Skessuhorn


Skessuhorn - 26.11.2008, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 26.11.2008, Blaðsíða 29
SVARTIR ENGLAR Ævar Örn Jósepsson Kona hverfur sporlaust og óvenjulega umfangsmikil lögreglurannsókn fer af stað. Svartir englar er önnur sagan eftir Ævar Örn þar sem lög- reglumennirnir Stefán, Katr- ín, Guðni og Árni takast á við flókin sakamál. Eftir bókinni hafa verið gerðir samnefndir sjónvarpsþættir sem njóta mikilla vinsælda. 364 bls. Uppheimar ISBN 978-9979-659-12-9 Leiðb.verð: 1.980 kr. Kilja Þýdd skáldverk DÆTUR MÁLARANS Anna - Karin Palm Þýð.: Hjalti Rögnvaldsson Systkinin María og Martin fá sent málverk frá ókunnri enskri konu. Málverkið er málað af föður þeirra sem hvarf sporlaust þegar þau voru börn. Þau gera sér ferð til suðurhéraða Englands og komast strax á snoðir um ýmislegt um föður sinn. Hundrað árum áður uxu úr grasi tvær systur undir handarjaðri listmálarans föð- ur síns. Flóknir þræðir rekjast saman á eftirminnilegan hátt í þessu margrómaða verki Önnu-Karin Palm. 330 bls. Uppheimar ISBN 978-9979-659-24-2 Leiðb.verð: 2.280 kr. Kilja LÍFSTÍÐ Liza Marklund Þýð.: Anna R. Ingólfsdóttir Þegar David Lindholm, fær- asti lögreglumaður Svíþjóðar, finnst myrtur í rúmi sínu fell- ur grunur á Júlíu eiginkonu hans. Fjögurra ára sonur þeirra er horfinn sporlaust og er Júlía sterklega grunuð um að hafa myrt hann líka. Blaðamaðurinn Annika Bengtzon rannsakar málið á sama tíma og hún sjálf liggur undir grun um að hafa kveikt í húsinu sínu. Heimur henn- ar hrynur meðan hún kafar sífellt dýpra í ofbeldisfulla og myrka fortíð hins myrta. 397 bls. Uppheimar ISBN 978-9979-659-00-6 Leiðb.verð: 1.980 kr. Kilja STEINSMIÐURINN Camilla Läckberg Þýð.: Anna R. Ingólfsdóttir Humarveiðimaður dregur lítið stúlkubarn upp úr sjón- um og í fyrstu er álitið að hún hafi drukknað fyrir slysni. En í ljós kemur að hún var myrt. Hver hefur viljað Söru, sjö ára gamalli, svo illt? Patrik Hedström, sem á nýfætt barn með Ericu, dregst ásamt félögum sínum á lögreglu- stöðinni í Tanumshede inn í flókna morðgátu. Atburðir frá þriðja áratug 20. aldar fléttast samtímanum. Camilla Läckberg er einn vinsælasti glæpasagnahöf- undurinn sem gefinn er út á Íslandi. 444 bls. Uppheimar ISBN 978-9979-9834-7-7 Leiðb.verð: 1.980 kr. Kilja Ljóð BORGARLÍNUR Ari Trausti Guðmundsson Í þessari þriðju ljóðabók höf- undar er það heimshorna- flakkarinn sem hefur orðið og miðlar lesendum af upplifun sinni í fjölmörgum borgum – allt frá Osló og Auckland til Ulaanbaatar. Með því að varpa upp lifandi myndum sem veita lesandanum inn- sýn í ólík lífskjör fólks sýnir Ari Trausti fram á að „hjörtum mannanna svipar saman“, hversu ólíkar sem aðstæður kunna annars að vera. 64 bls. Uppheimar ISBN 978-9979-9834-9-1 Leiðb.verð: 2.880 kr. Kilja FIÐRILDI, MYNTA OG SPÖRFUGLAR LESBÍU Magnús Sigurðsson Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu er óvenjuleg ljóðabók sem stefnir saman erlendum tungumálum, þýðingum og frumortum skáldskap á eftir- minnilegan hátt. Ástarkveð- skapur rómversku stórskáld- anna Katúllusar og Virgils vaknar hér til lífsins í nýjum þýðingum sem kallast á við frumort ljóð höfundar bók- arinnar með margvíslegum hætti. Úr verður heilsteypt verk þar sem ástin, en þó ekki síst sambandsslit elsk- enda, leikur stórt hlutverk. Fyrir þessa fyrstu ljóðabók sína hlaut Magnús Sigurðsson Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2008. 64 bls. Uppheimar ISBN 978-9979-659-23-5 Leiðb.verð: 2.880 kr. FLAUTULEIKUR ÁLENGDAR Þýð.: Gyrðir Elíasson Flautuleikur álengdar er safn þýddra ljóða eftir sam- tímahöfunda frá Evrópu og Norður Ameríku. Mörg þess- ara skálda eru þekkt og viður- kennd, bæði í heimalöndum sínum og utan þeirra, en fæst þeirra hafa þó verið þýdd á íslensku áður. 155 bls. Uppheimar ISBN 978-9979-9834-8-4 Leiðb.verð: 2.880 kr. Kilja blómstrandi bókaforlag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.