Fjarðarpósturinn - 16.01.2014, Side 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 16. janúar 2014
Íþróttaskóli Fjarðar
Íþróttaskóli Fjarðar er sniðinn að ungum börnum með þroska og/eða
hreyfihamlanir á aldrinum 2-8 ára. Íþróttaskólinn er opinn öllum börnum
óháð búsetu. Þjálfararnir eru menntaðir íþróttakennarar eða nemar í
íþróttafræðum. Miðað er við að ekki fleiri en 4-5 iðkendur séu á hvern þjálfara
svo allir ættu að fá hvatningu og athygli til að taka þátt og fá góða hreyfingu
við sitt hæfi.
Næsta námskeið hefst 11. janúar og stendur til 26. apríl 2014.
Æfingar fara fram í íþróttahúsi Setbergsskóla á laugardögum kl. 12:30 – 13:30
Hvar er réttlætið
gagnvart eldri borgurum?
Hvað er hægt að láta endalaust
yfir sig ganga i málefnum eldri
borgara hér í Hafnarfirði?
Eftir fréttir helgarinnar af starf
semi hjúkrunar heimilis
ins Sól vangs er ég alveg
eigin lega, liggur við
kjaft stopp. Að það skuli
við gangast á 21. öldinni
að sjúklingar á Sól vangi
séu bundnir í rúm sín.
Ég lýsi ábyrgð á
hend ur pólitískum
ráða mönnum þjóð ar
innar, hvort sem er fyrr
verandi ríkisstjórn eða
núverandi og bæjar stjórnar
mönn um Hafnarfjarðar.
Veit vel að rekstrarfé skal
koma frá ríkinu, en ég veit einnig
að bæjarstjórn Hafnarfjarðar ber
einnig ábyrgð á þessu sorglega
ástandi, að mínu mati. Hún hefði
átti að vera búin að grípa í
taumana fyrir löngu, hún hlýtur
að hafa séð í hvert óefni var
komið, eða var það ekki ?
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
verð ur að skilja það að hún getur
ekki fríað sig af þessu ástandi.
Það er búið að vera undarlegt
ástand í því sem átti að vera
bygg i ngarferli handa Hafn firð
ingum í hjúkrunarmálum eldri
borgara og fyrir alllöngu átti að
vera komin ný bygging hér í
rekstur. Hafnarfjörður er þriðja
stærsta sveitarfélag landsins með
um 27 þúsund íbúa. St. Jósefs
spítali lokaður og það eitt stórt
hneyksli. Svo er rekstur á Sól
vangi stórkostlegt
hneyksli sem kom ljós í
öllum fjöl miðlum um
helgina. Öðruvísi mér
áður brá, er Sól vangur
var þekkt ur fyrir
frábæra umönn un við
eldri borg ara. Ég hef
ekki áhuga á því að
skattar mínir til lands
stjórnar og sveitar
félags ins séu nýttir á
þann hátt að ekki sé hægt að
veita þeim er þurfa tilhlýðilega
þjón ustu á Sólvangi.
Hvar eru Holl vina samtök Sól
vangs? Er þetta ekki mál fyrir
þau, eða voru þau ekki stofnuð til
hagsbóta fyrir Sólvang? Ég
skora á Öldungaráð Hafnarfjarðar
og Hollvina sam tökin að láta til
sín taka í þessu máli, reyndar er
óskandi að allir Hafnfirðingar
láti sig þetta mál varða.
Vaknið Hafnfirðingar, er
kannski komið að þeim tíma
punkti að ný samtök komi fram á
sjónarsviðið á sveitarstjórnar
vettvangi, sem hafi velferð allra
Hafnfirðinga að leiðarljósi?
Höfundur er formaður
Félags eldri borgara í
Hafnarfirði.
Jón Kristinn
Óskarsson
Viðgerðir fyrir öll tryggingafélög
Suðurhrauni 2 Garðabæ • sími 554 4060 • versus@simnet.is
Að snúa vörn í sókn
Hafnfirðingar, 31. maí n.k.
verða sveitastjórnarkosningar og
kjósum við okkur fulltrúa til bæj
arstjórn ar Hafnarfjarðar. Sam
fylkingin í Hafnarfirði verður
með flokksval sem vel
ur fulltrú sína á fram
boðslista hennar og
verður það haldið 13.
15. febrúar n.k. Ég hef
ákveðið að gefa kost á
mér í 1.3. sæti og er
tilbúin að vera í for
ystus æti fyrir Samfylk
ingunna. Mér er annt
um bæinn og samfélag
okkar Hafnfirðinga.
Þess vegna vill ég leggja áherslu
á, að horfa fram á veginn og til
framtíðar, en ekki sökkva okkur í
eymd og volæði, t.d. út af erfið
um fjár og skuldamálum Hafn
ar fjarðarbæjar. Það skal vera
okkar markmið að snúa vörn í
sókn og hefja öfluga og kraft
mikla uppbyggingu á öllum
sviðum og þar verður ekkert
undan skilið. Við eigum að líta á
okkur sem eina heild, efla sam
heldni og vinna saman að mál
efnum bæjarfélags okkar. Að
reisa Hafnarfjarðarbæ upp aftur
eftir skelfilegt bankahrun sem
við berum enga ábyrgð á. Við
verðum að stíga fram, vinna úr
hlutunum eins og þeir eru, enn
því miður við erfið skilyrði.
