Fjarðarpósturinn - 16.01.2014, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 16. janúar 2014
PRÓFKJÖR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í HAFNARFIRÐI
Laugardaginn 1. febrúar n.k. fer fram prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar.
Prófkjörið fer fram í Víðistaðaskóla
kl. 10.00-18.00
Þátttökurétt í prófkjörinu eiga:
a) Allir fullgildir meðlimir sjálfstæðisfélaganna í
Hafnarfirði sem eru þar búsettir.
b) Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga
munu kosningarétt í Hafnarfirði við
sveitastjórnarkosningar og undirritað hafa inntöku-
beiðni í sjálfstæðisfélag í Hafnarfirði fyrir lok
kjörfundar og teljast þar með komnir á flokksskrá.
Kjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í prófkjörinu
fer fram sem hér segir:
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík:
Alla virka daga frá 20. til 31. janúar 2014, kl. 9-17.
Hrafnistu DAS - föstudaginn 31. janúar 2014, kl. 15-16.
Kjörskrá liggur frammi við
utankjörfundaratkvæðagreiðslu og við prófkjörið.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum.
Frekari upplýsingar
tengdar prófkjörinu má finna á vefnum
www.xd.is/profkjor
ATKVÆÐASEÐILL
Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, 1. febrúar 2014.
Sævar Már Gústavsson, formaður ÍH
Unnur Lára Bryde, viðskiptafræðingur.
Geir Jónsson, bæjarfulltrúi.
Helga Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi.
Kristinn Andersen, bæjarfulltrúi.
Kristín Thoroddsen, ferðamálafræðingur.
Ingi Tómasson, varabæjarfulltrúi.
Pétur Gautur, myndlistarmaður.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi.
Skarphéðinn Orri Björnsson, framkvæmdastjóri.
ATHUGIÐ. Kjósa skal 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Kosið skal með
því að setja tölustafina 1 til 6 fyrir framan nöfn frambjóðenda. Þannig skal
kjósandi setja töluna 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem hann óskar
að hljóti fyrsta sætið í prófkjörinu, töluna 2 fyrir framan nafn þess sem hann
vill að hljóti annað sætið í prófkjörinu, töluna 3 fyrir framan nafn þess sem
hann vill að hljóti þriðja sætið í prófkjörinu og þannig koll af kolli þar til kosnir
hafa verið 6 frambjóðendur.
Kjósið 6 frambjóðendur í töluröð
Aukið fjármagn til skólastarfs
- umbylting í upplýsingatækni
Í fjárhagsáætlun bæjarins fyrir
2014 er gert ráð fyrir auknu
fjármagni til skóla bæjarins, leik
skóla, grunnskóla og tón listar
skóla. Í þessu felast tímamót eftir
þær aðhaldsaðgerðir
sem fylgdu hruninu.
Mark miðið er að bæta
þjónustu og náms
árang ur með eftirtöld
um aðgerðum:
• Styttingu sumarlok
un ar leikskóla úr fimm
vikum í fjórar.
• Fjölgun kennslu
stunda í grunnskólum,
öll aldursstig verða
með fimm svokallaðar skipti
stundir á næsta skólaári, en þær
eru nú þrjár í 1.7. bekk en fimm
í unglingadeild.
• Umbyltingu í upplýsinga
tækni. Endurnýjun tölvubúnaðar
hófst í fyrra en nú eru ætlaðir
verulegir fjármunir til kaupa á
tölvum og skjávörpum sem og
uppsetningu þráðlausra neta,
hugbúnaðarkaupa og annars sem
með þarf.
• Sérstökum sjóðum til að
styðja verkefni sem miða að
nýsköpun og bættu skólastarfi.
• Auknum stuðningi við ný
búa börn.
Mikill áhugi er á því
að auka notkun nútíma
upplýsingatækni við
kennslu. Það mál snýst
reyndar ekki bara um
kaup á tækjabúnaði
held ur hagnýtingu tækn
innar til að gera bæði
nám og kennslu áhuga
verðari og árangurs
ríkari. Starfs hópar fag
fólks hafa verið settir á
fót til að meta hvernig standa beri
að þessum málum í bæði leik
skólum og grunnskólum. Tónlist
ar skólinn fær fjármagn til að nýta
tölvutækni til tónlistarnáms en ör
þróun er á því sviði.
Gert er ráð fyrir að innan
þriggja ára verði skólar í
Hafnarfirði í fremstu roð hvað
upplýsingatækni varðar. Ég bind
vonir við að það ásamt öðrum
ráðstöfunum sem unnið er að
muni gera gott skólastarf í
Hafnarfirði enn betra.
