóri í einn dag?
Sennilega ekki neitt, myndi ekki
vilja vera bæjarstjóri.
Uppáhalds félag sem þú hefur
starfað með? Hjálparsveit skáta
og síðan Björgunarfélagið eftir
sameiningu.
Hvaða persóna í sögunni heill-
ar þig mest? Engin sérstök.
Hvað ertu hræddastuT við? Að
verða ósjálfbjarga vegna slysfara
eða annars, það sem ég ætti eftir
ólifað.