Fréttir - Eyjafréttir - 23.02.1995, Page 11
Skemmtistaðirnir í Vestmannaeyjum:
„Kolruglaður bransi"
'Skemmtistaðabransinn í Eyjum hefur gengið í
geghtfm miklar hremmingar á undanförnum árum.
Eigendur hafa komið og farið, staðirnir eru of margir
og vonlaust fyrir þá alla að lifa á brennivínssölu til
þeirra 400-500 manna sem heimsækja öldurhúsin í
leitað upplyftingu um helgar. FRÉTTIR tóku púlsinn á
þeim aðilum sem eru í skemmtistaðabransanum í
Eyjum í dag.
Þórður Norðfjörð kokkur leiglr rekstur Calypso sem er einn fimm
skcmmtistaða í bænum.
Þegar aðeins er litió nokkur ár aftur
í tímann hafa breytingamar verió
ótrúlegar. Fyrir rúmum áratug voru
Skansinn og Hallarlundur upp á sitt
besta og samkeppnin höró. Skansinn
hafói betur en haföi blætt þaö mikió út
aö staðurinn átti sér ekki viðreisnar
von eftir þann slag. Einnig kom tii
sögunnar skemmtistaðurinn Vina-
minni í Kiwanishúsinu 1987 en sá
staður varö ekki langlífur. Viö rckstri
Skansins og Gestgjafans tóku nýir
rekstraraöilar og nöfnunum breytt í
Höfóinn og Við félagamir. I nokkur
misseri sátu þeir einir aö markaönum.
En vorið 1993 varð sprenging í
skemmtistaðabransanum því til
sögunnar komu þrír nýir skenimti-
staðir með skömmu millibili. og allt
pöbbar. Þetta voru Skútinn, endur-
reistur eftir eldsvoða, Muninn sem
opnaði á nýjum stað að Bámstíg 1 og
Mánabar. Nú voru staðimir orðnir
fimm og einfaldlega allt of margir.
Nokkrum mánuðum síðar gáfust
leigjendur Höfðans og Okkar féla-
ganna upp og eigendur húsnæðisins
neyddust til að hella sér í skemmti-
staðabransann. Þeir létu Höfóann
halda sínu nafni en Við félagamir
fengu nafnið HB Pöbb. Það varð
aðeins upphafið að þrengingunum á
markaðnum. Eigendur Munins leigðu
Þórði Norðfjörð staðinn sem nú
gengur undir nafninu Calypso. Þá var
Skútinn sleginn Sparisjóðnum og
reksturinn leigður Fógetanum úr
Reykjavík. Tveir skemmtistaðir eru
því í leigu um þcssar mundir.
Eftir eigendaskipti, breyttar kenni-
tölur, leigur og aðrar sviptingar á
markaðnum, eru flestir á því að
skemmtistaðirnir hafi ekki enn gengið
í gegnum allan hreinsunareldinn.
Skemmtistaðimir era einfaldlega of
margir, skemnttanafíklar of fáir, vín-
sala er ntun minni en fyrir nokkrunt
árum og þar að auki hefur útleiga
frjálsra félagasamtaka á salarkynnum
sínum töluvert að segja fyrir stóru
skemmtistaðina. Og það er dýrt aó
reka skemmtistað í dag. Sem dæmi
kostar árs skemmtanaleyfi um 160
þúsund kr. Starfsmannahald er kostn-
aðarsamt en þaó er opinbert
leyndarmál að flest starfsfólk þiggur
svart kaup fyrir vinnu sína í þessum
geira. Annars fengist ekki starfsfólk í
slíka aukavinnu. Alagning á víni er
ntjög ntisjöfn en yfirleitt um 120-150
prósent og út úr hverri flösku af sterku
víni er reynt að fá tvöfalt andvirði
hennar. A álagningunni lifa flestir
skemmtistaðimir og á meðan hver
gestur drekkur eitt til tvö glös á
bamum, er ekki nema von að
skemmtistaðaeigendur beri sig illa.
„Ekki hægt að treysta á
nokkurn skapaðan hlut“
Rafn Pálsson, hótel- og skemmt-
anastjóri Höfðans, HB Pöbb og
Bræðraborgar, tók vió rekstri
skemmtistaðanna fyrir rúmu ári síóan.