Til ofangreindra verkefna er
varið rúmum 150 milljónum
króna á þessu ári. Því til viðbótar
kemur aukið fjármagni til
viðhalds húsnæðis og búnaðar
sem nú er að hluta fært undir
fræðslusvið þannig að skjótar
megi bregðast við þegar skyndi
leg þörf skapast, t.d. vegna bilana
í búnaði.
Tvennar framkvæmdir eru á
dagskrá nýbyrjaðs árs, annars
vegar síðari áfangi Áslandsskóla
með fjórum kennslustofum og
íþróttasal og hins vegar undir
búningur að byggingu nýs leik
skóla við Bjarkarvelli. Fyrri
framkvæmdin er reyndar háð því
að samkomulag náist við eig
endur Áslandsskóla sem byggð
ur var í einkaframkvæmd árið
2001. Leikskólann við Bjarkar
velli er áætlað að taka í notkun
haustið 2015.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Samfylkingar og formaður
fræðsluráðs.
Eyjólfur Þór
Sæmundsson
58 útskrifuðust frá Flensborgarskóla
Snorri Rafn Theodórsson varð hæstur með 9,77 í einkunn
Þann 21. desember sl. voru 58
nemendur útskrifaðir frá
Flensborgarskólanum. Tæpur
helm ingur nemendanna lauk
námi á þremur og hálfu ári, þar
af einn á þremur. 13 voru á
íþrótta afrekssviði allan tímann.
16 á félagsfræðabraut, sex af
málabraut, 23 af náttúru fræði
braut, sjö af viðskipta og hag
fræði braut. Fjórir luku fjölmiðla
tækni.
Snorri Rafn Theodórsson var
með hæstu meðaleinkunn á
stúdentsprófi sem reiknuð hefur
verið í skólanum og telst Dux
Scholae á þessari útskrift með
einkunnina 9,77.
Lj
ós
m
.:
Lá
ru
s
K
ar
l I
ng
as
on
Í könnun sem Capacent hefur
gert fyrir 16 stærstu sveitarfélög
landsins kemur fram að 90%
bæjarbúa eru ánægðir að búa í
Hafnarfirði og eykst ánægjan frá
síðustu könnun. Fólk með
milljón kr. eða meira á mánuði er
ánægðast.
Það vekur athygli að þegar
spurt er um gæði umhverfis í
nágrenni við heimili svarenda
kemur í ljós að 19,2% svarenda í
bænum eru óánægðir en 66,5%
ánægðir. Aðeins 4 sveitarfélög fá
lakari niðurstöðu og nágranna
sveitarfélagið Garðabær fær
mun betri niðurstöðu!
Afstaða til skipulagsmála ber
vott um óvissu. Ánægjan er
aðeins 37% og óánægjan er
26%. Heildarviðhorfin hafa
verið nær eins frá 2008 en mjög
ánægðum og mjög óánægðum
hefur fækkað.
Þegar spurt er um þjónustu við
grunnskóla og leikskóla kemur í
ljós að þeir sem nýta þá þjónustu
eru almennt ánægðari en þeir
sem ekki nýta þjónustuna. Þetta
á við líka um aðstöðu til íþrótta
iðkunar sem 82% eru ánægðir
með. Þegar kemur að afstöðu til
þjónustu við aldraða og fatlaða
snýst dæmið við og notendur eru
óánægðari en hinir.
67% svarenda eru ánægðir
með þjónustu leikskólanna en
9% óánægðir. 65% eru ánægð ir
með þjónustu grunn skólanna og
8% óánægðir.
Um helmingur er ánægður
með þjónustu við fatlað fólk og
við aldraða en ánægja eykst mest
við þessi málefni svo og með
þjón ustu Hafnarfjarðarbæjar al
mennt sem 65% eru ánægðir með.
Helst telja svarendur að bæta
þurfi samgöngur og grunn skól
ana en fáir nefna heilsugæslu og
almenningssamgöngur. Rúm
12% svarenda telja að auka þurfi
aðhald og sparnað hjá bæjar
félaginu og 11,6% telja að
hreins un sé ábótavant. 10,4%
telja að bæta þurfi gatnakerfi og
samgöngur.
Skoða má könnunina á vefsíðu
bæjarins en tengil má finna á
www.facebook.com/fjardarposturinn.Ánægðir ungir víkingar.
Hafnfirðingar gagnrýnni en aðrir?
Notendur þjónustu almennt ánægðari en hinir!
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n