Skessuhorn - 09.10.2013, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Aldrei verið alveg gift - en oft hefur nærri legið
Vísnahorn
Eftir Sigfús Þorsteinsson er þetta ágæta kvæði
og birt í bók hans Veðraskilum sem kom út
árið 2000:
Nú er sumarið gengið um garð.
Grátt er hið mislynda haust.
Ég sá ekki hvað af sólinni varð
en sakna’ ennar endalaust.
Sumarið gaf mér þá gjöf
sem ég geymi í bjósti mér,
að elska uns geymist í gröf
það sem gott og fagurt er.
Nú sumarið sefur rótt
á svæfli sem haustið gaf.
Við skulum hafa hljótt,
svo við höfum veturinn af.
Svona til að fyrirbyggja misskilning er rétt að
taka það fram að eftirfarandi erindi er orðið
nokkurra áratuga gamalt þó einhverjum kynni
að detta í hug að það væri afrakstur sumarsins
en um höfundinn veit ég ekki:
Sólin er farin veg allrar veraldar,
en vegur allrar veraldar
verður þó aldrei genginn
í sólskini.
Það er aldrei gott að vera með einhvern
óþarfa hávaða og læti en stundum er hægt að
láta skiljast hvað menn meina. Guðmundur
Sigurðsson á Höfða í Eyjahreppi orti að af-
stöðnum réttum:
Réttahátíð hopar frá,
hik á kátum bögum.
Harmagráti herðir á
haust með sláturdögum.
Það er nú svo með sláturafurðir okkar sem
og fleira gott að varan selur sig ekki sjálf (ja,
allavega ekki fyrr en menn fer að svengja).
Hreiðar Karlsson mun hafa ort þessa gagn-
merku auglýsingu sem sannarlega minnir
okkur á lögmálið um framboð og eftirspurn:
Meydómur sem fyrnast fer
flestum eykur byrði.
-Nautakjötið okkar er
einnig lítils virði.
Þegar Andrés Jóhannesson frá Sturlu Reykj-
um var ungur maður í Reykholtsskóla voru
þar að sjálfsögðu einnig ungar og girnilegar
stúlkur víðs vegar að af landinu. Hafði Andrés
nokkuð gaman af að gantast við þær skólasyst-
ur sínar og lét töluvert af færni sinni í ástalíf-
inu eða því tungumáli sem á þeim tíma var
stundum kallað rúm-enska. Ein skólasystir
hans stakk þá að honum eftirfarandi:
Ævilán mitt yrði nóg
ef ég mætti bara
einu sinni, Addi Jó
uppí til þín fara.
Ekki veit ég hver orti næstu vísu en hann hef-
ur greinilega ekki ætlað að bogna undan mót-
lætinu þó kærastan væri eitthvað snúin við
hann:
Þó að bregðist Manga mér
mun eg lítið kveina.
Guð á margar Gunnur sér
og getur lánað eina.
Maður nokkur sem kenndur var við Hjalla í
Ölfusi var í þingum við stúlku sem Anna hét
en hætti við hana og tók síðan saman við aðra.
Þá kvað Aðalsteinn Höskuldsson:
Fagra Anna farðu vel
fann ég þína galla.
Ég ætla að nota í aðra vél
öxulinn frá Hjalla.
Þetta blessað sjálfsmennskubrölt hefur lengi
loðað við okkur Íslendinga þó ekki hafi allar
okkar tilraunir í lífsbaslinu gengið eins og við
hugðum í upphafi. Ekki veit ég hver orti eftir-
farandi lýsingu á fyrstu sambúðartilraun sinni
en það er nú aukaatriði því lýsingin er mjög
svo trúverðug:
Hér skal pára hörkudár
hunds á nára skitinn.
Sautján ára keypti ég klár
hvur var grár á litinn.
Hann var frár og hann var knár
hófasmár og þýður,
fjárans ári yndæll klár
apalgrár og fríður.
Rauður á hár og reynslusmár
romms á tári hresstur
sautján ára á sjálfs míns klár
sótti ég Láru vestur.
Sættu dári þöglar þrár
en það er af Láru að segja
að sautján ára í húð og hár
hún var klárust meyja.
Gróflega párað glens og dár
garms af nára sneið ég
en sautján ára oft það vár
út með Láru reið ég.
Lauguðu tárin ljósar brár,
losnuðu í nárum hárin
er sautján ára, gugginn grár
grét ég Láru og klárinn.
Væntanlega hefur viðkomandi aðili átt eft-
ir einhverjar fleiri tilraunir í þessum málum
og vonandi betur lukkaðar en um stúlku sem
kom í þriðja sinn heim í foreldrahús eftir mis-
heppnaða sambúðartilraun orti Birgir Hart-
mannsson:
Þú hefur glösum lífsins lyft,
ljúfar ástir þegið
aldrei verið alveg gift
-en oft hefur nærri legið.
Snæbjörn Kristjánsson í Hergilsey var eitt sinn
á yngri árum sínum við fjárgæslu í eyðieyju,
hafði þá ekki með sér ritföng en orti nokkrar
vísur og með þessari lýsir hann ástandinu:
Hér er hvorki blek né blað,
böl er til að vita,
stökur gleymast, af því að
ekki er hægt að rita.
Ekki veit ég hverjum Einar Sveinn Frímann
sendi eftirfarandi skeyti en örugglega hafa
margir fengið ljótari kveðjur en þessa:
Óska ég þess ljóst og leynt
að lán þitt aldrei þverri.
