Fréttir - Eyjafréttir - 23.02.1995, Side 13
; ; ; . g
Fimmti jdagurinn 23.febníar I995 ..!t:§Lfil..l!l..lk 1111 JÉmult 13
50 manns á kynningarfundi Þjóðvaka í Eyjum:
Ihaldssemiverkalýðshreyfingarinnar
-Bóndinn stal senunni frá Jóhönnu Siguróardóttur.
Mcirihluti þeirra scm fylgdist meðkynningarfundi I’jóðvaka voru konur.
Um 50 manns voru á kynningar-
fundi Þjóðvaka í Eyjum í síðustu
viku þar scm aðairæðumaður var
Jóhanna Sigurðardóttir, alþingis-
maður og formaður Þjóðvaka.
Reyndar voru um 20 manns í
upphafi fundarins cn fundarmönn-
um fjölgaði þcgar á leið. Aðallcga
var þar um að ræða Snótarkonur
scm voru að koma af fundi hjá Snót
þar sem samþykkt var heimild til
vcrkfallsboðunar. Langflcstir fund-
armanna voru konur. Umræður
urðu nokkuð fjörlegar en óhætt er
að scgja að Jóhanna hafí fallið í
skuggann á fundinum fyrir Þorkeli
Steinari Ellertssyni bónda.
Kynningarfundurinn hófst með
stuttum ávörpum áður en formaðurinn
og aðalgestur fundarins tók til máls.
Hreiðar Hcrmannsson frá Sel-
fossi, og fyrrum smiður í Eyjum,
lagði áherslu á sjávarútvegsmál í sinni
ræðu. Hann vildi fá öll togveiðiskip út
fyrir 30 mílumar og einungis leyfa
línu- og netaveiðar þar fyrir innan.
Hann vildi að allur fiskur væri full-
unninn í landi því slíkt skapaði meiri
atvinnu og sagði fiskveiðilögsöguna
og fiskistofnana vera þjóðareign.
Þjóðvaki vildi einnig að allur fiskur
færi í gegnum fiskmarkaði hér á landi
með fullvinnslu í huga. Þá vildi
Hreiðar ekki kannast vió klofning í
sjávarútvegsmálum innan flokksins.
Ragnheiður Jónasdóttir, verka-
kona frá Hvolsvelli, spurði hvort
ástandið í þjóðfélaginu væri verka-
fólkinu að kenna? Nei, sagði hún, það
væri vegna óstjómar stjómvalda.
Ragnheiður sagði að Þjóðvaki legði
áherslu á mótun heilbrigðrar fjöl-
skyldustefnu og vildi breyta þessu
þjóðfélagi. Nógur væri auður landsins
en honum væri óréttlátlega skipt.
Þorsteinn Hjartarson, Brautar-
holti Skeiðum, sem mun skipa efsta
sæti listans á Suðurlandi, sagði aö
kosningamar að þessu sinni myndu
snúast um traust. Það skipti miklu
máli hvaða einstaklingar veldust til
forystu. Hann kont inn á sjávarútvegs-
mál og sagði að Þjóðvaki vildi leyfa
erlendar fjárfestingar í íslenskum
sjávarútvegi, að hámarki 20%. Einnig
vildi hann að aflaheimildir hagræð-
ingasjóðs verði auknar. Hann benti
Vestmannaeyingum á hvemig tengja
mætti saman fiskveiðar og ferða-
þjónustu, t.d. með því að bjóða
ferðamönnunt í dagsferðir út á sjó þar
sem ferðamenn fengju að taka þátt í
veiðitúr.
Þorkell Steinar Ellcrtsson, bóndi,
tók næstur til máls og flutti tölu í
gamni og alvöru, eins og það var
orðað. Ohætt er að segja að hann hafí
farið á kostum og stolið senunni á
fundinum, m.a. frá aðalræðumanni
kvöldsins. Hann lýsti því hvers vegna
hann, ópólitískur maðurinn, hefði
gengið til liðs við Þjóóvaka og hvatti
fundarmenn til að gera slíkt hið sama.
