Fréttir - Eyjafréttir - 23.02.1995, Side 10
10
Fimmtudagurinn 23. febrúar 1995
/ /
Utgerö Jóns Olafssonar á Hólmi og afkomenda hans frá 1916 til þessa dags:
Lét smíða Qfeig III,
fyrsta stálbát Islendinga
-Kom hann til hafnar í Eyjum þann 17. febrúar 1955 eóa fyrir 40 árum síðan.
Útgerð Ófeiganna, eins og þeir eru
kallaðir í daglcgu tali í Eyjum, á
sér langa sögu sem má rckja allt til
ársins 1916. Saga útgerðarinnar er
um margt athyglisverð, ekki síst
fyrir það að hún lét smíða fyrsta
stálbátinn sem smíðaður var fyrir
Islendinga og var hann um leið
fyrsti stálbáturinn í Eyjatlotanum.
I>arna var kominn Ófeigur III
sem kom til hcimahafnar þann 17.
febrúar 1955 eða fyrir 40 árum.
Atti hann eftir að reynast hið
mcsta afla- og happaskip. Þá var
útgerðin í eigu Þorsteins
Sigurðssonar frá Klátindi og Ólafs
Sigurðssonar frá Skuld.
Árið 1988 tók Friðrik Ásmunds-
son, skólastjóri Stýrimanna-
skólans, saman sögu útgerðar Jóns
Ólafssonar á Hólmi og afkomcnda
hans í Vestmannaeyjum frá árinu
1916 ársloka 1988. „Engin útgerð,
sem nú er rekin hér í
Vestmannaeyjum hefur verið svo
lengi i sömu ætt. Enn cr haldið
áfram, nú er í smíðum glæsilegt
skip í Svíþjóð, 160 til 170 rúmlestir
með 995 Álphavél. Það er væntan-
legt um mitt ár 1988,” segir
Friðrik um útgerðina þetta ár.
Síðan cr búið að sclja einn bát,
Ófeig II og nýi báturinn, sem hann
nefnir, Ófeigur VE er kominn til
landsins og hefur reynst mjög vel.
I>orsteinn Sigurðsson á Blátindi,
tengdasonur Jóns á Hólmi og
Ólafur Sigurðsson, skipstjóri frá
Skuid, höfðu tekið við útgerðinni
árið 1955 þegar Ófeigur III var
smíðaður og um þcnnan kafla í
sögu útgerðarinnar segir Friðrik:
-I>ortseinn og Ólafur létu smíða
þennan bát í Hollandi. Hann var
fyrsti stálfiskibátur sem íslending-
ar cignuðust. Hann var 66
rúmlestir með 220 hcstafla
Grenaa-vél. Koma hans vakti
mikla athygli. Hann var vel heppn-
aður og var mikið happa- og
aflaskip.
Nú gerðu þeir félagar út tvo
Ófeigur III VE 325, fyrsta stálfiskiskip sem smíðað var fyrir íslendinga, kemur til hafnar í Vestmannaeyjum 17.
febrúar 1955. Báturinn var smíðaður í Hollandi og var 66 brúttólestir.
báta til ársloka 1958. Árni
Hanncsson vélastjóri hjá Ólafi tók
við gamla bátnum. Þessi Ófeigur
var hér fyrst á vetrarvertíð 1955
og var Ólafur skipstjóri til ársloka
1959 er nýr Ófeigur, Ófeigur II VE
324 kom nýsmíðaður frá
A-Þýskalandi. I>á gerðu þeir aftur
út tvo báta cftir stutt hlé.
Grétar Skaftason, sem var stýri-
maður á Ófeigi III frá upphafl,
varð skipsstjóri á honum 25.
nóvember 1959 til 5. maí 1962.
Sigurbjörn Sigurfinnsson varð
þá skipstjóri til 19. maí 1966. Örn
Friðgcirsson tók hann til 10. maí
1974. Ólafur Sigurðsson var með
hann í nokkra daga, 16. maí til 7.
júní 1967.
Stefán Friðriksson var skipstjóri
31. október 1974 til 13. maí 1976.
Örn Friðgeirsson aftur 4. júní
1976 til 15. ágúst 1978. Lýður
Ægisson tckur hann 21. febrúar
Áhöfn og eigendur Ófeigs III: Grétar Skaftason, Þorsteinn Sigurðsson,
Gunnar Haraldsson, danskur vélstjóri sem setti vélina niður, Hjálmar
Hjálmarsson, Ólafur Sigurðsson , skipstjóri og Jón, togararskipstjóri úr
Rcykjavík sem sigldi bátnum upp með Ólafi.
'
I>að var glatt á hjalla á verkfallsskrifstofu Kcnnarafélags Vest-
mannaeyja á þriðjudaginn. Var tíminn m.a. nýttur til þess að grípa í
prjóna.
Engin verkfallsbrot
FRETTIR litu við á verkfallsskrifstofu Kennarafélags Vest-
mannaeyja á þriðjudaginn. Þá var þriðji dagur í verkfalli og aó sögn
Gísla Magnússonar, formanns félagsins, hafði ekki komið til verk-
fallsbrota í Vestmannaeyjum.
Nánast öll kennsla liggur niðri og nær verkfallið ti.l tæplega 1200
nemenda og um 70 kennara. Eina starfsemin sem fram fer í
skólunum er að skólaathvarf og skóladagheimili eru opin. Auk þess
kenna stundakennarar, en það er hverfandi lítið þannig að segja má
að allt skólastarf sé lamaó.
