Skessuhorn - 26.11.2008, Blaðsíða 30
SJÁÐU FEGURÐ ÞÍNA
Kristín Ómarsdóttir
VIÐVÖRUN – Í ÞESSUM
LJÓÐUM ER FJALLAÐ UM
FEGURÐINA!
Sjáðu fegurð þína staðfestir
að Kristín Ómarsdóttir er í
fremstu röð íslenskra ljóð-
skálda og hefur þar sérstöðu.
Kristín hefur hlotið fjölda við-
urkenninga fyrir ritstörf sín,
ma.a tilnefningar til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna og
Bókmenntaverðlauna sem
og Leikritaverðlauna Norður-
landaráðs.
68 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-15-0
Leiðb.verð: 2.880 kr. Kilja
Fræði og bækur
almenns efnis
ELÍAS B. HALLDÓRSSON
Málverk/Svartlist
Ritstj.: Sigurlaugur Elíasson,
Gyrðir Elíasson og Nökkvi
Elíasson
Bókin um Elías B. Halldórs-
son er yfirgripsmikið verk
sem unnendur listar hans
munu telja happafeng. Mjög
víða var leitað fanga við eftir-
tökur og ljósmyndun lista-
verka Elíasar og ítrustu kröfur
gerðar við vinnslu bókarinn-
ar svo hún mætti verða sann-
ur vitnisburður um fjölhæfan
og margslungin listamann.
240 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-06-8
Leiðb.verð: 9.900 kr.
GUÐMUNDUR ÁRMANN
SIGURJÓNSSON
Úr myndsmiðju / Shaping
Ritstj.: Aðalsteinn S.
Sigfússon og Kristján
Kristjánsson
Í þessari bók er gerð ítar-
leg grein fyrir listamanns-
ferli Guðmundar Ármanns.
Shauna Laurel Jones, Hannes
Sigurðsson og Kristján Kristj-
ánsson eru höfundar texta.
Bókina prýða um 100 mynd-
ir af fjölbreyttum listaverkum
Guðmundar Ármanns.
128 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-04-4
Leiðb.verð: 6.990 kr.
KRISTÍN RÓS
Meistari í nærmynd
Kristín Rós Hákonardóttir
Kristín Rós hóf kornung að
æfa sund með Íþróttafélagi
fatlaðra í Reykjavík árið 1982
og lauk keppnisferlinum tutt-
ugu og tveimur árum síð-
ar. Þá hafði hún sett sam-
tals sextíu heimsmet og níu
Ólympíumet!
Kristín Rós á að baki feril
sem á sér enga hliðstæðu á
Íslandi. Henni hafa hlotnast
margvíslegar viðurkenningar
fyrir afrek sín, bæði á Íslandi
og á heimsvísu. Bókin veitir
innsýn í líf og hugsanagang
þessarar einstöku afrekskonu
sem af einurð og æðruleysi
hefur náð svo glæsilegum
árangri. Kristín Rós er einn
merkasti íþróttamaður sem
Ísland hefur alið.
96 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-05-1
Leiðb.verð: 2.280 kr. Kilja
SAMSPIL
Benedikt Líndal
Myndir: Friðþjófur Helgason
Í bókinni leiða saman hesta
sína tveir afburðamenn,
þeir Benedikt Líndal tamn-
ingameistari og Friðþjófur
Helgason ljósmyndari. Þeir
eiga að baki farsælt samstarf
enda hafa áður komið úr
smiðju þeirra kennslumynd-
irnar Frumtamning og Þjálf-
un. SAMSPIL er lokakaflinn
í þeim þríleik. Hér er á ferð
einstök bók sem sameinar
fræðslu, hugleiðingar og
hreina upplifun.
Bókin er einnig til á ensku.
144 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-01-3
Leiðb.verð: 4.990 kr.
Saga, ættfræði og
héraðslýsingar
ÁRBÓK
AKURNESINGA 2008
8. árgangur
Ritstj.: Kristján Kristjánsson
Árbók Akurnesinga 2008
hefur að geyma viðtöl og
greinar um fjölbreytt efni
sem tengist Skaganum og
íbúum hans. Bókin er prýdd
fjölda mynda.
Áskriftarverð kr. 3.600.
208 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-9772-5-4
Leiðb.verð: 4.490 kr. Kilja
BARÁTTUFÓLK
Bragi Þórðarson
Löngum hefur búið baráttu-
fólk á Skaganum! Í Baráttu-
fólki er brugðið upp sex svip-
myndum af þekktum Akur-
nesingum: Þórði Þ. Þórðar-
syni, Svöfu Þóleifsdóttur, sr.
Jóni M. Guðjónssyni, Herdísi
Ólafsdóttur, Árna Böðvars-
syni og Hafsteini Jóhanns-
syni. Baráttufólk er 16. bók
Braga Þórðarsonar.
228 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-14-3
Leiðb.verð: 4.980 kr.
Ævisögur og
endurminningar
Í HÚSI AFA MÍNS
Finnbogi Hermannsson
Það er ýmislegt sem skýtur
ungum dreng skelk í bringu.
Má þar nefna kerlingar á
Njálsgötunni sem bíða færis
bakvið gardínur að ausa
skömmum yfir krakka og
ketti, ljósameðferð í Austur-
bæjarskólanum – þeirra
nemenda vel að merkja
sem þykja full væskilslegir
á að líta – og svo óttann við
garnaflækjuna. En hún getur
hlotist af því að kyngja hinu
alræmda péká-tyggjói eða þá
sveskjusteinum.
Bernskuminningar Finn-
boga Hermannson frá
Reykjavík eftirstríðsáranna
hljóta að vekja ljúfsárar hug-
renningar hjá fólki sem man
tímana tvenna. Hversdags-
legustu athafnir lifna við og
öðlast merkingu fyrir galdur
tungumálsins.
182 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-17-4
Leiðb.verð: 4.680 kr.
Í þessari óvenjulegu bók er lesendum veitt innsýn í líf og hugsanagang einstakrar afrekskonu sem af einurð
og æðruleysi hefur náð svo glæsilegum árangri. Kristín Rós er ungu fólki hvarvetna hvatning og fyrirmynd.
P0
8.
07
.8
81
·P
re
nt
sm
ið
ja
n
O
D
D
I