Skessuhorn - 09.10.2013, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Handteknir fyrir
vínþjófnað
AKRANES: Á miðvikudag-
inn síðsta voru tveir karlmenn
handteknir á Akranesi. Þeir
voru grunaðir um þjófnaði í alls
23 skipti á sterku víni úr vín-
búðum á höfuðborgarsvæð-
inu. Verðmæti þýfisins hleypur
á hundruðum þúsunda króna.
Við húsleit heima hjá mönn-
unum fundust nokkrar flösk-
ur af áfengi sem taldar eru hluti
þýfisins. Báðir játuðu brot sín
við yfirheyrslu lögreglunnar á
Akranesi og telst málið upplýst.
-mm
Ellefu óku
of greitt
SNÆFELLSNES: Um mið-
nætti sl. föstudag stöðvuðu lög-
reglumenn bifreið á Snæfells-
nessvegi sem ekið var mikið
yfir löglegum hraða, eða á 128
km/klst. Ökumaður er grun-
aður um akstur undir áhrifum
fíkniefna og við leit í bílnum
fundust kannabisefni. Tíu öku-
menn voru kærðir fyrir of hrað-
an akstur við umferðareftirlit í
umdæminu um síðustu helgi.
Á laugardagsmorgun valt bif-
reið á Útnesvegi við Hellissand
og slapp ökumaður með minni-
háttar meiðsli. –þá
Ellefu hússölur í
september
AKRANES: Ellefu kaupsamn-
ingum um íbúðarhúsnæði var
þinglýst á Akranesi í septem-
ber. Þar af voru 6 samningar um
eignir í fjölbýli og 5 samningar
um eignir í sérbýli. Heildarvelt-
an í þessum viðskiptum var 216
milljónir króna og meðalupp-
hæð á samning því 19,6 millj-
ónir króna. –mm
Netsambands-
laust um tíma
VESTURLAND: Bilun varð
í netdreifikerfi Mílu á Akranesi
og í Borgarnesi um hálfa klukku-
stund sl. fimmtudagsmorgun. Af
þeim sökum urðu netsambands-
lausir þeir sem eru viðskiptavinir
Símans. Gunnhildur Gunnars-
dóttir upplýsingafulltrúa Símans
vildi biðja viðskiptavini fyrirtæk-
isins velvirðingar, en sem bet-
ur fer var brugðist skjótt við og
því vörðu áhrifin ekki lengur en
þessa hálfu klukkustund, sagði
hún. -mm
Um samskipti
skóla og trúfélaga
HVALFJ.SV: Fræðslu- og
skólanefnd Hvalfjarðarsveit-
ar ályktaði á fundi sínum í síð-
ustu viku um samskipti skóla
og trúfélaga. Nefndin ályktar
að trúar- og lífsskoðunarfélög
skulu leitast við að skipuleggja
fermingarfræðslu og eða -ferðir
með þeim hætti að það fram fari
utan skólatíma leik- og grunn-
skóla Hvalfjarðarsveitar og leiði
ekki til mismununar nemenda
utan tiltekinna trúar- og lífs-
skoðunarfélaga. Þetta eigi við
allar heimsóknir í trúarlegum
tilgangi, skemmtidagskrár eða
aðrar kynningar tengdar starfi
trúfélaganna, sem og dreifingu
á boðandi efni. Í ályktuninni er
vísað til almennra regla skól-
ans að ef skipulag viðburða eða
ferða geti ekki átt sér stað utan
skólatíma skulu foreldrar sækja
um leyfi fyrir börn sín til skól-
ans. –þá
Fleiri fengu
viðurkenningar
AKRANES: Í síðustu viku birti
Skessuhorn frétt um að Guð-
mundur Böðvar Guðjónsson og
Hafdís Erla Helgadóttir hefðu
hlotið viðurkenningar fyrir góð-
an námsárangur í Háskólanum
í Reykjavík. Í framhaldi af því
barst blaðinu ábending um að
tveir aðrir Akurnesingar hefðu
verið í hópi þeirra nemenda sem
hlutu viðurkenningar þetta árið.
Kristinn Hlíðar Grétarsson og
Orri Jónsson tæknifræðinemar
voru einnig á forsetalista skólans.
Þeir hafa áður hlotið viðurkenn-
ingar fyrir góðan árangur í námi
en báðir hlutu þeir nýnemastyrk
þegar þeir hófu nám í skólanum
og hafa einnig báðir verið á for-
setalistanum áður.
–grþ
Páll Ágúst
STAÐARST: „Framundan eru
prestskosningar í Staðastaðar-
prestakalli á Snæfellsnesi. Ég
hef ákveðið að bjóða fram krafta
mína til þess að annast þjónustu
sóknarprests í Staðastaðarpresta-
kalli með skyldum héraðsprests
við prófastsdæmið. Af því tilefni
hef ég opnað heimasíðuna www.
pallagust.is þar sem ég kynni mig
og fjölskyldu mína, ásamt mennt-
un, starfsreynslu og framtíðarsýn
fyrir prestakallið. Ég hlakka til
komandi vikna og vonast eftir því
að fá tækifæri til þess að hitta sem
flesta og kynnast íbúum í presta-
kallinu,“ segir í tilkynningu frá
Páli Ágústi Ólafssyni guðfræð-
ingi.