Frásögn Þorkels af koniu bóndans í
sjávarþorpið Vestmannaeyjar var
bráöskemmtileg. Hann sagði m.a. frá
því að hann heföi farið á bryggjumar
þar sem var verið að landa upp. úr
loðnubátunum. Eftir að hafa hleypt í
sig kjarki, fór Þorkell upp í brú á
einum bátnum. Þar hitti hann fyrir
m.a. eldri mann meó grásprengt hár
og lífsreynsluna í augunum, og unga
stúlku, um tvítugt. Þau tóku tal santan
og ræddu saman um lífsins gagn og
nauðsynjar. Þorkell sagðist hafa bent
þeim á að ýmislegt væri að í
þjóðfélagi okkar, t.d. að 160 ntanns
væm atvinnulausir í Eyjum. En þá
svaraði gamli maðurinn að bragði:
„Þetta eru ekkert annað en helvítis
kommúnistar sem nenna ekki að
vinna." Þegar Þorkell sneri sér að
stúlkunni, sagði hún að þaó væri til-
gangslaust fyrir hann að reyna aö fá
sig til liðs við Þjóðvaka því hún væri
blá, hefði alla tíð verið blá og yrði
ávallt blá í gegn.
Jóhanna Sigurðardóttir, alþingis-
maður og fomiaður Þjóðvaka, kom
víða við í ræðu sinni. Hún hóf mál sitt
á því aó spyrja hvcrs vegna fólk ætti
að treysta henni nú, eftir að hún hefói
setið í ríkisstjóm í 7 ár? „Eg gafst
upp” sagði Jóhanna. Hún sagðist ekki
hafa treyst sér enn eina ferðina að lofa
hinu og þessu fyrir kosningar í sínum
gamla flokki, en ekki geta staðið vió
þaó. Gamla fíokkakerfíð hefði ein-
faldlega gefíst upp við að takast á við
vandamál þjóðfélagsins í dag og væri
hrætt við Þjóðvaka. Hér á landi ríkti
stéttaskipting en því vildi Þjóðvaki
breyta með nýjum vinnubrögðum.
Henni varð tíðrætt um smákóngaveldi
sem gerói allt til þess að tryggja
sérhagsmuni sína. Jóhanna sagðist
vilja ganga á hólnt við þetta kerfi og
fá réttlátari skiptingu þjóðarkökunnar.
Hér væri tvöfalt launaketfi sem þyrfti
að stokka upp. Þá sagði hún að fjór-
flokkamir hefðu ekki þorað að takast
á við lífeyrissjóðakerfíð en Þjóðvaki
vildi fækka lífeyrissjóóum í landinu.
Jóhanna talaði einnig mikið um
skattamál. Hún sagöi fyrirtæki búa
við skattaparadís og yfirvöld auglýstu
landið sem Singapore norðursins fyrir
erlenda fjárfesta, að hér væri lág-
launasvæði. Þessu vill Þjóðvaki
breyta og hætta skattfrelsismörk upp
allan launastigann. Einnig vildi
flokkurinn setja á stóreignaskatt og
fjármagnstekjuskatt en Jóhanna benti
á að Island væri eina landið innan
OECD sem ekki væri með slíkan
skatt. Jóhanna vildi gera auknar
kröfur til atvinnulífsins þar sem alltaf
væri byrjað og endaó á fólkinu á
gólfínu. Framleiðni íslenskra fyrir-
tækja væri með því lægsta sem
þekktist.
Næst kont Jóhanna inn á fjárlög
ríkisins. Hún sagöi niðurskurð þar
vera handahófskenndan. Heilbrigðis-
kerfið væri of dýrt og efla þyrfti
félagsmálakcrfið. Þá benti hún á að
meðan Itún hefði verið félags-
málaráðherra hcfði verið 28% raun-
spamaður í kcrfínu. Jóhanna spurði af
hverju skuldastaða heimilanna í land-
inu væri svona slærn. Það væri ekki
húsbréfakerfinu að kenna heldur
lágum launum fólks. Þjóðvaki vildi
skuldbreytingar hjá fólki sem hefði
lent í erfíðleikum, t.d. atvinnumissi
eða orðið fyriráfalli.