Þó ekki sértu engill beint
eru ýmsir djöflar verri.
Annar ágætismaður fékk þessa afmæliskveðju
frá Sigfúsi Jónssyni:
Hegðun þín mér þykir tæp.
Þyrfti bót að mæla þér.
Mér finnst ég bara fremja glæp
fari ég að hæla þér.
Ætli sé svo ekki best að fara að krunka botn-
inn í þáttinn með þessari:
Krunka ég prunkinn karlinn minn
þó kranka skanka beri
og þynnkulinka í þetta sinn
þankann blankan geri.
Með þökk fyrir lesturinn.
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Mánudaginn 14. október næstkom-
andi eru 90 ár liðin frá hrppsnefnd-
arfundi Hreppsnefndar Borgar-
neshrepps sem þá hét og haldin
var á skrifstofu Sparisjóðs Mýra-
sýslu. Fyrir þeim fundi lágu þrjú
mál til afgreiðslu og var eitt þeirra
að koma á fót slökkviliði hrepps-
ins sem gert var á fundinum. Var
Bjarni Guðmundsson járnsmiður
skipaður slökkviliðsstjóri og Magn-
ús Jónasson bifreiðastjóri hans
varamaður. Forsöguna má rekja til
hreppsnefndarfundar sem haldin
var fimmtudaginn 2. marz 1922 en
á þeim fundi lagði oddviti hrepps-
ins fram bréf frá Stjórnarráði Ís-
lands þar sem Borgarneshreppur
var skyldaður til að kaupa slökkvi-
dælu samkvæmt lögum Brunabóta-
félags Íslands. „Samþykkt að kaupa
brunadælu,“ eins og segir í fund-
argerð hreppsnefndar frá þess-
um tíma. Lítið gerðist hinsveg-
ar í þessum málum til 14. október
1923 þegar Slökkviliði Borgarnes-
hrepps var formlega komið á fót og
handknúin brunadæla keypt fyrir
slökkviliðið.
Í tilefni þessara tímamóta verður
opið hús á slökkvistöðvum Slökkvi-
liðs Borgarbyggðar laugardaginn
12. október 2013 eins og hér segir:
Í Slökkvistöðinni í Borgarnesi frá kl
14:00 – 18:00. Í Slökkvistöðinni á
Hvanneyri frá kl 14:00 – 17:00 og
í Slökkvistöðinni í Reykholti frá kl.
14:00 – 17:00.
-fréttatilkynning
Nú líður að hinni fjölbreyttu menn-
ingar- og listahátíð á Akranesi sem
haldin er á ári hverju en Vökudag-
ar hefjast 30. október næstkom-
andi. Hátíðin mun standa yfir í ell-
efu daga að þessu sinni og lýkur 9.
nóvember. Vökudagar hafa verið
haldnir undanfarin ár í bænum og
eru orðnir að föstum lið í menn-
ingar- og listalífinu á Akranesi. Að
vanda verður dagskráin fjölbreytt
og skemmtileg en Anna Leif Elí-
dóttir, verkefnastjóri menningar-
mála, hefur umsjón með Vökudög-
um þetta árið. „Það verður mikið
um að vera og alls kyns fjölbreytt-
ir viðburðir. Í ár kemur Skaga-
leikflokkurinn til dæmis til með
að frumsýna leikgerð sem heitir
Sagnakonan, um Guðnýju Böðv-
arsdóttur. Frumsýningin verður
einmitt á dánardægri hennar, þann
7. nóvember. Það verða einnig ljós-
myndasýningar, myndlistarsýn-
ing, tónleikar, fyrirlestur um sam-
félagið innan Víkings AK og fleira.
Svo verður svokallað „Pub quiz“
eða spurningakeppni úr sögu Akra-
ness í Stúkuhúsinu. Þetta verður
svona fræðslu- og spurningakvöld
sem enginn ætti að láta fram hjá
sér fara,“ segir Anna Leif.
Hátíðin verður með sama sniði
og áður og ættu allir að geta fund-
ið eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin
og viðburðir hafa orðið viðameiri
með hverju árinu og hefur þátttaka
fyrirtækja og stofnana aukist jafnt
og þétt og hafa Vökudagar not-
ið vaxandi vinsælda meðal bæjar-
búa. „Við erum að sækjast eftir því
að fólk komi með einhverja við-
burði sjálft. Þannig að ef einhver
er tilbúinn til að vera með opið
hús eða opnar vinnustofur, þá yrði
það mjög skemmtilegt. Til dæm-
is ef bílskúrshljómsveit er tilbúin
að halda tónleika í bílskúrnum, þá
gæti það verið alveg frábært. Við
hvetjum alla til að vera með, bæði
hópa, félagasamtök og einstaklinga,
ef það er einhver með fjáröflun eða
kökubasar, bara allt sem er í gangi
þá endilega að hafa samband,“ seg-
ir Anna Leif að lokum.
Þeir sem hafa áhuga á að vera
með viðburði geta sent upplýs-
ingar um þá á netfangið anna.leif.
elidottir@akranes.is í síðasta lagi
10. október. Bæklingur með dag-
skrá Vökudaga verður aðgengi-
legur á vefsíðu Akraneskaupstaðar,
www.akranes.is grþ
Vökudagar framundan á Akranesi
Haldið upp á 90 ára
afmæli slökkviliðs
Tveir af forsvarsmönnum Slökkviliðs Borgarbyggðar í dag; Jökull Fannar Björns-
son og Bjarni Kristinn Þorsteinsson.