Erfið ár að baki
Hafnfirðingar, þið hafið svo
sannanlega fengið að finna fyrir
fjárhagsvanda bæjarins. Það er
mitt mat að nú eigum við að nýta
okkur alla þá krafta sem við
bú um yfir og blása til sóknar
Hafn ar fjarðarbæjar til fram
dráttar. Sam fylkingin
hefur í raun staðið vakt
ina með miklum sóma
og við erfið skil yrði.
Mikill tími og orka
hefur farið í að reisa við
fjár hag bæjar félagsins,
sem var og er vissulega
mikill vegna banka
hrunsins. Nú ver andi
meirihluti hefur vissu
lega sýnt mikla ábygð
og festu í hvívetna við stjórn
bæjarins. Það hefur þurft að hag
ræða og skera niður útgjöld, það
hefur auðvitað verið mjög sárs
aukafullt. En var nauðsynlegt,
enn og aftur vegna hrunsins árið
2008.
Horfum til framtíðar
Góðir Hafnfirðingar, nú er
komið að því að bretta upp ermar
og hefja uppbyggingastarfið,
með bjartsýnina og jákvæðni að
leiðarljósi. Við eigum að læra af
fortíðinni og byggja framtíðina á
henni. Við þurfum að auka
at vinnu og efla fjárfestingar í
bænum, m.a. með því að bjóða
til okkar stór og öflug fyrirtæki
inn í okkar samfélag og skapa
góð skilyrði fyrir þau, til að
auðvelda þeim að vera með sína
starfsemi í Hafnarfirði, með því
aukum til muna atvinnutækifæri
fyrir Hafnfirðinga og ekki veitir
af. Meðal annars þurfum við að
koma lífi í byggingariðnaðinn,
sem hefur verið ansi dapur frá
hruni. T.d. með því að örva sölu
á lóðum bæði fyrir einstaklinga,
byggingaverktaka og fasteigna
félög. Í skólamálum hefur verið
unnið gott starf, en við þurfum
að gera enn betur í þeim mála
flokki. Velferðamálin, sem snerta
okkur öll, hafa sannarlega fengið
skell vegna hagræðingar og
niður skurðar, sem var óhjá
kvæmi legur eftir hrun, vonandi
tekst næstu bæjarstjórn að að
vinna vel í þeim málaflokki.
Hús n æðismál Hafnfirðinga
verða örugglega ofarlega í for
gangi á næst árum. Við þurfum
að skapa og byggja upp nægilegt
framboð af ódýru íbúðarhúsnæði,
sérstaklega fyrir ungt fólk og
huga að eflingu leiguhúsnæðis.
Mikill metnaður hefur verið í
öllu tómstunda og íþróttamálum
í bæjarins, við þurfum að halda
áfram að efla þann málaflokk, en
frekar.
Hafnfirðingar, það skiptir máli
að okkur líði vel, hvort sem það
er í vinnu, heima fyrir eða í okkar
nærumhverfi sem er bæjar
samfélagið okkar. Ég óska eftir
stuðningi ykkar í prófkjöri Sam
fylkingarinnar sem haldið verður
13.15. febrúar n.k. og sækist ég
eftir 1.3. sæti á lista Samfylk
ingarinnar.
Höfundur er húsasmiður.
Hafsteinn
EggertssonU N
bókhald ehf
Almenn
bókhaldsþjónusta
Stofnun félaga
Skattframtöl fyrir
einstaklinga og fyrirtæki
Allt á einum stað
UN Bókhald ehf • Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði
568 5730 • unbokhald.is • unbokhald@unbokhald.is
Unnur Lára Bryde gefur kost á
sér í 2. sæti á framboðslista Sjálf
stæðisflokksins í Hafnarfirði í
próf kjöri flokksins sem fram
mun fara 1. febrúar nk.
Unnur Lára er varaþingmaður
í Suðvestur kjör dæmi, hún er
viðskipta fræðingur að mennt, hef
ur unnið við markaðsstörf, rekið
eigin verslanir um árabil og starf
ar nú hjá Icelandair sem flug
freyja og við öryggisþjálfun
áhafna.
Unnur Lára hefur verið for
mað ur Sjálfstæðisfélagsins Fram
Hafnarfirði frá árinu 2011, í
stjórn félagsins frá árinu 2010
auk þess sem hún hefur setið í
stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðis
félag anna frá árinu 2011. Frá
árinu 2010 hefur hún verið full
trúi flokksins í menningar og
ferðamálanefnd Hafnarfjarðar
bæjar.
„Ég hef mikinn metnað fyrir
hönd Hafnarfjarðarbæjar og býð
fram krafta mína til að gera
góðan bæ öflugri og betri. Ég hef
þá trú að með samstilltu átaki
stjórnmálamanna og embættis
manna getum við sett fullan kraft
í að snúa neikvæðum horfum í
fjármálum bæjarins við til þess
að geta hafið sókn á ný í skól
unum okkar, öldrunar þjónustu
og á öllum þeim sviðum sem
hafa árum saman þurft að líða
fyrir fjárhagslega stöðu sveitar
félagsins.“
Unnur er 42 ára, gift Stefáni
Hjaltested rafverktaka og eiga
þau tvö börn.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
Unnur Lára vill 2. sætið