Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1993, Síða 14
m T’S '' s •:^í*:*:*::::j*::::::- - • ' ' ' y ^ ' r>
SííS:*:;:*:; ífc*fc*:
Fimmtudagurmn 9, september
Guðmundur I».B. Olni'sson hæjarfiilltrúi Al|)ý0ut1okksins skrifúr:
Mál að linni
Eins og fram hefur komið í fréttum
stefna stjómvöld að því að færa
ýmsar ríkisstofnanir út á lands-
byggðina, frá höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er hið besta mál og öllum sem
horfa hlutlaust á málið, ljóst að það
þarf ekki að vera neitt náttúrulögmál
að allar stofnanir séu staðsettar á Stór
Reykjavíkursvæðinu. Það er reyndar
furðulegt hvað langlundargeð lands-
byggðarmanna hefur verið mikið og
þeir sætt sig við að þurfa að leita
stöðugt til höfuðborgarsvæðisins eftir
þjónustu hins opinbera.
Nú virðist breyting vera á og er það
gott eins langt og það nær.
En hvaða stofnanir stendur til að
flytja hingað til Vestmannaeyja?
Ekki einaeinustu.
„Er þá ekki rétt að
ganga skrefíð til fulls
og Eyjamenn verði í
þessum málum sjál-
fum sér nógir og
haldi sínu, sem þeir
afla. Það yrðu hin
bestu skipti og hlýtur
að yera ofarlega á
bláði.
«
Hvers vegna sitja
Vestmannaeyingar
ekki við sama borð
og aðrir?
Hvers vegna er ekki gott að segja,
en kannski höfum við sjálfir ekki
verið nógu vakandi við að berjast
fyrir því að stofnanir verði fluttar til
Vestmannaeyja.
Ef svo er, er þá ekki rétt að skipta
um gír og bretta upp ermamar og fara
að gera eitthvað í málinu?
Höfuðstöðvar
Landhelgisgæslunnar
til Eyja
Er nokkur goðgá að ætla að t.d.
Landhelgisgæslan flytji höfuðstöðvar
sínar hingað, þar sem grunnurinn var
lagður að gæslunni með kaupum á
Þór, fyrr á ámm, fjármagnaður af
Vestmannaeyingum. Flutningur á
Landhelgisgæslunni til Vestmanna-
eyja ætti aó vera verðugt verkefni
Bæjarstjómar Vestmannaeyja og ekki
síður þingmanna kjördæmisins með
fyrsta þingmann Sunnlendinga Þors-
tein Pálsson dómsmálaráðherra í
fararbroddi, en hann er æðsti yfir-
maður Landhelgisgæslunnar.
Örlítill vottur um að
við séum til
Fyrir nokkru flutti ég tillögu í
bæjarstjóm þess efnis að væntanleg
Náttúrustofa á Suðurlandi yrði stað-
sett hér í Eyjum í tengslum viö
Náttúrugripasafnið og var sú tillaga
samþykkt. Síðan samþykkti bæjar-
stjóm að taka upp samstarf við
Háskóla íslands vegna fræði-,
rannsókna-, og vísindastarfa með að-
stöðu í Náttúrugripasafninu og er
undirbúningur þess samstarfsverkefni
í fullum gangi.
Því miður er hér nánast um undan-
tekningu að ræða.
Markmiðið virðist
vera að flytja ríkis-
stofnanir frá Eyjum
Á sama tíma og önnur sveitarfélög
eygja sum hver raunverulegan mögu-
Jeika á því að til þeirra verði fluttar
opinberar stofnanir, megum við Vest-
mannaeyingar berjast fyrir því að
halda þeim örfáu stofnunum sem hér
era og tilheyra ríkisvaldinu.
Ekki alls fyrir löngu var Héraðs-
dómurinn fluttur upp á Selfoss og nú
seinast hafa borist fréttir um að flytja
eigi Skattstofuna upp á Hellu.
Er ekki mál að linni? Hvers eiga
Vestmannaeyingar að gjalda?
Guðmundur Þ.B. Ólafsson
Eigum við endalaust að láta það
viðgangast að við séum meðhöndluð
sem annars flokks fólk. Eigum við að
búa við endalausa farandmennsku
þegar samskipti við ríkisvaldið er að
ræða eða fyrirtæki þess. Við höfum
nú þegar farandskoðunarmenn bif-
reiða og farandhéraðsdómara svo
eitthvað sé nefnt.