Hann var eiginlega neyddur til þess
því þeim aðilum sem voru meó HB
Pöbb og Höfðann á leigu tókst ekki að
halda úti rekstrinum. Hvemig kemur
þessi bransi honum fyrir sjónir eftir
árs starf?
„Hann er alveg kolruglaður. Það er
bara eitt orð yftr það. Það er ekki hægt
að treysta á nokkum skapaðan hlut.
Það er alveg sama hversu góð númer
boðið er upp á. Eina helgina er allt
troðfullt cn þá næstu hálftómt. Eins og
um síðustu helgi vorum við með
Bong. Það mættu um eitt hundrað
manns samtals bæði föstudags- og
laugardagskvöld. Bong kom síðast
í BRENNIDEPLI
fyrir tveimur mánuðum og vakti mikla
athygli. En svo hrynur aðsóknin núna.
Það er erfitt að finna ástæður fyrir
þessu, nema helst að mikið hafi verið
að gera í loðnunni.”
Rafn segir að það hafi verið metn-
aður hans aö bjóða upp á sem
fjölbreyttast úrval af skemmtikröftum
og reyna að höfða til sem flestra, allt
frá Eymönnum og upp í Tweety. Hann
hafi stýrt þessu eins og hann hafi talið
hagkvæmast og t.d. aldrei verið með
opið á báðum stöðum í einu, þ.e. HB
Pöbb og Höfðanum. „Þá erunt við
bara í samkeppni við sjálfa okkur. Það
er miklu betra að geta stjómað þessu.
Það er vonlaust að vera með allt fullt
öðrum megin en nokkrar hræður á
hinum staðnum. Það er of dýrt að gera
það.”
Það var opinbert leyndarmál í
skemmtanabransanum hér á árum
áður, og má rekja til þess þegar
samkeppni Skansins og Mylluhóls/-
Hallarlunds var hvað hörðust, að
hljómsveitir ofan af landi mökuðu
krókinn með heimsókn til Eyja. Að
skreppa til Eyja eina helgi var eins og
að fá góðan lottóvinning því
skemmtistaðimir borguðu fast verð,
alveg sama hvort aðsóknin var góö
eða léleg. Rafn segir að þegar hann
byrjaði hafi hann heyrt tölur frá 32
upp í 380 þúsund sem hljómsveitir
fengu fyrir að koma til Eyja og spila.
Að spila upp á prósentur af
aðgangseyri máttu stórhljómsveitimar
ekki heyra á minnst. „Eg fór strax í að
breyta þessu. Þetta gekk einfaldlega
ekki upp. Hjá okkur leika hljómsveitir
aóeins upp á prósentur í dag og fá þá
yfirleitt 40-60 prósent af aðgangseyri.
Eg sé ekkert eftir því að
hljómsveitimar fái betur út úr þessu ef
vel gengur. Og ef aðsóknin er léleg að
þeir fái minna. Þá tapa báðir aðilar í
stað þess að hljómsveitin fékk alltaf
sitt. Það var alltaf veitingaaðilinn sem
sat uppi með áhættuna. Þetta var
svona víðast hvar á landsbyggðinni en
kannski einna verst hér. En ég hef
verið í sambandi við góða aðila úti á
landsbyggðinni vegna þessa. Við
höfum verið að bera saman bækur
okkar og samræma aðgerðir og nánast
allir eru komnir með prósentu.” •
Rafn segir að allir aðilar, með heil-
brigða skynsemi, sjái að skemmti- og
veitingastaðimir í Eyjum séu of
margir. Skemmtistaðimir era fimm að
berjast um 350-500 hræður sem fara
að meðaltali út á lífió um hverja helgi.
Það gefi auga leið að fimm staðir lifa
ekki á því. Allir staðimir, nema þá
Höfðinn þegar hann er opinn, treysti á
vínsölu og segir Rafn að meóaltalið í
vínsölunni sé aðeins um eitt glas á
mann í dag. Þetta hafi minnkað mikið
á undanfömum áram og fólk fái sér
frekaf í staupinu heima og komi því
seinna út á lífið um helgar.
