Skessuhorn


Skessuhorn - 09.10.2013, Qupperneq 18

Skessuhorn - 09.10.2013, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Nafn: Katla Guðlaugsdóttir. Starfsheiti/fyrirtæki: Leikskóla- kennari á leikskólanum Akraseli á Akranesi. Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý með fjölskyldunni minni á Akra- nesi. Áhugamál: Ferðalög, handa- vinna og svo auðvitað fjölskyldan og vinirnir. Vinnudagurinn: Miðvikudagur- inn 2. október 2013. Mætt til vinnu fyrsta verk. Ég mætti klukkan 08.15 og það fyrsta sem ég gerði í vinnunni var að gefa börnunum morgunmat. Klukkan 10? Þá var ég í foreldra- viðtali. Hádegið? Í hádeginu vorum við að borða skyr og heimabakað brauð á deildinni. Við fáum allt- af góðan mat og brauðið er bak- að á staðnum. Klukkan 14? Þá vorum við úti í garði að leika, í alveg yndislegu veðri. Það var svo gott veður að krakkarnir klæddu sig úr jökkun- um. Hvenær hætt og það síðasta sem þú gerðir í vinnunni? Ég hætti klukkan 16.15 og það síð- asta sem ég gerði var að ganga frá á deildinni. Fastir liðir alla daga? Vikan er öll skipulögð hjá okkur en samt allt- af mjög fjölbreytt. Það er ákveðið skipulag á hverjum degi og fastir liðir, svo sem samvera og útivera, en samt er enginn dagur eins. Hvað stendur upp úr eftir vinnudaginn? Þetta var frábær dagur. Veðrið var gott og börn- in skemmtileg og kát. Það var líka gott að hitta jákvæða foreldra en fyrri hluti dagsins fór í foreldra- viðtöl. Var dagurinn hefðbundinn? Nei í raun ekki, þar sem ég var í for- eldraviðtölum um morguninn og þau eru bara tvisvar á ári. Hvenær byrjaðir þú í þessu starfi? Ég byrjaði árið 2009, strax eftir útskrift. Ég hafði aldrei unn- ið á leikskóla áður. Er þetta framtíðarstarfið þitt? Já, þetta er það sem mig langar að vinna við í framtíðinni. Hlakkar þú til að mæta í vinn- una? Á hverjum degi. Eitthvað að lokum? Það er mjög góður andi á vinnustaðnum og mjög skemmtilegt fólk sem vinnur hér þannig að það er alltaf gaman í vinnunni. Þetta er skemmtileg- asti vinnustaður sem ég hef unn- ið á. Dag ur í lífi... Leikskólakennara Eins og margir vita er stærstur hluti húsakosts Sementsverksmiðjunnar á Akranesi ekki í notkun lengur eft- ir að sementsframleiðslu var hætt. Miklar vangaveltur eru um hvað eigi að gera við mannvirkin. Mest- ar líkur hafa verið taldar á að þau verði rifin, jafnvel innan fárra ára, en um það eru þó ekki allir á einu máli. „Það er algjör óþarfi að rífa alla verksmiðjuna. Það þarf vissu- lega að rífa einhverjar byggingar en alls ekki allar,“ segir Valey Bene- diktsdóttir innanhússarkitekt. „Það er alveg hægt að nota þær háu fjár- hæðir sem færu í niðurrif og förg- unarkostnað til að gera mannvirk- in upp þannig að þau þjóni nýju hlutverki. Það væri vel hægt að nota upprunalegu grindina í hús- unum og breyta þeim í hvað sem er. Skemmtilegast væri að Akra- neskaupstaður myndi efna til sam- keppni og nota svo bestu hugmynd- ina,“ segir Valey sem sér marga möguleika felast í byggingunni og staðsetningu hennar við sjóinn, á besta stað á móti suðri. „Fallegt úti- vistasvæði gæti tekið við af gömlu sandgryfjunni. Það eru mörg dæmi þess erlendis að verksmiðjum hafi verið breytt til hins betra á þenn- an hátt,“ segir þessi ákveðna Skaga- kona í samtali við Skessuhorn. Náði sér í menntun og mann Valey lærði innanhússarkitektúr í American Intercontinental Univer- sity í London og lauk BA og BFA prófi með hraði því hún lauk fjög- Sér möguleika í að nýta hús Sementsverksmiðjunnar Rætt við Valeyju Benediksdóttur innanhússarkitekt á Akranesi urra ára námi með prýðiseinkunn á aðeins tveimur árum. „Þetta er hægt á skömmum tíma með því að taka sumarannir og aukafög á