Við látum ekki bjóða okkur meira.
Þarf þá ekki að ganga
skrefíð til fulls ef ekki
verður breyting á?
Ef það er skoðun manna að Vest-
mannaeyingar eigi að vera afskiptir
þjónustu ríkisvaldsins er þá ekki rétt
að ganga skrefið til fulls og Eyja-
menn verði í þessum málum sem
öðram sjálfum sér nógir og haldi
sínu, sem þeir afla.
Það yrðu hin ágætustu skipti fyrir
Vestmannaeyinga, er ég viss um og
það sjónarmið hlýtur að vera ofarlega
á blaði, ef fram fer sem horfír.
Guðmundur Þ. B. Ólafsson.
Steinar Ágústsson
Að fá allt fyrir ekki neitt
Ég las í Fréttum 2. þ.m. grein
með úrklippu úr DV, sem vakti
mig svo sannarlega til umhugsunar
um hvað öfundin getur náð langt í
íþróttaumræðunni. Hvað er eigin-
lega að gerast í þessum stóra bæ.
Þeir Arngrímur og Vignir segja í
grein sinni, það furðulegt að það
skuli vefjast fyrir mönnum hér í
bæ að byggja nýjan íþróttasal við
Sjálfseflingar-
námskeið
Á námskeiðinu er m.a. fjallað
um lítið sjálfstraust, áhrif
þess á daglegt líf, markmið
og leiðir til sjálfseflingar.
Einnig er rætt um samskipti
milli fólks og vænlegustu
leiðina til árangurs.
Námskeiðið er haldiö helgina
18.-19. september.
Nánari upplýsingar og skrán-
ing í síma 91 -811335 og 91 -
15404 milli kl. 17:00 og
20:00.
Sigríður Anna Einarsdóttir
félagsráðgjafi.
íþróttamiðstöðina. Þeim heiðurs-
mönnum verður tíðrætt um bygg-
ingu nýs íþróttahúss í 700 manna
plássi, Vogum á Vatnsleysuströnd.
Mér er bara spurn. Ætli ekki þar
eins og víða um land, sé ekki
draumur þess fólks að eiga sitt eig-
ið íþróttahús, sundlaug svo ég tali
nú ekki um eitt stykki grasvöll.
Allt tekur tíma og þar eins og ann-
arsstaðar eru það peningamálin
sem ráða ferðinni. Kannast þessir
heiðursmenn ekkert við orðið
samdrátt í þjóðfélaginu.
Ég fékk það verkefni í vor að
safna auglýsingum í afmælisblað í
tilefni þess að 20 ár voru frá gos-
lokum á Heimaey. Handboltaráð
ÍBV ætlaði að standa að útgáfu
þessa blaðs. En allsstaðar kom ég
að lokuðum dyrum. Hvar sem var
hjá rótgrónum fyrirtækjum út um
allt land, eða hjá stórum og smá-
um bæjarfélögum. En hlýjum
kveðjum mætti ég allsstaðar til
Vestmannaeyinga, hvert á land
sem ég hringdi. Sama svarið alls-
taðar. Við höfum nóg með okkur.
Samdráttur allsstaðar.
Hér í bæ er stór og vegleg
íþróttamiðstöð, sem er orðin nær
tuttugu ára gömul. Hér í bæ eru
tvö stórmyndarleg félagsheimili
Þórs og Týs. Hvorki meira né
minna en fjórir grasvellir, þar fyrir
utan eigum við hér í bæ einn besta
aðalleikvang á landinu. Hann hef-
ur víst kostað sitt.
Svo sérkennilega vill til að ekki
er hægt að fá inni fyrir meistara-
flokk ÍBV í knattspyrnu, í hvor-
ugu þessara glæsilegu félagshei-
mila. Leikmenn sem hér koma og
keppa í knattspyrnu á Hástein-
svelli, verða að gera sér að góðu,
að skokka uppí íþróttamiðstöð í
hálfleik og slappa af í svitaklefan-
um, svo notuð séu orð Þorsteins
Gunnarssonar, varamarkvarðar og
þjálfara með meiru. Svo ég tali nú
ekki um þá aðstöðu sem áhorfend-
um er boðið uppá. Þegar gestum
er mál, þurfa þeir að fara bak við
næsta klett eða bak við næsta bíl
samborgaranna. Þetta er útaf fyrir
sig til háborinnar skammar.
