Skessuhorn - 09.10.2013, Blaðsíða 17
17MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
UPPLÝSINGATÆKNI Í HEIMABYGGÐ
UPPLÝSINGATÆKNI Í HEIMABYGGÐ
Omnis auglýsir laust til umsóknar starf sölumanns í verslun í Borgarnesi.
Viðkomandi þarf að hafa til að bera:
Ríka þjónustulund•
Þekkingu á tölvu- og tæknibúnaði•
Sjálfstæði og frumkvæði•
Reynsla af sölustörfum er mikill kostur•
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi sendist í tölvupósti
á atvinna@omnis.is. Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2013.
Nánari upplýsingar veitir Ómar Örn Ragnarsson, í síma 6178310
eða omar@omnis.is.
Sölumaður í verslun
í Borgarnesi
UPPLÝSINGATÆKNIFÉLAGIÐ
Sk
es
su
ho
rn
2
01
3
„Við erum mjög ánægðar með um-
ferðina hjá okkur í sumar. Þetta fór
vel af stað og síðan var greinilegt
að aukinn straumur ferðamanna til
landsins skilaði sér í sveitarfélagið,“
segir Guðrún Kristjánsdóttir sem
starfrækir veitingastaðinn Eddu-
veröld í Borgarnesi ásamt meðeig-
anda sínum Jóhönnu Erlu Jóns-
dóttur. Þær opnuðu staðinn sem er
í Englendingavík 22. mars síðastlið-
inn. „Við náðum páskaumferðinni
og Borgnesingar og Borgfirðingar
tóku okkur ákaflega vel. Við vorum
yfirleitt þrjú á vakt í byrjun en síðan
þegar ferðamannaumferðin byrjaði
þurftum við að fjölga. Í júlímánuði
voru orðnir 13 á launaskrá hjá okk-
ur. Þrátt fyrir votviðrasamt sum-
ar var mikill gestafjöldi og erlendir
ferðamenn mjög í meirihluta, sér-
staklega seinni hluta dags yfir há-
annatímann. Þá var það kvöld eft-
ir kvöld sem enginn talaði hér ís-
lensku nema starfsfólkið. Við feng-
um reyndar tvær vikur fyrir versl-
unarmannahelgina með bongó-
blíðu og þá fylltist allt hjá okkur,“
segir Guðrún.
Veturinn verður „töff“
Aðspurð segir Guðrún að strax upp
úr miðjum ágúst hafi síðan byrj-
að að draga úr komu ferðamanna.
„Þá voru það heimamenn og fólk
úr héraðinu og nágrenni sem fór
að koma meira til okkar. Þannig að
haustið hefur verið alveg þokkalegt.
Við ætlum að hafa opið í vetur, en
vitum alveg fyrir fram að það verð-
ur „töff.“ Á planinu hjá okkur eru
ýmsar uppákomur. Við ætlum t.d.
að hafa jólahlaðborð frá 15. nóvem-
ber til 14. desember. Þar byggjum
við á þeim grunni sem við höfum
frá því við vorum með veitingaþjón-
ustu í golfskálanum í Hamri í fjög-
ur ár. Við verðum líka með veislu-
þjónustu og sendum mat hingað og
þangað, m.a. á þorrablót.“ Guðrún
segist líka eiga von á góðum gest-
um, hópum um helgar, það verði
bara yfir hájólin og áramótin sem
lokað verður í Edduveröld. „Við
erum ánægð hvernig þetta hefur
farið af stað. Við erum að byggja
upp hádegisumferð hjá okkur og
erum með ódýran og góðan heimil-
ismat í hádeginu sem iðnaðarmenn,
verkamenn og annað vinnandi fólk
ætti að nýta sér. Hérna er dásam-
legt að sitja og láta stjana við sig,
hitta mann og annan og spjalla um
liðna daga og komandi átök,“ seg-
ir Guðrún og bætir við í lokin. „Við
höfum líka verið að huga að því að
bæta aðkomuna til okkar. Það þarf
að laga bílastæðið og koma upp lýs-
ingu á göngustígum hér í nágrenn-
inu. Við höfum verið að herja svo-
lítið á sveitarfélagið með þau at-
riði,“ segir hún að lokum.
þá
Guðrún Kristjánsdóttir vert í Edduveröld til hægri ásamt Kristínu Guðlaugsdóttur
starfsmanni.
Gott sumar að baki í Edduveröld
Í Namibíu í sunnanverðri Afríku er einnig að finna stóra eyðimörk.
og flóðhestum undanskildum, en
það eru mjög fá dýr í Vestur-Afr-
íku því búið er að drepa mjög mik-
ið af þeim fyrir mat,“ segir Þorkell.