vet- urna,“ segir Valey sem greinilega vílar ekki hlutina fyrir sér. Hún fann ekki einvörðungu réttu náms- leiðina í London heldur fann hún þar einnig ástina. Kynntist eigin- manni sínum Stephen John Watt frá Nýja Sjálandi. Eftir að hafa starf- að við innanhússarkitektúr í Lond- on í eitt ár lá leiðin aftur á æsku- stöðvarnar á Akranesi. Þar býr Va- ley nú ásamt Stephen og börnunum þeirra; Mattheu Kristínu, Christian Sturra og Ethan Agnari. Neðri Skaginn Valey er alin upp á Neðri Skaganum hjá foreldrum sínum þeim Benedikt Jónmundssyni og Mattheu Kristínu Sturlaugsdóttur. Gamli miðbærinn og Neðri Skaginn er Valeyju mjög hugleikinn og það kom því aldrei annað til greina en að flytja aftur í þann bæjarhluta þegar heim til Ís- lands var komið. „Það er mikil- vægt að hvert bæjarfélag eigi falleg- an miðbæ. Þá er ekki síður mikil- vægt að viðhalda og gera upp gaml- ar byggingar á Neðri Skaganum, ekki síður en að byggja nýjar,“ seg- ir Valey sem sér fyrir sér spennandi breytingar þegar hún horfir á sum húsin sem þarfnast viðhalds. „Það er ekki endilega nauðsynlegt að henda öllu út, heldur tvinna sam- an gamalt og nýtt. Stundum er þó ódýrara að breyta alveg en að lag- færa hlutina. Verkefni Valeyjar eru stór og smá og flest hafa þau verið á Akranesi, í Borgarnesi og á Reykja- víkursvæðinu. Verkefnin hafa verið allt frá því að aðstoða einstaklinga eða fyrirtæki með lita- og efnisval, hönnun húsgagna, hönnun innrétt- inga og aðstoð við hönnun á grunn- fleti nýrra húsa. Allt frá einfaldri ráðgjöf í gegnum netið, upp í ferli sem nær frá teikniborðinu og fram til þess að iðnaðarmenn hafa lok- ið sínu. „Það er mjög mikilvægt að vera með góða iðnaðarmenn. Það sparar tíma og peninga að fá fag- menn í verkið.“ Eins og hjá fleirum í greininni fækkaði verkefnum Va- leyjar eftir að kreppan skall á en nú hefur verkefnum fjölgað á ný sem er ánægjulegt. Íslendingar eru fagurkerar Á þeim tímapunkti þegar Valey flutti heim kom ekki til greina að flytja til Nýja-Sjálands á heimaslóðir eigin- mannsins hvað sem síðar verður. „Auðvitað togar Nýja-Sjáland allt- af í Stephen enda á hann þar stóra fjölskyldu, en hann er næstyngst- ur 17 alsystkina og flest þeirra búa þar og foreldrar hans einnig,“ Seg- ir Valey. „Íslendingar hafa meiri þörf fyrir innanhússhönnun en t.d. Bretar og Nýsjálendingar. Við Ís- lendingar erum alltaf að bjóða heim en Bretarnir hittast meira á pöbb- um eða veitingahúsum. Á Nýja Sjá- landi er allt annað veðurfar svo þar hefur fólk ekki eins mikla þörf fyrir að hreiðra um sig innandyra,“ seg- ir Valey. Hún segir Íslendinga jafn- framt vera mikla fagurkera og við fylgjumst vel með straumum og stefnum. „Íslendingar eru þó ögn íhaldssamir hvað varðar efni og litaval. Við erum svolítið föst í þess- um hvítu tónum. Bretar eru frjáls- legri í litavali og tilbúnari til að lífga upp á umhverfið með litum. Eins finnst mér efnismiklar gardín- ur vera á undanhaldi, sem er synd því þær gera svo mikið fyrir hljóð- vistina,“ segir hún. Blaðamaður spyr Valeyju að endingu hvert sé draumaverk- efnið hennar? „Öll verkefni eru skemmtileg, skemmtilegast er þó þegar ég fæ svolítið frjálsar hendur hvað varðar efnisval og innra skipu- lag. Draumaverkefnið væri að vera með í hönnun og byggingu húss á Niðurskaga frá upphafi til enda.“ Hægt er að sjá ýmis verk eftir Va- leyju á Fésbókarsíðu hennar. bs Afar praktískt húsbónda-stofuborð, hannað af Valey Benediktsdóttur. Trésmiðja Akraness smíðaði borðið. Valey Benediktsdóttir innanhúss- arkitekt. Valey að hanna í tölvunni. Valey og eiginmaður hennar Stephen John Watt. Glæsilegt eldhús hannað af Valeyju.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.