Gaflari - 03.04.2014, Side 8

Gaflari - 03.04.2014, Side 8
8 - gaflari.is Birna Björnsdóttir, sjúkraflutninga- maður og þríþrautakona er gaflari vikunnar. Birna hefur búið í Hafnar- firði síðustu 16 ár. Birna ólst upp á Höfn í Hornafirði, fluttist svo til Ak- ureyrar, en þegar hún var 14 ára flutti fjölskyldan í Garðabæ. Þá hafði hún lengi sótt í íþróttirnar hingað suður yfir lækinn. Birna fór að æfa sund með SH þegar hún flutti suður og átti hún átti glæstan sundferil framund- an þegar hún veiktist alvarlega á Smáþjóðaleikunum á Möltu árið 1993, en þar var hún tvítug að keppa fyrir Íslands hönd í bringusundi og skriðsundi. Afdrifaríkir Smáþjóða- leikar Birna fékk svo heiftarlega matareitr- un á Möltu að hún var meira og minna frá íþróttaiðkun í tvö ár. „Þetta var mjög líklega smit úr kjúklingi sem hafði smitast á milli matvæla. Ég hafði ekki borðað kjúkling, ég borð- aði aðallega pasta og grænmeti en þessu var öllu stillt upp á borð í stóru tjaldi sem við borðuðum í. Þetta var ekki mjög snyrtilegt og salmónellu- sýkingin hafði borist í fleiri rétti en kjúklinginn. Sem betur fer hafði ég nánast lokið keppni þegar ég veikist. Ég var slöpp síðasta keppnisdaginn, en svo varð ég alltaf veikari og veik- ari. Ég lá t.d. fyrir í flugvélinni og ég var sett í hjólastól þegar flugvélin lenti í Keflavík og mér trillað í gegn- um fríhöfnina. Pabba leist ekki á blikuna þegar hann sá mig og keyrði mig beint á bráðamóttöku. Þar lá ég í fimm daga, mikið veik og missti átta kíló á tveimur sólarhringum.“ Birna var að berjast við sýkinguna næstu sex mánuði og stöðugt á sýklalyfjum. Læknarnir voru við það að gefast upp þegar þeir ákváðu að gefa Birnu lyf sem aldrei hafði verið gefið áður og þá fyrst fór henni að batna. „Á þessu hálfa ári var ég alltaf að reyna að byrja að æfa, hafði enga orku, hvíldi og reyndi meira en gekk illa og var andlega orðin mjög þreytt. Tveimur árum síðar gafst ég endan- lega upp og ákvað að kúpla mig út úr sundinu.“ Grenjaði allan tíma í stúkunni Það var fyrir tilviljun að Birna fór að æfa hlaup af fullum krafti. Ragnheið- ur Ólafsdóttir, þjálfari FH, vissi af baráttu hennar eftir Smáþjóðaleik- ana og hún hvatti Birnu til að koma á frjálsíþróttaæfingu. Skömmu seinna var hún komin í keppnislið FH og í landsliðið. Á þessum árum hljóp Birna aðallega millivegalengdarhlaup, 800 og 1500 metra hlaup og náði glæsi- legum árangri. Næstu tvö árin fóru í að æfa og keppa á fullu með FH. Árið 2000 eignaðist Birna sitt fyrsta barn, Daníel Inga. „Ég lét það samt ekki stoppa mig og fór til Kýpur með landsliðinu 2001 á Evrópubikarmót landsliða. Þá var Daníel Ingi, átta mánaða gamall, ég hljóp hraðast og var valin í liðið og það var ekki um neitt annað að ræða en að taka hann með mér,“ segir Birna hlæjandi. „Þegar kom að upphitun var ég búin að gefa honum og svæfa, en rétt áður en hlaupið var ræst vaknaði drengur- inn, engin mamma á svæðinu og hann grét svo hátt í stúkunni að ég heyrði í honum niður á hlaupabraut. Þetta var ekki góð tilfinning, Jón Arnar Magnússon, fyrrum frjálsíþrótta- maður, tók hann upp á sína arma þarna í stúkunni og hossaði honum og það dugði í nokkrar sekúndur en mér leið skelfilega, ég heyrði í honum alla átta hundruð metrana.