Skessuhorn


Skessuhorn - 27.06.2012, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 27.06.2012, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ Um þess ar mund ir gefst Ak ur­ nes ing um og gest um bæj ar ins færi á að bregða sér í lista setr ið Kirkju­ hvol og sjá þar sýn ingu Gyðu L. Jóns dótt ur, „Úr ýms um átt um", sem opn uð var á þjóð há tíð ar dag­ inn síð ast lið inn. Þar sýn ir Gyða verk af ýms um toga; smærri högg­ mynd ir, og ol íu mál verk. Hún hef ur áður hald ið sýn ing ar í Vín ar borg, Birming ham, Kaup manna höfn og á Akra nesi, þar sem hún býr nú. „Ég er eitt ell efu systk ina og hér eru fimm þeirra nú bú sett, svo að hér er gott að vera," seg ir hún, en hún var um langt skeið bú sett er­ lend is og er ný lega flutt aft ur heim til fóst urjarð ar inn ar. „Árið 1963 fór ég í skóla til Banda ríkj anna, þá tví tug, og þar dvald ist ég í tvö ár, lærði aug lýs inga teikn ingu við Art Instruct ion School. Síð an fór ég í skóla í Englandi árið 1967, þar sem ég lærði högg mynda list við Sir John Cass Col lege og Central School of Art í London. Og þar gift ist ég árið 1970." Svo lengi lær ir sem lif ir Fyrstu árin bjuggu þau Dav id Wells, eig in mað ur Gyðu, í Kaup­ manna höfn, þar sem hann starf­ aði og hún nam á fram högg mynda­ list, að þessu sinni við Kon ung legu Lista aka dem í una. Þeg ar þau höfðu eign ast son inn Valdi mar færðu þau sig aft ur um set og sett ust þá að í Richmansworth á Englandi, þar sem Gyða starf aði um ára bil. „Mér þyk ir af skap lega vænt um Eng land og fer enn þang að nokkrum sinn um á ári, til að vera með barna barn inu." Rak verk smiðju úti í Englandi Í Kaup manna höfn sótti Gyða nám skeið þar sem hún lærði að mála á flís ar. Sú verk þekk ing lagði grunn inn að því starfi sem hún átti eft ir að sinna í tæpa tvo ára tugi, en frá 1980 ­ 1997 rak hún í Englandi verk smiðju nokkra, sem nefnd ist Tess era og fram leiddi skreyt ing ar á vegg flís ar. Verk Gyðu skreyta því marga fjöl farna staði, göngu leið ir í stór borg um og braut ar palla lest ar­ stöðva, svo að fátt eitt sé tínt til. Til að byrja með vann Gyða við flí sa mál un að eins einn dag í viku heima hjá sér með fram því að starfa sem ráð gjafi hjá fyr ir tæki sem seldi gler ung, leir og önn ur efni til lista­ skóla, en smám sam an jókst um­ fang ið og hún fór að mála fyr­ ir mörg fyr ir tæki. Loks hætti hún í fyrri vinnu sinni, varð sér úti um vinnu stofu og tók að ráða til sín að­ stoð ar fólk. Á upp gangs ár um ní unda ára tug­ ar ins gekk afar vel að reka Tess era. „ Þetta óx og dafn aði og þeg ar mest var voru hjá mér sautján manns í vinnu," seg ir Gyða, sem tók eink­ um að sér verk efni fyr ir hót el, veit­ inga hús og sund laug ar, en einnig fyr ir auð ugt fólk sem hafði ráð á að skreyta heim ili sín með í burð ar­ meiri hætti en geng ur og ger ist hjá al þýð unni. Skreytti bað her bergi eins rík asta manns heims Gyða hreppti til að mynda nokk­ ur stór verk efni fyr ir London Tran­ sport, neð an jarð ar lesta kerf ið í Lund ún um. „Við gerð um með­ al ann ars skreyt ing ar fyr ir King's Cross, Mansion Hou se og El ephant and Castle­stöðv arn ar. Í King's Cross­stöð inni voru þetta sam­ tals hund rað þús und flís ar," seg­ ir hún, en þær voru hann að ar eft ir teikn ing um hins kunna lista manns Pauls Huxley, pró fess ors við Royal Academy of Art og eins af merk ustu mál ur um Breta í síð ari tíð. Eitt skemmti leg asta verk efni Gyðu hljóta þó að telj ast flísa­ skreyt ing ar á bað her bergi í ensku sum ar húsi sold áns ins af Bru nei, sem sagð ur er vera einn rík asti mað ur ver ald ar. „Þar þurft um við að búa til all ar flís arn ar sjálf," seg ir Gyða, en þær voru úr gulli. Lista kona, ekki biss ness