Fréttir - Eyjafréttir - 23.02.1995, Blaðsíða 16
II ÉTT 5 3
Frétta- og auglýsingasími: 96-13310
[Fríheim-
send-
inga'
^ny þjónusta
SímiII567
Rútuferðir - GM
Skoðunarferðir-Veisluferðir-Grillferðir-
íþróttahópferðir. Sjónvarp og vídeó.
Ódýr og góð þjónusta.
FERDASKRtíSIOFA
REYKJAVÍKUR
Umboðsmaöur í Eyjum:
GÍSLI MAGNÚSSON
Brekastíg 11
sími 98-11909
• /
mánaða
A aðfaranótt laugardagsins fór
Drangavík loksins á sjó en þá
voru fullir þrír mánuðir frá því
hún stoppaði. Nánast sama áhöfn
er á Drangavík og var búið að
tjúka ölluni launagreiðslum áður
en haldið var á sjóinn. Magnús
Ríkharðsson, skipstjóri, er mjög
ámegður með að vera farinn að
vinna aftur og segir að það gildi
fyrir alla um borð.
Eins og margoft hefur komið
fram í blaöinu eignaðist íslands-
banki hf. Drangavík á nauö-
ungaruppboði í júlí sl. Þá fóru í
hönd átök milli bankans og
Sigurðar Inga Ingólfssonar, út-
gerðarmanns, sem er í raun ekki
lokiö ennþá en unt miðjan nóvent-
ber komst báturinn loks í hendur
íslandsbanka. Fyrsta skref bankans
var að auglýsa bátinn til sölu og
sýndu nokkrir áhuga á að kaupa
hann. Það var ekki fyrr en í þessum
mánuði að Ijóst var að Vinnslu-
stöðín hreppti hnossið og t síðustu
viku var loksins gengi frá kaup-
unum. Meðal annars þurfti að klára
launamál áhaínarinnar vegna upp-
sagnarfrests og deilur um veið-
arfæri skipsins og var gengtð frá
þessu um leið og skrifað var undir.
„Viö fórum út á aðfaranótt laug-
ardagsins og crum eiginlega búnir
að vera t brælu síðan vió komum
út. Við byrjuðum á því að fara
vcstur að Snæfellsncsi og náðum
tveimur tvcggja tonna holum fyrir
bræluna og núna erum við að htfa
fyrsta holiö í Grindavíkurdýpi,”
sagði Magnús.
Sama áhöln verður á Drangavík
að tvcimur undanskildum og er
almenn ánægja ríkjandi unt borð að
sögn Magnúsar. „Við erum búnir
að vera stopp í fulla þrjá mánuöi og
því eru nienn ánægðir með að vera
komnir loks á sjó aftur og byrjaðir
aö vinna,” sagöi Magnús.
Sjólaxverksmiðjan Gustur hefur verið stopp frá 13. desember sl.:
Framtíð fyrirtækisins
ræðst á næstu dögum
-Þróunarstarfió miklu dýrara en viö gerðum ráó fyrir.
Höfum náð tökum á framleióslunni en nú vantar fjármagn,
segir Gísli Erlingsson, framkvæmdastjóri.
„Fyrirtækið hefur verið stopp frá
13. desember og ástæðan fyrir því
er tvíþætt. Annars vegar höfum við
verið að afla nýrra markaða fyrir
framleiðsluna og hinsvegar höfum
við verið að leita að fjármagni,”
sagði Gísli Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri sjólaxverksmiðj-
unnar Gusts. Tekist hefur að afla
markaða fyrir sjólaxinn en spurn-
ing hvort verðið er fullnægjandi.
Ennþá er óljóst hvort tekst að
útvega fjármagn. Hvort það tekst
ræðst í þessari eða næstu viku og á
mcðan hangir framtíð Gusts í
lausu lofti. Mikið ríður á að farsæl
lausn fáist á málum Gusts því þar
höfðu um 20 manns atvinnu.
„Markaðsmálin líta nokkuð vel út.
Við höfum verið í viðræðum vió þrjá
aðila og lofa þær góðu. Þar eru menn
aó athuga hvort þeir geti borgað það
verð sem við þurfum að fá. Hráefnið
er söltuð ufsaflök sem við kaupum.
Við höfum ekki pláss eða aðstöðu til
að flaka og salta sjálf og þess vegna
urðum við að fara út í að kaupa
flökin. Eitt vandamálið hefur verið að
losna við afskurðinn sem er um 15%.
Okkur hefur ekki tekist að gera okkur
pening úr afskurðinum en nú erum
við í samningaviðræðum við tvo sem
hafa sýnt áhuga á að kaupa hann,”
sagði Gísli.
Astæðan fyrir því að fjármagn
skortir er að þróunarkostnaður fór
langt fram úr því sem reiknaó var
með. „Hann varð miklu dýrari en við
gerðum ráð fyrir. Viö erum búin að
leggja tugi milljóna í þetta en lítið
fengið á móti. Framtíð fyrirtækisins
ræðst af því hvort okkur tekst að fá
inn nýtt fjármagn eða ekki. Þá er ég
ekki að tala um lánsfé heldur peninga
í formi styrkja eða áhættufjármagns.
