Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 30.01.2014, Qupperneq 12

Fjarðarpósturinn - 30.01.2014, Qupperneq 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 30. janúar 2014 Fyrir Hafnarfjörð nr. 1, 2 og 3 Hafnarfjörður er bærinn minn og þar vil ég starfa. Ég var kosin í bæjarstjórn fyrir fjórum árum og á sæti í fræðsluráði og um hverfis­ og framkvæmdaráði. Einn ig hef ég á kjör­ tíma bilinu tekið þátt í vinnu starfshópa um fjöl mörg mál meðal annars, hjólasam göng­ ur, umhverfis­ og auð­ linda stefnu og bygg ­ ingu hjúkrunar heimilis. Ég hef unnið ötullega í þeim ráðum sem ég á sæti í að fjölmörgum málum sem varða hags muni bæjarbúa og gert mér far um að upplýsa reglulega með greinum hér í þessu blaði um framgang mála og afstöðu mína auk þess sem ég er alltaf tilbúin til samtals við bæjarbúa um okkar mörgu hagsmunamál. Mikilvægt að vel takist til með nýtt hjúkrunarheimili í Hafnar firði Ég hef ekki hikað við að stíga fram með hagsmunamál sem varða bæjarbúa og nefni þar sem dæmi umræðu um fyrirhugaða byggingu hjúkrunarheimilis en þar hef ég lagt mikla áherslu á að endurskoða beri staðsetningu og fara yfir rekstrarforsendur, en ljóst er af framkomnum upplýs ingum að 60 rýma hjúkrunar heimili mun ekki geta borið sig á þeim gjöldum sem ríkið leggur til. Það er því fyrirfram ljóst að ef haldið er áfram með fyrirhuguð áform um byggingu hjúkrunar­ heimilis að Skarðshlíð að bærinn mun þurfa að leggja fé með rekstr inum frá fyrsta degi. Þetta hefur einfaldlega sýnt sig annars staðar þar sem rekstur sam bærilegra heimila er í upp­ námi, sem og með framlögðum skýrslum um rekstrarforsendur miðað við 60 rýma heim ili. Ég er því tals­ maður þess að skoða fleiri kosti varðandi stað setningu og til dæmis að kanna beri hvort ekki sé hag­ kvæm ara að byggja nýtt hjúkrunar heim ili á Sólvangs reitnum og nýta þannig til dæmis góða mötu neytis að­ stöðu sem er á staðnum auk þess sem aðgengi að heilsugæslu og sjúkraþjálfun og nálægðar við Höfn er mikill kostur og gefur færi á rekstrarlegu hagræði sem er ákaflega mikil vægt, auk fleiri þátta. Um þetta skilaði ég séráliti í starfshópi um byggingu hjúkrunarheimilis og lagði fram sérstaka bókun í bæjar stjórn þann 27. febrúar 2013. Ég gef kost á mér í forystusæti fyrir Hafnarfjörð Næsta laugardag gefst bæjar­ búum kostur á að hafa áhrif á röðun á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu bæjarstjórnar kosn­ ingar. Þar gef ég kost á mér í forystusæti og óska eftir stuðn­ ingi ykkar. Ég hef kraft, þor og dugn að til að gera betur fyrir Hafnarfjörð. Um helstu stefnumál mín fyrir næstu fjögur ár má lesa á xd.is/ profkjor/hafnarfjordur Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Helga Ingólfsdóttir Aðalfundur Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar verður haldinn laugardaginn 1. febrúar nk. kl. 13:00 í samkomusal félagsins að Flatahrauni 29. Venjuleg aðalfundarstörf og kosning til stjórnar. Eftirfarandi eru í framboði til stjórnar: Framboð í aðalstjórn til tveggja ára Finnbogi Albertsson Guðmundur Sveinbjörnsson Sigurður Karlsson. Framboð í varastjórn til eins árs María Petrína Ingólfsdóttir Sigríður Hrólfsdóttir Stefán Árnason. Framboð til formanns til eins árs Vilborg Reynisdóttir. Einnig minnum við á opið hús í kvöld, fimmtudag 30. janúar. kl. 20. Hnýtingar og spjall Stjórn SVH Ábyrg fjármálastjórn Hafnarfjörður er eitt af þeim sveitarfélögum á Íslandi sem stendur hvað verst fjárhagslega, svo illa í raun að fjárhagsleg fram­ tíð sveitarfélagsins og þar með talið búseta mín þar stendur fyrir raunveru­ legri ógn. Síðustu 10 ár þá hefur rekstrar niður­ staða bæjarins verið neikvæð upp á 509 milljónir á ári að meðal­ tali. Því hryggir það mig mikið að þunga miðja umræðu fyrir fyrir­ huguð prófkjör og kosn­ ingar í bænum snúist ekki um fjármál hans. Að sjálfsögðu þarf að huga vel að heilbrigðis­ og menntamálum í sveitarfélaginu, en að reka þessa hluti kostar hinsvegar peninga og á meðan sveitarfélagið eyðir millj örðum á ári í vexti og afborg­ anir munum við alltaf þurfa að velja og hafna í þessum mála­ flokkum og ekki getað sinnt þeim eins og vel og við myndum kjósa. Sífellt eru birtar niðurstöður úr rannsóknum á fjármálalæsi lands­ manna og hafa þær rannsóknir komið afar illa út. Það tengist eflaust að hluta til þeim vanda að um ræðan snýst um hvað við