kona Svona mætti á fram telja ýmis verk efni Tess era, en á með an Gyða rak verk smiðj una hafði hún eins og gef ur að skilja tak mark að an tíma til að gera högg mynd ir eða mála á striga. Með tím an um þurfti fyr­ ir tæk ið að draga sam an segl in og fækka starfs mönn um, enda hafði efna hags um hverf ið þá breyst. „ Þetta var nátt úr lega mjög skap­ andi starf," seg ir Gyða, þótt hún leyni því ekki að hún sé fyrst og fremst mynd höggv ari og hafi ver­ ið orð in lang þreytt á um fangs mik­ illi við skipta hlið rekst urs ins. „Árið 1997 kom svo kreppa og þá lok aði ég bara, fór að gera ann að." Varð strax ást fang in af leirn um Að eig in sögn var Gyða síteikn­ andi sem barn. „Einu sinni ætl aði ég mér að verða besti mál ari á Ís­ landi," seg ir hún kank vís. Hins veg­ ar átti högg mynda list in síð ar eft­ ir að fanga hug henn ar og hjarta: „Um leið og ég kom fyrst við leir­ inn fann ég að þetta var það sem átti best við mig." Ak ur nes ing ar ættu að þekkja vel styttu Gyðu af þeim hjón um Har­ aldi Böðv ars syni og Ing unni Sveins­ dótt ir, en það verk stend ur við Har­ ald ar hús á Vest ur götu, sem Har ald­ ur og Ing unn byggðu og bjuggu í frá ár inu 1925 og er „ flottasta hús ið í bæn um" að mati Gyðu. „Stur laug ur son ur Har ald ar var góð ur vin ur pabba og bað mig að gera þessa styttu. Það var árið 1973 og ég gerði hana úti í Englandi." Þessa dag ana vinn ur Gyða að högg mynd um þeg ar hún fær þann gálinn í sig, en snýr sér svo að mál­ verk um ef hug ur inn leit ar á þau mið. „Ég tek skorp ur við ann að, skipti svo yfir í hitt." Þrátt fyr ir fjöl skrúð ug an náms­ fer il er náms þorsti Gyðu líka enn sterk ur. „Ég gæti vel hugs að mér að setj ast aft ur á skóla bekk," seg­ ir hún. „Fara til dæm is í Lista há­ skól ann hér." Að vísu tek ur hún fram að ó lík legt sé að hún geri slíka dagdrauma að veru leika ­ aldrei megi þó segja aldrei. Sýn ir á bernsku heim il inu Líkt og áður seg ir stend ur nú yfir sýn ing á verk um lista kon unn­ ar í Kirkju hvoli. Lista setr ið stend­ ur við Merki gerði á Akra nesi og varð veit ir með al ann ars lista verka­ safn Akra nes kaup stað ar. Hús ið var byggt árið 1923 og á sér langa og merka sögu. Og þar ólst Gyða upp: „Ég fædd ist fyr ir aust an í Holti und ir Eyja jökl um, en kom hing að þriggja ára," seg ir hún. „ Þetta er því mitt eina sanna heim ili." Á Kirkju hvoli var lengst af prest­ set ur fyr ir Akra nes sókn og þar bjuggu prest ar fram til árs ins 1978, með al ann ars séra Jón M. Guð­ jóns son, fað ir Gyðu, sem lengi var sókn ar prest ur á Akra nesi og vann til dæm is öt ul lega að slysa varn ar­ mál um um land allt. Hann átti sér þann draum að stofn að yrði lista­ safn að Görð um á Akra nesi. Séra Jón lést árið 1994 og var þá stofn­ að ur um hann sér stak ur minn ing­ ar sjóð ur, sem síð ar keypti Kirkju­ hvol með stuðn ingi Akra nes kaup­ stað ar. „Ég á kvað það snemma að ég ætl aði að verða lista mað ur," seg­ ir Gyða. „Og pabbi hvatti mig svo mik ið allt frá upp hafi. Hann var nátt úr lega svo mik ill hug sjóna­ mað ur, og mik ill lista mað ur sjálf ur. Mað ur býr enn að því að hafa átt hann að pabba." Opið er í lista setr inu Kirkju hvoli alla daga frá kl. 14 ­ 17 og stend ur sýn ing Gyðu til 1. júlí. sn Sýn ir ný verk á æsku heim il inu Gyða L. Jóns dótt ir, högg mynda smið ur og list mál ari. Skreyt ing ar sem Gyða gerði á sund laugaflís ar. Lista kon an við nokkr ar af þeim högg mynd um sem nú eru til sýn is í Kirkju hvoli. Gyða gerði með al ann ars flísa skreyt ing ar fyr ir ýms ar neð an jarð ar lesta stöðv ar í Lund ún um. Verk af sýn ing unni „Úr ýms um átt um" í Kirkju hvoli. Handverk og list á Vesturlandi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.