-mm
Klippt af bílum
AKRANES: Lögregla tók skrán-
ingarnúmer af nokkrum bifreið-
um á Akranesi í vikunni. Ým-
ist var það vegna þess að bifreið-
arnar höfðu ekki verið færðar til
skoðunar eða vegna þess að þær
voru ótryggðar í umferð. Nokkr-
ir hlutu sektir fyrir að leggja bif-
reiðum ólöglega, fyrir of hraðan
akstur og fyrir að vera með ljósa-
búnað í ólagi. –þá
Íbúar í Ólafsvík standa
nú fyrir fjársöfnun svo
sinna megi nauðsyn-
legu viðhaldi á kirkj-
unni í bænum. Gripið
er til þessa úrræðis þar
sem sjóðir kirkjunnar
eru tómir. Sævar Þór-
jónsson málarameistari
var sóknarefndarmaður
til 30 ára og í mörg ár
formaður nefndarinn-
ar. „Ég málaði kirkj-
una upphaflega eft-
ir að hún var reist, þá
nýbúinn að læra iðnina
í Borgarnesi. Nú eru
22 ár síðan kirkjan var
máluð síðast að innan.
Það er ekki til króna í
sjóðum hennar til við-
halds. Þess vegna höf-
um við auglýst eftir
framlögum frá einstak-
lingum og fyrirtækjum.
Það eru rakaskemmdir
við glugga í turninum.
Síðan er kirkjan orð-
in sótug af öllum kert-
unum sem menn hafa
brennt í henni gegn-
um árin. Það er orðið
aðkallandi að fara í að
mála hana.“
Sævar segir að söfn-
unin gangi ágætlega.
„Nú bíðum við eft-
ir smiðum sem ætla að
þétta gluggana í turn-
inum. Mikil ótíð og
rigningar hafa tafið
fyrir okkur. Síðan er
ætlunin að mála kirkj-
una í janúar og febrúar
á næsta ári,“ segir Sæv-
ar. Söfnunarreikning-
urinn er númer 0194-
05-401286 með kenni-
tölu 500269-4999.
mþh
Svo virðist sem hreyfing sé komin á
fleiri einkaframkvæmdir í vegagerð
og samgöngumálum á Íslandi en
Vaðlaheiðargöng sem framkvæmd-
ir hófust við fyrir nokkru. Hanna
Birna Kristjánsdóttir innanríkisráð-
herra hefur tjáð sig um það síðustu
dagana að hún vilji auka samstarf
hins opinbera við einkaaðila í vega-
framkvæmdum. Hanna Birna nefn-
ir í þessu sambandi Sundabraut, en
lítið hefur verið minnst á þá fram-
kvæmd frá hruni en fram að þeim
tíma hafði hún verið mikið í um-
ræðunni. Haft er eftir Hreini Har-
aldssyni vegamálastjóra í Frétta-
blaðinu í gær að Vegagerðin sé nú
að skoða þá kosti sem í boði eru
varðandi einkaframkvæmdir. Hann
segir Sundabraut í Reykjavík, Svín-
vetningabraut í Húnavatnssýslu
og veg um Öxi á Austurlandi vera
vegaframkvæmdir sem hægt væri
að setja í einkaframkvæmd. Þær
uppfylli þau skilyrði sem innanrík-
isráðherra setur, en það er að slík-
ar framkvæmdir komi ekki til álita
nema vegfarendum gefist kostur á
annarri leið með þeirri sem færi í
einkaframkvæmd.
Nefnt er að einkaframkvæmd-
ir í vegagerð eins og Sundabraut
verði hægt að fjármagna með þátt-
töku lífeyrissjóða eins og gert var
með Hvalfjarðargöng á sínum tíma.
Lán vegna ganganna eiga að greið-
ast upp í lok árs 2018. Júlíus Víf-
ill Ingvarsson borgarfulltrúi seg-
ir það sé skoðun langflestra að
Sundabraut sé arðbær framkvæmd
en menn verði að hafa í huga að
stilla gjaldtöku í hóf. Síðustu spár
varðandi umferð um Sundabraut,
sem eru raunar nokkurra ára gaml-
ar, gera ráð fyrir að 20 til 30 þús-
und bílar færu um brautina dag-
lega. Til samanburðar má nefna að
um Hvalfjarðargöng fóru að með-
altali í ágústmánuði sl. 6.800 öku-
tæki á sólarhring.
þá
Ólafsvíkurkirkja.
Söfnun hafin fyrir viðhaldi
Ólafsvíkurkirkju
Sundabraut kæmi til greina
sem einkaframkvæmd