Þá gagnrýndi Jóhanna meirihlutann
í Eyjunt harkalega, fyrir að hafa af
fólki í Eyjum 15-20 þúsund krónur á
mánuði í húsaleigubætur. Þetta væri
mikil kjarabót og hefði í för með sér
10% hækkun í ráðstöfunartekjur fyrir
hjón og 17% fyrir einstaklinga. Þetta
hefói meirihlutinn í Eyjum ekki
samþykkt. Einnig gagnrýndi hún
sveitarfélögin fyrir aö hafa ekki staðið
sig sem skyldi vió framkvæmd
félagslega íbúðakerfisins. Til að
bregðast við vandanunt í kerfinu vildi
Jóhanna lækka fymingu og hafa
sveigjanlegri vaxtakjör.
Um klofninginn í Þjóðvaka á lands-
fundinum, sagði hún að það mál hefði
verið blásið upp í fjölmiðlum. Aðeins
4-5 fundamtenn hefðu gengið út þar
sem þeir hefðu við ósáttir við ályktun
fundarins í sjávarútvegsmálum.
Að lokinni framsögu Jóhönnu urðu
fjörlegar umræður þar sem Jóhanna
var spurð um hin ýmsu mál. Aðallega
brunnu á fundarmönnum sjávarút-
vegsmál, félagslega íbúðakerfíð og
launamál. Jóhanna sagði m.a. um
verkalýðshreyfinguna í landinu að
hún væri stöðnuð. Hún þyrfti að
skoða sig innan frá en þar væri
íhajdssemi nokkuð mikil.
A kynningarfundinunt vom látnir
ganga undirskriftarlistar þar sem
stuðningsmönnum Þjóðvaka gafst
kostur á að skrá nafn sitt. Tveir stuðn-
ingsmenn skráðu sig á listann en fleiri
að hugsa málið, að sögn formanns
Suðurlandsdeildar Þjóðvaka. ÞOGU
Jóhanna í ham í ræðustól. A myndinni eru einnig Hreiðar Hermannsson
og formaður Suðurlandsdeildar Þjóðvaka.
Þorsteinn Hall-
ÉtÉ
Alþýðuflokkurinn hcfur ráðið Þorstein Hall-
grímsson, kylfing og netagerðarmann, sem
kosningastjóra fyrir aiþingiskosningarnar 8.
apríl nk. Hann hóf stðrf sl. mánudag og mun
Alþýðuflokkurinn opna kosningaskrifstofu á laugardaginn
Heiðarvegi 6, við hlið hárgreiðslustofu Gunnhildar.
„Ég var bcðinn um aó taka þetta aó mér og sló strax til þrátt fyrir að hafa
verió frekar óháður í pólitíkinni hingaö til. Þetta kemur sér vel fyrir mig því
ég er aó jafna mig í bakinu. En stefnan er að koma okkar manni,
Eyjamanninum Lúðvík Bergvinssyni, inn á þing. Þaó yrði mjög sterkt fyrir
kjördæmið og er mjög raunhæft markmið. GcSð kosning í Vestmannaeyjum
myndi tryggja það,” sagði Þorsteínn.
í framhjáhlaupi
Föstudaginn 17/2 fór fram sjöunda
og síðasta umferð á Skákþingi
Vestmannaeyja. Staðan fyrir síðustu
umferð var þannig að Hrafn
Amarsson stóó best að vígi með 5Vi
vinnig en næst kom Ægir með 5 og
Sigurjón með 4 vinninga. Aðrir meó
minna og komu ckki til með að
blanda sér í toppbaráttuna. Aður en
seinasta umferðin hófst höfóu Agúst
Omar og Agúst Om teflt skák sem
var frestað úr 6. umferð, ásamt Páli
Amasyni og Andrési sem áttu líka
frestaða skák úr 3 umferð. Ágúst
Omar vann sína skák og Páll vann
einnig sína skák, en Andrés átti skák-
ina unna á tímabili en sást yfir
vinninginn. Svo Páll slapp með
skrekkinn.
En víkjum að 7. umferð. Ágúst
Omar tefldi við Ægi og vann Ægir
skákina nokkuó léttilega. Greinilegt
var aö þreyta sat í Gústa því hann er
ekki vanur að gefast upp átakalaust.