Stéttaskipting og fátækt er mikil í
Afríku og reyndist það hópnum oft
erfitt að horfa upp á það. „Þú sérð
þetta víða um Afríku og þá kannski
sérstaklega í stórum borgum. Þar
finnur þú þvílíkar ísbúðir, pizzu-
staði og aðra flotta veitingastaði, en
ef þú keyrir í nokkrar mínútur ertu
kominn á stað þar sem fólkið býr á
götunni í þúsundatali. Stéttaskipt-
ingin var mjög sýnileg þar. Einnig
eru fáir staðir þar sem rafmagn er
stöðugt og enn færri þar sem finnst
rennandi vatn. Á fimm vikna tíma-
bili komst ég ekki í sturtu án þess
að hella yfir mig úr fötu. Þegar þú
lærir að nota hana, þá er það þó
fínt,“ segir Þorkell.
Þorkell keyrði stóran hluta ferð-
arinnar og segir vegi í Afríku ótrú-
lega mismunandi. Það gerðist þó
nokkuð oft að þau komust ekki yfir
15 km hraðann því vegirnir buðu
ekki upp á meira og margir mal-
bikaðir vegir voru með stórum
holum. „Í allri Máritaníu er einn
vegur malbikaður og við keyrð-
um hann til enda. Ein bensínstöð
er við þennan veg og annars ekki
neitt nema fólk í bedúínatjöldum,
enda er þetta eyðimörk,“ segir Þor-
kell og bætir við: „Í Máritaníu er
bannað að drekka áfengi, en samt
fundum við bari. Ég fékk mér einn
bjór til að geta sagt að ég hafi gert
það. Lögreglunni er víst alveg sama
um að útlendingar drekki og hirða
bara um heimamenn. Barirnir eru
hugsaðir fyrir erlenda sjómenn sem
mikið er af í Máritaníu.“
Skaut úr byssu
upp í loftið
Erfitt er að skipuleggja svona ferð
með miklum fyrirvara því aðstæð-
ur geta breyst mjög hratt í Afríku.
„Við spiluðum ferðina að vissu leyti
eftir eyranu. Ætluðum til dæmis í
gegnum Malí, í stað Gíneu og Fíla-
beinsstrandarinnar, en þegar við
vorum á leiðinni tóku íslamistar
yfir norðurhluta landsins og Frakk-
ar gerðu innrás í það. Við vorum þó
búin að safna fullt af upplýsingum
fyrir ferðina og vissum alltaf hvað
við vorum að gera,“ segir Þorkell.
Í mörgum löndunum sem þau fóru
í gegnum er erfitt að fá vegabréfs-
áritun. Vegna þessa er þetta eini
hópurinn sem farið hefur á þessu
ári um Vestur-Afríku og í fyrra fór
enginn hópur.
Eitt atvik er Þorkeli mjög minn-
isstætt. Þá voru þau í bílnum í eft-
irlitsstöð einni og einn af þeim for-
vitnaðist um riffil lögreglumanns
sem stóð við hliðina á bílnum. „Þá
svaraði hann, þetta er G3 viltu
heyra? Og við það sama skaut hann
úr rifflinum upp í loftið. Hópur-
inn sem fór saman í ferðina er sam-
heldinn og mynduðust því sterk
vinatengsl, enda vorum við sam-
an á hverjum degi í hálft ár,“ seg-
ir Þorkell. Á hálfsárs ferðalagi var
mikið meira sem hópurinn upplifði
á gamla breska herjeppanum. „Ég
gæti haldið áfram að segja þér frá
ferðinni í allt kvöld. Þetta voru sex
mánuðir og við erum bara búnir að
taka nokkur lönd fyrir,“ segir Þor-
kell að endingu. sko
Auglýst eftir
umsóknum um
Eyrarrósina
Byggðastofnun, Listahátíð í Reykjavík
og Flugfélag Íslands standa saman að
Eyrarrósinni, viðurkenningu sem árlega er veitt
afburða menningarverkefni á starfssvæði
Byggðastofnunar. Umsækjendur geta m.a.
verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða
menningarhátíð. Verndari Eyrarrósarinnar er
Dorrit Moussaieff, forsetafrú.
Þrjú verkefni eru tilnefnd og hlýtur eitt þeirra Eyrar-
rósina, peningaverðlaun að upphæð 1.650.000 kr.
og flugferðir hjá Flugfélagi Íslands. Hin tvö hljóta
300.000 kr. auk flugferða.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2013 og verður
öllum umsóknum svarað. Eyrarrósin verður afhent
í febrúar 2014.
Umsóknir skal senda rafrænt til Listahátíðar í
Reykjavík á netfangið eyrarros@artfest.is.
Umsókn skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu,
tíma- og verkáætlun, upplýsingar um aðstandendur
og fjárhagsáætlun.
Allar nánari upplýsingar á vef Listahátíðar í Reykjavík:
www.listahatid.is og í síma 561-2444.