Ófeigur III á síldveiðum.
1979 og er með hann til miðs
september 1983, þegar útgerðin
keypti Árna í Görðum og tók
Lýður við honum. Yngvi
Skarphéðinsson varð skipstjóri á
Ófeigi III á eftir Lýð eða frá
upphafi árs 1984 til ársloka 1986.
Guðmann Magnússon tók hann þá
til loka árs 1987. í upphafi árs
1988 varð Ægir Örn Ármannsson
skipstjóri, þar til báturinn stran-
daði á Hafnarnesi við I>orlákshöfn
19. febrúar þar ár. Þar ónýttist
hann er áhöfnin bjargaðist í þyrlu
Landhclgisgæslunnar.
Ófeigur III var gerður út fyrstu
árin á línu og net á vctrarvertíðum
og síld norðan- og austanlands á
sumrin. Seinni árin var hann
cingöngu á netum á veturna og
trolli á sumrin. Árið 1987 var hann
fyrst eingöngu á trolli.
Ófeigur III var lengdur á
Akranesi 1965, varð hann þá 86
rúmlestir. Ný Caterpillar-vél var
sett í hann um leið. Nýtt stýrishús
var byggt á hann sumarið 1973 og
aftur var sett ný Caterpillar-vél í
hann árið 1977.
Þannig rekur Friðrik sögu þcssa
merkilega báts og koma margir
skipstjórar við sögu. Útgerð
Ófeiganna er enn við lýði og er
hún í höndum Viktors Hclgasonar,
tengdasonar I>orstcins á Blátindi,
þannig að ennþá er hún innan
sömu ættarinnar. Gerir hún út
Ófeig VE sem hefur reynst mikið
aflaskip undir skipstjórn
Guðmanns Magnússonar.
Hreiðar Örn Stefánsson, æsku-
lýðsfulltrúi Landakirkju, mátti sjá
á cftir hárinu á sunnudagskvöldið
og gengur hann um með pottlok til
að skýla skallanum.
Hreiðar, sem cinnig starfar með
KFUM og K, hafði heitið krökk-
unum þar að láta hárið fara ef þau
næðu að safna ákveðinni pen-
ingaupphæð fyrir poppmessu sem
var í Landakirkju á sunnu-
dagskvöldið. „Krakkarnir eru að
safna fyrir ferð til Danmerkur í
sumar og lét ég þá plata mig til
þess að krúnuraka mig ef þcir
næðu ákveðnu marki fyrir popp-
mcssuna scm var á sunnudaginn.
Þeim tókst að ná tilscttu rnarki,
safna 50 þúsund krónum, og því
varð hárið að fara. Viktor rakari
framdi raksturinn og nú má spcgla
sig í skallanum á mér.”
Gjafir og
annað til
Hraunbúða
1994
N.N. gaf 5000 krónur, ágóði af
hlutaveltu Jónínu Kr. Þorvalds-
dóttur, Sólveigar Jónsdóttur, Emu
Óskar Grímsdóttur og Elfu B.
Hjálmarsdóttur kr. 440, Sævar Þ.
Jóhannesson sendi bókasafni
Hraunbúða bókagjöf í minningu
foreldra sinna, þeirra Jóhannesar J.
Albertssonar og Mörtu Péturs-
dóttur, ágóði af hlutaveltu
Berglindar Jóhannesdóttur 8 ára og
Guðrúnar Lenu Eyjólfsdóttur 7 kr.
620, í maí buðu verkalýðsfélögin í
Vestmannaeyjum heimilisfólkinu í
kaffi, Eyjakjör við Hólagötu færði
heimilisfólki og starfsmönnum
konfekt, ágóði af hlutaveltu
Lárusar Georgssonar og Ólafs M.
Jónssonar kr. 980, ágóði af hlu-
taveltu Ástu Jónu Jónsdóttur og
Ingu S. Amadóttur kr. 1360, ágóði
af hlutaveltu Svölu Jónsdóttur,
Andreu Gísladóttur og Karenar
Aspar Birgisdóttur kr. 1380,
Kvenfélagið Heimaey gaf þrjú
sjúkrarúm ásamt fylgihlutum,
Starfsmannafélag Hraunbúða og
aðstandendur heimilisfólks gáfu
andvirði kaffisölu til kaupa á
tveimur sjúkrarúmum, ágóði af
hlutaveltu Kristínar Stefánsdóttur,
Önnu Kristínar Magnúsdóttur og
Berglindar Jónsdóttur kr. 1200,
Shell gaf tíu spilastokka, Bamakór
Hamarsskóla kom og söng fyrir
heimilisfólk og starfsmenn,
Kvenfélagið Líkn gaf aðventu-
krans, Samkórinn söng, einnig
söngfólk frá Betel, Heildverslun H.
Sigurmundss. hf. færði heimilis-
fólki og starfsfólki konfekt á
aðfangadag, einnig komu
Kiwanismenn og konur og sungu,
með þeim var góður hópur
jólasveina sem færðu öllum sæl-
gætiskassa, Guðrún Sveinbjöms-
dóttir gaf tvær bækur, Mér leggst
eitthvað til, Sagan um Sesselju á
Sólheimum og einnig, Veistu ef vin
þú átt, minningar Aðalheiðar Hólm
Spans.
Fyrir hönd Hraunbúða með
niiklu þakklæti, Lea Oddsdóttir,
hjúkrunarforstjóri.