Sigurjón og Hrafn tefldu hörku skák,
sem varð sú skák sem réði úrslitum
um toppsætið og birtist hún hér á eftir
mönnum til skemmtunar. Sigurjóni
tókst að vinna og felldi þar með
Hrafn af toppnum. Páll vann Ágúst
Öm og Stefán lagði Andrés, sem
tefldi með glymjandi rokkmúsík í
eyrunum. Urslitin urðu því þau að
Ægi tókst að verja titilinn annað árið í
röó og er hann því Skákmcistari
Vestmannaeyja 1995. Hann tapaði
einni skák í mótinu, fyrir Hrafni
Amarssyni, en vann hinar. Er hann
vel að sigrinum kominn því hann
vandaði sig mjög vel í skákunum og
flanaði aldrci að neinu. Hrafn hóf
mótið með feikna krafti og leit út
fyrir að hann myndi vinna léttilega en
er líða tók á endasprettinn dalaði
úthaldið og því fór scm fór. Sigurjón
byrjaði illa en er líða tók á mótið kom
gamli styrkurinn fram og hann vann
síðustu fjórar skákimar í röð og
komst þar með í 3. sætið.
Úrslitin urðu því þessi.
1. Ægir 0 Hallgrímsson með 6 vinninga af 7
mögulegum.
2. Hrafn Amarsson með 5 1/2 vinning.
3. Sigurjón Þorkelsson með 5 vinninga.
4. Stefán Gíslason með 4 vinninga.
5. Páll Amason mcð 3 1/2 vinning.
6. AgústÓEinarssonmeð3vinninga
7. Agúst Om Gíslason mcð 1 vinning.
8 Andrés Sigmarsson, en hann hlaut
engan vinning í þesssu móti enda við
ramman reip að draga og í fyrsta
skipti sem hann tckurþátt í svo sterku
móti. En koma dagar og koma ráð.
Hann átti þó margar góóar skákir og
m.a. átti hann unnið á móti Páli og
jafntefli var ckki svo fráleitt í
nokkrum skákum. En gömlu
jaxlarnir voru oft erfiðir og nýttu sér
reynslulcysi hanns- í endatafli til aó
snúa á hann og losna úr klípunum.
Enginn er annars bróðir í leik. Ekki
er að efa það að þetta mót hefur orðið
honum góður skóli og mættu fíeiri
jafnaldrar hans, taka hann sér til
fyrirmyndar.
Ég læt svo fylgja hér með úrslita
skákina milli Hrafns og Sigurjóns en
hefði Hafn unnið hana hefði hann
orðið meistarinn.
Næstkomandi föstudag verður svo
febrúarhraðskákmótið haldið kl 20 í
Alþýóuhúsinu.
Hrafn Arnarsson -
Sigurjón Þorkelsson
Vestmannaeyjum , 7. umferð 1995
1 ,e2-e4 c7-c6 2.d2-d4d7-d5 3.Rbl-
c3 d5xe4 4.Rc3xe4 Bc8-f5 5.Re4-g3
Bf5-g6 6.Rgl-f3 e7-e6 7.h2-h4 h7-
h6 8.Rf3-e5 Bg6-h7 9.Bfl-c4 Rg8-f6
10.Ddl-e2 Rf6-d5 H.Bc4-d3
Bh7xd3 !2.De2xd3 Rb8-d7 13.Re5-
f3 Bf8-e7 14.a2-a3 Rd5-f6 15.0-0
0-0 16.c2-c4 Rd7-b6 I7.b2-b4a7-
a5 !8.Bcl-d2 a5xb4 I9.a3xb4
Dd8-c7 20.c4-c5 Rb6-d5 21.b4-b5
c6xb5 22.Dd3xb5 b7-b6 23.c5-c6
Be7-d6 24.Rg3-e2 Hf8-c8 25.Hal-
c I Rf6-e4 26.Bd2-e3 Ha8-a3
27.Be3-d2 Ha3xf3 28.g2xD Re4xd2
29.Hfl-dl Rd2xD+ 30.Kgl-fl Bd6-
b4 3I.Rc2-g3 Rd5-c3 32.Db5xb4
Rc3xdl 33.Db4-b3 RD-d2+ og
Hvítur gafst upp um lcið enda með
koltapað tafl. 0-1
Með Skákkveðju
Stebbi Gilla.
Vestmannaeyjamcistarinn
Ægir Hallgrímsson.
Bíll til sölu
Buick Skylark árgerð '81 til sölu. Vökvastýri, sjálfskiptur,
6 cyl.ný dekk. Verð aðeins 90 þúsund.
Til sýnis og sölu hjá:
BÍLVERK- Sími 12782