eigum að gera við peningana frekar en að hlúa að því að eitt hvað verði til af pen ing um yfirhöfuð. Ef að fjár­ hagsáætlanir Hafn ar­ fjarð ar síðastliðin 10 ár hefðu gengið eftir hefði rekstrarniðurstaða bæjar­ ins á því tímabili verið jákvæð um 3,3 millj arða króna. Rekstrar niður staða hefur hins vegar að meðaltali verið of áætluð um 809 milljónir króna á ári og því er niðurstaðan á þessu tímabili neikvæð um 5,6 milljarða króna. Það þarf ekki mikla stærð­ fræðihæfni til þess að átta sig á því að þessi staða gengur ekki upp til lengri tíma. Meiri ábyrgð þarf í fjármálastjórn sem og raunhæfari áætlanagerð um rekstur bæjarsjóðs. Við þurfum að huga að fjármálum bæjarins og ekkert atriði ætti að vera framar í að ­ draganda kosninga en einmitt það mál að tryggja stöðugan fjárhag bæjarins. Sparnaður er aldrei vinsælt fyrirbæri en ef ekki er vel hlúð að þeim málaflokki verða engir peningar til. Ef engir pen­ ingar eru til þá er það til lítils að ræða hvernig eiga að ráðstafa þeim í framtíðinni. Hugsum um fjárhaginn, þetta er ekki vinsælasti mála flokkurinn til þess að ræða um en senn er hann sá allra mikil­ vægasti. Forgangsverkefni næstu bæjarstjórnar í Hafnarfirði á að vera niðurgreiðsla skulda og að fara í samningaviðræður við lán­ veitendur með það markmið að lækka höfuðstól lána þar sem það er hægt. Tryggjum fram tíðar­ búsetu Hafnarfjarðarkaupstaðar með ábyrgri fjármálastjórn. Höfundur tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Sævar Már Gústavsson Fjarðarpósturinn Vettvangur fyrir skoðanaskipti í Hafnarfirði Smelltu á LIKE á www.facebook.com/fjardarposturinn Foreldrafélag fagnar endurskoðun Vilja halda lausum kennslustofum Foreldrafélag leikskólans Hvamms fagnar þeirri ákvörðun fræðsluráðs að endurskoða flutn­ ing á lausu kennslustofunum sem nú eru hluti af daglegu starfi leik skólans. Flytja átti stofurnar að leikskólanum Hamravöllum. Í tilkynningu frá foreldra­ félaginu segir að félagið og fræðsluráð hafi átt góðan fund þann 2. desember sl. þar sem þetta málefni var rætt í þaula og þakkar foreldrafélagið fyrir það tækifæri til að koma sínum málflutningi á framfæri. For­ eldrafélagið hefur áður mótmælt þeirri ákvörðun ráðsins að flytja stofurnar. „Margar ástæður liggja þar að baki en þar vegur þungt sú vandaða uppbygging á starfi sem þar hefur verið unnin og byggir á að auka frjálsræði og efla sjálfstæði elstu barnanna í skólanum. Þá er það líka sérlega ánægjulegt að með þessu er tryggt að ekki þarf að vísa neinum börnum frá skólanum í haust.“ Telur foreldrafélagið að með frestun ákvörðunar um flutning stofanna sé fræðsluráð og bæja­ yfirvöld að taka skref í rétta átt að verja hið góða starf sem unnið er í leikskólum Hafnarfjarðar. Skólastofurnar eru við Hvamm utan skipulags. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Píratar bjóða fram í Hafnarfirði Brynjar Guðnason kapteinn — Velja á lista með prófkjöri Píratar bjóða fram í Hafnarfirði til sveitar stjórnar í kosningunum í vor. Þetta var ákveðið á stofn­ fundi félags Pírata í Hafnarfirði, sem haldinn var síðast liðinn laugardag. Í tilkynningu frá Pírötum kemur fram að Píratar leggja mikla áherslu á gegnsæja stjórn­ sýslu og að þeim finnist margt ábótavant í þeim málum í Hafnarfirði. Upplýsingar um fjár mál bæjarins eigi að vera ítarlegar og aðgengilegar bæjar­ búum á netinu, sérstaklega í ljósi mjög bágrar fjárhagsstöðu bæjar ins. Málefnastarf var hafið fyrir stofnfundinn og mun það nú halda áfram af krafti auk þess sem valið verður á framboðslista félagsins með prófkjöri. Stjórn hins nýstofnaða félags skipa þau: Brynjar Guðnason, kafteinn; Ragnar Unnarsson, gjaldkeri; Guðmundur Fjalar Ísfeld, ritari; Heiða Hrönn Sig­ mundsdóttir og Kári Valur Sigurðsson.Merki Pírata. Stofna á Hafnarfjarðarstofu Ætlað m.a. að sinna fjölþættu markaðs- og kynningarstarfi Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 22. janúar sl. að fela bæjarráði að undirbúa og hefja rekstur Hafnarfjarðar­ stofu. Er ákvörðunin tekin á grundvelli tillögu starfshóps um stofnun Hafnarfjarðarstofu. Skal bæjarráð taka mið af þeim tillögum hópsins sem fela í sér að Hafnarfjarðarstofa skuli sinna fjölþættu markaðs­ og kynningarstarfi, umsjón við­ burða og tengdra verkefna. Tillögur starfshópsins hafa ekki verið gerðar opinberar.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.