Aðspurður hvort útleiga frjálsra
félagasamtaka á sölum sínum til
skemmtanahalds, komi ekki niður á
skemmti- og veitingastöóum sem era í
rekstri alla daga og allan ársins hring,
ypptir Rafn öxlum í hálfgerðum upp-
gjafartón og segir lítið hægt að gera
við því. Reyndar sé sýslumaður að
gera gangskör í því að taka á
tímabundnum vínveitingaleyfum og
það sé af hinu góða.
En hvemig gengur að reka hótel,
matsölu- og skemmtistað í Eyjum?
„Það má segja að þetta bakkar hvert
annað upp. Rekstur hótelsins er aðal-
lega yfir sumartímann en við reynum
þá að gera meira fyrir skemmtistaðina
á vetuma. Eg segi það fyrir mitt leyti,
miðað við það að vera með cldhúsið í
rúmt ár, að ég myndi ekki vilja standa
í því að reka veitingastað í Vest-
mannaeyjum án þess að hafa hótel.
Ég hefði aldrei trúað því þegar ég
tók nauðbeygður við rekstri HB Pöbb
og Höfðans að þessi bransi gæti verið
svona klikkaður. Það er ekki treyst-
andi á nokkum skapaðan hlut,” vora
lokaorð Rafns.
„Of margir skemmti-
staðir“
Vignir Guðmundsson þjónn, sér
um rekstur Lundans sem áður hét
Skútinn. Sparisjóður Vestmannaeyja
eignaðist húsnæðið á uppboði í lok
síðasta árs en hefur Ieigt reksturinn
Fógetanum í Reykjavík, þrátt fyrir að
aðilar innanbæjar hefðu boðið í rekst-
urinn.
í samtali við FRÉTTIR sagði Vignir
að reksturinn hefði verið erfiður það
sem af er árinu. En síðasta helgi hefði
verið góð og vonandi færi vegur
skemmtanabransans vaxandi með
hækkandi sól og batnandi atvinnulífi.
„Aðsóknin frá því Lundinn opinaði
hefur verið þolanleg mióað við
árstíma. En málið er að skemmti-
staðimir eru allt of margir, þeir era
fimm að lokka til sín 400-500 manns
um hverja helgi. Það er alveg á
mörkunum að hægt sé að draga fram
lífió á þessu og byggist fyrst og fremst
á því að halda öllum kostnaði í algjöra
lágmarki.”
Eftir að pöbbamenningin hélt
innreið sína í Eyjuni fyrir nokkrum
misserum síðan, hefur skapast sú hefð
aó enginn aðgangseyrir er að pöbb-
unum. Vignir segir að af þeim sökum
gangi engan veginn að bjóða upp á
stór bönd. Aðsókn sé einfaldlega
engin sé rukkað inn. Það hafi rnarg-
sannað sig. Aðeins sé hægt að bjóða
upp á trúbadora og þeir eru á föstu
kaupi. „Það er allt öðruvísi kostnaður
ef við fáum hljómsveitir. Skemmti-
staðurinn borgar feróir, uppihald og
gistingu. Þetta er fljótt að komá ef það
eru 4 til 5 í hljómsveit. Þá bætast við
tugir þúsunda í aukakostnað, fyrir utan
launaliði,” segir Vignir.
Um frjáls félagasamtök og útlcigu
þeirra á salarkynnum og jafnvel vín-
veitingaleyfi, segir Vignir að það sé
allt í lagi að félagsskapurinn sem á
salarkynnin, nýti þau sem slík. En
þegar verið sé að leigja salinn út til
annarra hópa, sé verið að ryðjast inn á
starfsemi veitinga- og skemmtistaða í
Eyjum. „Það era í gangi um hverja
einustu helgi 2 til 3 einkasamkvæmi í
leiguhúsnæði út í bæ. Þetta hefur tölu-
vert að segja fyrir okkur sem eram að
reyna að lifa á þessu.”
Vignir segist hafa ofan í sig og á
eins og komió er en hann hafi mikið
fyrir þessu. Hann vinnur einn fimmtu-
dags- og sunnudagskvöld og starfs-
mannahald er í algjöra lágmarki föstu-
dags- og laugardagskvöld.
