Skessuhorn


Skessuhorn - 09.10.2013, Side 13

Skessuhorn - 09.10.2013, Side 13
13MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r www.skessuhorn.is Við kynnum nýjan möguleika í mat og gistingu sem mun opna fljótlega. Hlið á Álftanesi Jólahlaðborð Fjörukráarinnar Hefst 29. nóvember og stendur fram að jólum Söngsveitina okkar skipa þau Kjartan Ólafsson, Elín Ósk, Svava Kristín Ingólfsdóttir, Ólafur Árni Bjarnason. Þau munu ásamt öðrum sem skipa Víkingasveitina okkar sjá um að halda uppi jólaskapinu meðan á borðhaldi stendur. Bjóðum einnig uppá Jólapakka fyrir einstaklinga sem og hópa, Sælkerapakka, Þorrapakka og Árshátíðarpakka. farðu inn á www.fjorukrain.is og og skoðaðu hvað við getum gert fyrir þig. Verð á jólahlaðborði er 7.900 krónur á mann Gerum einnig tilboð fyrir hópa í gistingu og mat. w w w . f j o r u k r a i n . i s P ö n t u n a r s . 5 6 5 1 2 1 3 Sem endranær verðum við með það sem við erum þekktust fyrir, að hafa þetta þjóðlegt með stórkostlegum söngvurum sem eru eitt af því sem hafa gert okkur svo sérstök. Öll hafa þau skemmt hér í áraraðir og því heimavön og nú labba þau á milli borða og syngja lög sem tengjast jólunum. Sjávarútvegsfundur Samtaka sjáv- arútvegssveitarfélaga var haldinn í Reykjavík sl. miðvikudag. Með- al efnis á dagskrá fundarins var er- indi Vilhjálms Egilssonar rektors Háskólans á Bifröst sem nefndist „Á fiskvinnslan að geta átt kvóta?“ Hann greinir m.a. frá þeim ástæð- um og rökum sem Tvíhöfða- nefndin svokallaða hafði fyrir til- lögu sinni um fiskvinnslukvótann sem var ein veigamesta tillagan. Ekki náðist sátt um tillöguna á sín- um tíma en Vilhjálmur velti fyr- ir sér hvernig framþróun í fisk- vinnslunni hefði orðið ef tillagan hefði verið samþykkt. Að mati Vil- hjálms hefði þróunin orðið á for- sendum fiskvinnslunnar frekar en veiðanna sem hefði leitt til hæg- ari þróunar í sjófrystingu en fleiri minni fiskvinnslur hefðu orðið samkeppnishæfari. Meiri stöðug- leiki hefði orðið í sjávarbyggðum og tekjur í vinnslunni meiri, en að sama skapi tekjur útgerðar- og sjó- manna lægri. Þannig hefði rekstur- inn orðið enn markaðsdrifnari, þar sem aflamarkskerfið gefur færi á að skipuleggja sjávarútveginn á for- sendum markaðarins og skapa sem mest verðmæti. Vilhjálmur segir að í dag hef- ur vinnslan í landi náð sér á strik og áhersla lögð á alla verðmæta- keðjuna. Ferskur fiskur er ráðandi í þróuninni og sjófrysting er ekki lengur með sama forskot. Nýj- ar greinar eru að koma inn í líf- tækni, heilsutengdum vörum og lækningavörum sem geta tvöfald- að verðmæti þorsksins. Í kjölfarið velti Vilhjálmur upp þeirri spurn- ingu hvort að nýju hálaunastörf- in muni verða til í sjávarbyggðun- um. Að lokum nefndi hann nokkur dæmi sem hann kaus að nefna stríð morgundagsins, en það er að skil- greina hvað það er og heyja rétta stríðið. Ekki eyða orkunni í stríð fortíðarinnar, heldur kanna hvar verður hægt að ná árangri, hvern- ig sjávarútvegur verður eftir 10-20 ár og hvaða hlut sjávarbyggðirnar munu vilja eiga í þeim sjávarútvegi. mm/ Ljósm. af. Velti fyrir sér þróun sjávarútvegs ef kvótinn hefði verið í eigu fiskvinnsla GRÍPANDI AKSTURSLAG HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1 | AKRANESI | DALBRAUT 14 OPIÐ MÁNUDAG TIL FÖSTUDAGS KL. 08-18 OG LAUGARDAG KL. 09-13 SÍMI 440 1394 | WWW.DEKK.IS COOPER DISCOVERER M+S 2 • Nýtt og endurbætt neglanlegt vetrardekk • Mikið skorið • Einstaklega gott grip • Hentar vel við íslenskar aðstæður • Hannað fyrir Skandinavíumarkað COOPER DISCOVERER M+S • Neglanlegt vetrardekk fyrir jeppa • Mikið skorið með góðu gripi í snjó og ís (sérhannað snjómunstur) • Nákvæm röðun nagla eykur grip á ísilögðum vegum • Endingargott dekk • Vinsælt heilsársdekk fyrir þá sem vilja sem mest grip yfir veturinn. COOPER SA2 • Nýtt óneglanlegt vetrardekk • Frábært veg og hemlunargrip • Góð vatnslosun • Góður míkróskurður • Mjúkt og endingargott

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.