Það hefur gengið illa að sannfæra
menn um að þetta sé nýsköpun í
atvinnumálum sem sér 20 manns
fyrir atvinnu. Síðast en ekki síst erum
vió að fullvinna sjávarafurðir sem
ætti að vera mönnum umhugs-
unarefni á tímum minnkandi kvóta.”
Gísli segir að ekki sjái ennþá fyrir
endann á því hvort síðasta tilraun
þeirra til aö fá inn nýtt fjármagn beri
árangur. „Við höfum rætt við
ráðherra og þingmenn sem við
höldum aó geti komið að málinu. Þau
mál eru í vinnslu og skýrast í þessari
eða næstu viku. Hvort fjármagnið
fæst eða ekki ræður af eða á um
framtíðina. Við höfum sýnt og
sannað að við getum framleitt sjólax í
því magni og gæðum sem
markaðurinn krefst, én við höfum
ofkeyrt okkur fjárhagslega,” sagði
Gísii að lokum.
Rannsaka loðnu og þykkvalúru
Nemendur Framhaldsskólans eru þessa dagana að undirbúa sig undir
hugmyndasamkeppni ungs fólks í vísindum. Hún nær til alls landsins og
fara sigurvegararnir til Newcastle í keppni á vegum ESB.
Um er að ræða tvö verkefni, hrygningu loðnunnar og að finna nýjar
leiðir til að veiða þykkvalúru.
Tveir nemendur, Reynir Hjálmarsson og Jóhann Örn Friðsteinsson
önnum kafnir við að rannsóknir á loðnu í Rannsóknasetrinu.
Rækjutogarinn
^Andvari VE
iitisi
Rækjutogarinn Andvari VE Ienti
í kolvitlausu veðri þegar hann
leitaði vars á sunnudaginn. Var
hann á veiðum á Dohrnbanka
þegar veðrið skail á og á leiðinni í
land missti hann út gúmbjörg-
unarbát og slöngubátur kastaðist
niður á dekk og skemmdist.
Pétur Sveinsson, skipstjóri, vildi
ekki gera míkið úrþessu þegarrætt
var víó hann en hann viðurkenndi
þó að vcðrið hefói verið kolvitlaust.
Veðurhæð var inik.il og stóð vind-
hraöamælirinn í 60 til 70 hnútum
og mest fór hann í yfir 80 hnúta
sem eru 12 vindstig eða meira og
telst þaö fárviöri. „Þetta er mjög
erfitt svæði, einkuni vcgna þcss
hvað langt er í land og í norðan og
norðaustan áttum er veðriö á hlið á
iandlciöinni. Þaö spáði mikillí
ísingu á Dohrnbanka og Græn-
landssundi og þvi þorði ég ekki
annað en aö leíta vars,” sagöi Pctur.
Þcssi veöurhamur cr ekkert eins-
dæmi á Vestfjaróamióum en sem
bctur fer losnuöu þeir viö ísingu.
„Við fengum tvær ansi myndar-
legar skvettur á okkur og þá l'óru
bátamirafstaö. Slöngubáturinn féll
ofan á dckk og skemmdist og utan-
borðsmótorinn á honum fór í
sjóinn. Gúmmíbátur, sem var uppi
á brú slitnaði úr festingum og kast-
aðist yfir i stjör og þaðan í sjóinn.
Hann hékk í bandinu og tókst
okkur að ná honum um borð aftur.
Aórar skemmdir urðu ekki og
komum vió inn á Dýrafjörð á
aöfaranótt sunnudagsins,” sagði
Pétur sem var á leið tíl ísafjarðarað
ná í nýjan björgunarbát.
Allskonar
sendibílaakstur
innanbæjar.
Vilhjólmur
Bergsteinsson
s: 12943, vs: 985-34136
semirenMiki
Teikna og smíða:
Sólstofur, útihurðir,
glugga, utan-
hússklæðningar,
bakviðgerðir og mótauppsláttur.
- Ágúst Hreggviðsson,
s; 12170.
A-A fundir
A-A fundir eru haldnir sem hér segir í húsi
félagsins að Heimagötu 24: Sunnudaga kl.
11:00, mánudaga kl. 20:30, miðvikudaga
kl. 20:30 (móttaka nýliða kl. 20:00),
fimmtudaga kl. 20:30, föstudaga kl. 23:30
og laugardaga, fjölskyldufundir kl. 20:30.
Athugið símatima okkar sem eru hvern
fundardag og hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru í 2 klst. í senn.
Raflagnaþjónusta
Nýlagnir-Breytingar-ViðhaJd -
Heimilistækjaviðgerðir
Sveinn Hauksson
Kirkjubæjarbraut 8
Sími 12882, boðtæki 984-6112
Ökuþjónustan
Steffy
Bíll fyrir sérstök tækifæri!
Sími 98-12619
& 985-29453