„Það er ekki hægt að treysta á neitt í
þessu. Þetta hefur verið frekar rólegt
hjá mér en svo er allt fullt eins og um
síðustu helgi. Og ég skil ekkert af
hverju það var. Vonandi veröur það
þannig áfram en þetta er bransinn í
hnotskum,” sagði Vignir.
„Fer eftir því hvað menn
skulda“
Jón Olafur Daníelsson rekur lang
minnstu rekstrareininguna af pöbb-
unum, Mánabar. Hann leigirhúsnæðið
af Hertoganum og ber sig mjög vel.
Svo virðist sem lítil eining eins og
Mánabar sé sú eina sem gangi vel í
þessum bransa í dag.
„Hvemig þetta gengur fer aðallega
eftir því hvaó menn skulda. Ef menn
skulda mikið er ekki hægt að komast
út úr því. Svo eru staóimir- hér of
margir,” segir Jón Oli.
Hann segir sinn staö það hæfilega
stóran, eða lítinn, að yfirleitt er hann
einn í vinnu og því er enginn launa-
kostnaður að ráði og yfirbygginginn
engin. „Þetta er tiltölulega einfalt og
heimilislegt og algjör aukavinna hjá
mér og ég á þetta skuldlaust. Einnig
hef ég safnað traustum og góðunt
kúnnum og þeir fá góðan afslátt hjá
mér. Þetta gengur vel svona og fyrir
vikió get ég leyft mér að vera eins
ódýr og raun ber vitni. Sem dæmi er
ég langódýrastur í Irish, sem ég sel
mest af. “
Aðspurður um samkeppni frjálsra
félagasamtaka segist Jón Oli ekkert
finna fyrir því sjálfur. Hins vegar hafi
það án efa áhrif á stóra skemmti-
staóina.
Ekki náðist í Þórð Norðfjörð á
Calypso þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Þess má geta að í næstu viku verður
birt verðkönnun sem FRÉTTIR hafa
gert á börum bæjarins. ÞOGU
Veski Sveins Valdimarssonar hvarf með dularfullum hætti.
Óskemmtileg lífsreynsla í sólarlandaferð:
• •
Ollum pening-
unum var stolið
- af Sveini Valdimarssyni þegar hann var aó skrá
sig inn á hótelió.
Þann 12. janúar sl. varð Sveinn Valdimarsson fyrir þeirri óskemmtilegu
reynslu á Kanarí, að öllum peningum sem hann hafði meðferðis, var
stolið þar sem hann var að skrá sig inn á hótclið. Hafði hann lagt
peningaveskið frá sér á borðið í móttökunni og meðan athyglin beindist
að krökkum sem voru að leika sér hvarf veskið með öllu sem í því var, um
300 þúsund pesetum.
„Við voram aó tékka okkur inn á hótelið Luna Golf á Marpalomaströndinni
á Kanaríeyjum og lagði ég veskið frá mér á borðið. Islendingur stóð öðram
megin við mig og fararstjórinn hinu megin. Augnablik beindist athyglin að
krökkum sem vora að kasta á milli sín bolta í móttökunni og þegar ég leit við
aftur var veskið horfið með öllu sem í því var, um 300 þúsund pesetum í
reiðufé og sá ég það ekki meira,” sagði Sveinn og hefur hann enga skýringu á
því hvemig veskið hvarf eöa hver tók það. „Ég fæ veskið aldrei til baka eða
peningana og vil ég eindregið vara fólk við því að hafa mikla peninga með sér
í svona ferðir. Það á ekki að hafa Lreiðufé nema 20 til 30 þúsund peseta, í
mesta lagi því þama er mikill þjófafaraldur,” sagði Sveinn sem þama sá á eftir
öllum sínum farareyri en sem betur fer hafði hann með sér kreditkort þannig
að hann var ekki á flæðiskeri staddur. „í þær þrjár vikur sem við vorum úti
heyrðum við á hverjum degi um-fólk sem varð fyrir barðinu á þjófunum og
virtist aldrei of varlega farið. Ég vil því hvetja alla sem fara út að gæta sín vel
því þetta virðist vera vaxandi vandamál,” sagði Sveinn að lokum.