Ég held að ég megi fullyrða að
ekkert bæjarfélag hefur yfir að
ráða eins mörgum grasvöllum og
við hér í Vestmannaeyjum, nema
Reykjavík, Mér vitandi hefur
aldrei staðið í bæjaryfirvöldum hér
í bæ hverjir sem við völd hafa
verið, að liðka til á myndarlegan
hátt, gagnvart íþróttahreyfing-
unni, svo ég tali nú ekki um stuðn-
ing bæjarbúa við hreyfinguna á all-
an möguleean hátt.
Það er ömurlegt þegar peninga-
græðgin er að ná yfirhönd á sönn-
um íþróttaanda. Heimtufrekja og
öfund er ekki í anda íþróttahreyf-
ingarinnar hvað þá óeining og eig-
inhagsmunapot. Éeheldnú t.d. að
handboltaráð ÍBV ætti að fara að
hreinsa til í sinni fjármálaóreiðu,
svo bæjarbúar geti farið að líta
upp til handboltaráðs ÍBV.
Handboltaráð ÍBV Qg knatt-
spyrnuráð ÍBV eru í ömurlegri
herbergiskytru í Félagsheimilinu.
Er þetta sæmandi fyrir þetta
myndarlega og stóra bæjarfélag,
að þurfa að vera nánast á vergangi
með starfsemi sína. Ég spyr, er
ekki eitthvað að í þessum málum?
Hér og þar í þessum málum er svo
sannarlega nóg verkefni framund-
an. Þessu eilífa þexi og og þrasi
verður að linna, svo fólk geti farið
að líta upp til íþróttahreyfingar-
innar annars getur illa farið .
Að lokum þetta. Nú er að stytt-
ast í fótboltavertíðinni, aðeins 3
umferðir eftir og 9 stig í pottinum.
Ég skora á ykur ungu eldhugar í
ÍBV-liðinu, að gefa ekkert eftir á
lokasprettinum. með viljann að
vopni og rétt hugarfar, haldið þið
áfram í 1. deild. Þar og hvergi ann-
arsstaðar eigið þið heima. Áfram
ÍBV.
Takk fyrir.
C FRÉTTIR)
Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamaður: Þorsteinn Gunnarsson.
Ábyrgðarmcnn: Ómar Garðarssón & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Aðsctur rit-
stjórnar: Strandvegi 47 II. hæð. Sími: 98-13310. Myndriti: 98-11293. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga.
Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Tuminum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Pinnanum, Kránni og
Söluskálanum. FRÉTTIR eru prentaóar í 1500 eintökum. FRÉTTIR eni aðilar að Samtökum bæjar- og héraðs-
fréttablaða.
Landakirkja
Sunnudagur 12. sept. kl.
11:00
Almenn Guðsþjónusta með
altarisgöngu.
Boðið upp á akstur frá
Hraunbúóum.
kl. 20:30
KFUM&K unglingafundur.
Sóknarprestarnir.
Betel
Fimmtudagur kl. 20:30
Samkoma með Anitu Pearce.
Föstudagur kl. 20:30
Samkoma meó Anitu Pearce.
Laugardagur kl. 20:30
Samkoma með Anitu Pearce.
Sunnudagur kl. 16:30
Vakningarsamkoma. Anita Pearce talar
og syngur.
/
Hjartanlega vclkomin í Betel.
Aðventkirkjan
Laugardagur:
Kl. 10:00 Biblíurannsókn.
Allir velkomnir.
Biblían
talar
S: 11585
Bahá’í sam-
félaqið
Opió hús að Kirkjuvegi 72B,
fyrsta fimmtudag hvers
mánaðar kl. 20:30. Almennt
umræðuefni. Allir velkomnir.
Heitt á könnunni.
Minningarkort:
Eftirtaldar sjá um sölu á minn-
ingarkortum Krabbavarnar: Kristín s:
11872, Hólmfríður s: 11647, Guðný
sími 13084 og Anna s: 11678.