“ Sjálfstæð og uppá- tækjasöm Eftir þetta dró Birna sig í hlé frá frjálsunum. Birna eignaðist yngri son sinn, Andra Jón, tveimur árum síðar og eftir fæðingarorlof dreif hún sig í nám. Hún lærði félagsráðgjöf við Há- skóla Íslands og lauk námi þaðan árið 2008. Þá hóf hún störf sem slökkvi- liðs- og sjúkraflutningsmaður hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins (SHS). Það var þó ekki í fyrsta sinn, því hún hafði áður unnið hjá slökkvi- liðinu. Þá voru tvær konur starfandi hjá slökkviliðinu. „Ég þurfti að hætta eftir sex mánaða starf, því þetta gekk ekki upp með lítið barn. Ég var mjög ósátt við að þurfa að hætta og var í raun í mörg ár að jafna mig, eða alveg þar til ég sótti aftur um 2008. Ég veit ekki af hverju þetta starf heill- aði mig svona, mér fannst þetta alltaf spennandi og áhugavert,“ segir Birna hugsandi og svo virðist sem enginn hafi haft áhrif á hana, því ekki þekkti hún til starfsins áður né nokkurs sem hafði starfað sem slökkviliðsmaður. Erum ekki að skutla og skrapa Birna sér ekki eftir að hafa valið þennan starfsvettvang, enda nýtur hún vinnunar til botns. Jafnvel þó að mikil óvissa ríki um sjálft starfs- umhverfið. Samningar um rekstur SHS hafa verið lausir nú í tæp tvö ár og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og yfirlýsingar um sáttarvilja hafa samningar ekki enn tekist milli ríkis- ins og sveitarfélaganna. Birna hefur áhyggjur af gangi mála því mikilvægt er að starfsemin sé í öruggum hönd- um. Á meðan haldi slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn áfram að sinna störfum sínum af kostgæfni. „ Það er búið að sýna fram á að það kostar ríkið minna að reka slökkviliðið og sjúkraflutningana saman, og er það ekki það sem skiptir máli í því árferði sem nú er? Hlutlaus aðili gerði úttekt á rekstrinum og þar kom skýrt fram að aðskilnaður er bæði dýrari og að þjónustan muni skerðast. Það er verulegt áhyggjuefni. Það má heldur ekki horfa framhjá allri þeirri reynslu og þekkingu sem við slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn höfum. Við erum ekkert að skutla og skrapa – við erum að vinna erfiða vinnu og það býr mikil þekking og reynsla innan liðsins. Það er gjörólíkt að vinna á vettvangi og á spítala og á vettvangi slysa erum við sérfræðingarnir. Það gleymist í þessu öllu saman. Læknirinn var tek- inn af bílnum og það hefur ekki verið hægt að sýna fram á að þjónustan hafi orðið lakari við það. Við höfum auðvitað alltaf aðgang að lækni í gegnum fjarskipti og getum kallað hann til. Í einhverjum tilfellum getur læknir gert meira en bráðatæknir, en það hefur ekki komið upp ennþá.“ Ein með 120 karlmönnum Það vakti einmitt athygli síðasta sumar þegar Birna og samstarfskona hennar keyrðu sjúkrabíl saman. Það hafði aldrei áður gerst í sögu sjúkra- flutninga á Íslandi. Í dag er Birna eina konan sem starfar hjá SHS, því sú sem keyrði bílinn með henni var bara í sumarafleysingum, en Birna vonast til að hún komi aftur. Og von- andi einhverjar fleiri, það hristir að- eins upp í þessu, eins og Birna segir og nú skellihlæjum við. Hún segir starfið vera mikið karlastarf. „Þetta er erfitt starf, bæði andlega og líkamlega, þá sérstaklega slökkvi- liðsþátturinn. Maður þarf að vera í góðu formi, þetta er rosalegur burð- ur og við þurfum að vera vel byggðar, því við erum ekki eins sterkar. Við konur þurfum að halda okkur í góðu formi og ég hugsa að við þurfum að hafa miklu meira fyrir því. Í dag er ég í þríþrautinni og æfi ca 12-16 tíma á viku, og þá er ég að hjóla, hlaupa og synda og tek inn á milli styrktaræf- ingar. Æfingarnar mega ekki vera einhæfar. Svo var ég að klára einka- þjálfararéttindin, e.t.v. geri ég eitt- hvað með þau í framtíðinni.“ Ekki bara best í Hafnar- firði Mér er orðið alveg ljóst að konan sem situr á móti mér er í súper formi og mikil keppniskona í eðli sínu. Og Ein með 120 karlmönnum GAFLARI VIKUNNAR Birna Björnsdóttir, sjúkraflutningamaður og þríþrautarkona ársins er gaflari vikunnar.

x

Gaflari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.