Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 06.02.2014, Blaðsíða 14

Fjarðarpósturinn - 06.02.2014, Blaðsíða 14
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 6. febrúar 2014 Stofnað 1982 Dalshrauni 24 • Sími 555 4855 steinmark@steinmark.is Reikningar • Nafnspjöld Umslög • Bæklingar Fréttabréf Bréfsefni Og fleira húsnæði óskast Hjón með eitt barn óska eftir íbúð eða húsi. Minnst 2 svefnherbergi og aðstaða fyrir skrifstofu. Ein­ göngu nálægt Víðistaðaskóla og Hraun kemur til greina. Fyrirfram­ greiðsla+trygging ekkert mál. Uppl. í s. 661 1223. barnapössun Mig langar að passa börn á öllum aldri. Ég er 13 ára og bý í Kinnunum. Hef lokið RKÍ námskeiði. Jóhanna s. 777 4008. þjónusta Kaupi bilaðar gamlar þvottavélar og þurrkara. Þó ekki eldri en 8­10 ára. Uppl. í s. 772 2049. Tölvuviðgerðir alla daga, kem á staðinn, hægstætt verð. Sími 664 1622 ­ 587 7291. Tölvuaðstoð og viðgerðir Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun. Apple* & Windows. Kem í heimahús. Sími 849 6827 ­ hjalp@gudnason.is Ráðgjöf um þyngd­ ar stjórnun. Líkam legt ástand mælt með skanna. FB: „Yngj andi og orku ríkara líf“. Gerð ur Hannes dóttir lífs stíls leiðbein andi gsm 865 4052 ghmg@internet.is Ódýr húsgagna og teppahreinsun. Við djúphreinsum sófasett, stóla, rúmdýnur, teppi og mottur. Lykt ar­ eyðing, rykmauraeyðing og bletta­ eyðing. S. 780 8319 eða djuphreinsa@gmail.com Tek að mér að stytta buxur og fl. þ.h. Vönduð vinnubrögð. Lína Björk Sigmundsdóttir, klæðskeri, Fagrahvammi 2a, Hafnarfirði s. 866 2361 e. kl. 16 virka daga. smáauglýsingar aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s s ím i 5 6 5 3 0 6 6 A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0 s l ö g . M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r. Ta pað - f u nd i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT R e k s t r a r a ð i l a r : F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r ! www.fjardarposturinn.is 70 ára afmæli Sörla Hestamannafélagið Sörli fagnar 70 ára afmæli sínu á laugardaginn kl. 13. Sörlafélagar og velunnarar félagsins eru velkomnir. M.a. verður boðið upp á skemmtun fyrir börnin, hoppukastali, andlitsmálning og Solla stirða kíkir í heimsókn. Sýningar í Hafnarborg Í Sverrissal Hafnarborgar sýning á nýjum verkum eftir Harald Jónsson, en sýningin ber yfirskriftina Hnit. Á sýningunni eru bæði teikningar og skúlptúrar sem hvert á sinn hátt virkja skynjun mannsins á eigin tilfinningum, upplifun af rými og táknum. Kynningarfundur Kynningarfundur verður fimmtu dag­ inn 13. febrúar kl. 20 í Hafnarborg. 1) Deiliskipulagsbreyting fyrir lóð FH í Kaplakrika. 2) Fyrirhugað deiliskipulag Miðbær Hraun ­ vestur. 3) Deiliskipulagsbreyting á Reykja­ nes braut frá Áslandi að Hellnahrauni. Miðilsfundur Fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20 verður miðilsfundur með Þórhalli miðli í sal Flensborgarskólans. Við­ burð urinn er liður í fjáröflun kórsins sem stefnir á kóramót á Spáni í sum ar. Selt er inn. menning & mannlíf Loftnet - netsjónvarp Viðgerðir og uppsetning á loftnetum, diskum, síma- og tölvulögnum, ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi! Loftnetstaekni.is sími 894 2460 Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldinn kl. 18 miðvikudaginn 12. febrúar í Samkomusalnum að Ásvöllum Aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins Stjórnin Allir velkomnir. Jón Gunnarsson, þingmaður kemur til okkar að ræða um atvinnumál o.fl. Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði Laugardagskaffi í Sjálfstæðishúsinu að Norðurbakka 1 8. febrúar kl. 10-12 MÓTTAKA AÐSENDRA GREINA Fjarðarpósturinn tekur við aðsendum greinum sem fyrr. Almenn hámarkslengd greina er 300 orð. Greinar eru birtar eins og rými í blaðinu leyfir. Að jafnaði er ekki tekið við greinum til birtingar sem einnig eru sendar í birtingu í önnur blöð sem dreift er á dreifingarsvæði Fjarðarpóstsins eða á vefsíðum. Sjá nánar á www.fjardarposturinn.is 1971 árgangur úr Öldutúns­ skóla ætlar að koma saman og gera sér glaðan dag. Hópurinn átti góð og eftirminnileg námsár í Öldutúnsskóla sem aldrei munu gleymast. Félagslífið var einnig öflugt á þessum árum. Kvik­ myndagerð, dansleikir, hljóm­ plötu útgáfa, leiksýningar og sjónvarpsþáttagerð eru dæmi um það sem unnið var að. Náms­ árunum í Öldutúnsskóla lauk síðan með ógleymanlegri út ­ skrift arferð til Hollands. Laug ar­ dagskvöldið 8. mars n.k. er ætlunin að koma saman á Eng­ lish Pub hér í bæ og rifja upp þenn an skemmtilega tíma. Nem­ endur og kennarar þeirra eru hvattir til að taka daginn frá og mæta. Gleðin hefst um klukkan 19.30. Síðar um kvöldið verður síðan slegið upp 80´s balli með Júlla diskó. Ætla að rifja upp gamla tíma Hollvinasamtök Sólvangs af hentu forsvarsmönnum Sól­ vangs afrakstur af Sólvangs deg­ inum sem haldinn var sl. haust. Kaffisala var til styrktar Sólvangi og söfnuðst tæplega 400 þúsund kr. þar af var 100 þús. kr. skilyrt gjöf til hagsbóta fyrir starfsmenn Sólvangs. Keyptar voru nýjar dýnur fyrir vistmenn, 3 sjúkradýnur og ein loftdýna og eru þær fyrir all nokkru komnar í notkun. Gjöfin var hins vegar formlega afhent á Sólvangi 27. janúar sl. þar sem Lovísa Arnardóttir, formaður Hollvinasamtaka Sólvangs sagði frá aðdraganda að söfnuninni. 100 þús. kr. voru svo afhentar starfsmannafélagi Sólvangs. Hollvinasamtökin munu áfram reyna að styðja við starfsemina á Sólvangi en töluvert skortir á að nægilegt fé fáist til tækjakaupa frá ríkinu. Gáfu rúmdýnur Afrakstur Sólvangsdagsins afhentur Lovísa Arnardóttir, formaður Hollvinasamtaka Sólvangs og Guðmundur Fylkisson stjórnarmaður. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Hafnarfjarðarbær hefur barist með kjafti og klóm gegn því að þurfa að afhenda afrit af lánssamningi sem bærinn gerði við FMS Wertmanagement 15. desember 2011. Í samningnum er ákvæði um trúnað og skv. því mátti Hafnarfjarðarbær ekki upplýsa um samninginn né lán­ veitandann nema með samþykki hans nema lagaákvæði kalli á slíkar upplýsingar. Hafnarfjarðarbær hefur neitað að afhenda samninginn og hefur vísað til ákvæðisins og þess að lánveitandinn hefur ekki viljað að upplýst verði um lánskjör. Þessa ákvörðun kærði Her mund­ ur Sigurðsson, íbúi í Hafnarfirði í júní 2012 til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Nefndin úrskurðaði 31. janúar 2013 og gerði Hafnarfjarðarbæ skylt að afhenda samninginn, þó með ákveðnum yfirstrikunum á vaxta prósentu. Þann úrskurð varð að fella úr gildi vegna efnis­ annmarka og úrskurðaði nefndin á ný 20. nóvember 2013 og var úrskurðurinn efnislega í meginatriðum eins, þ.e. veita skylda aðgang að samningnum en gerð var breyting varðandi tilteknar útstrikanir. Hafnarfjarðarbær undi ekki úrskurðinum og krafðist frest­ unar á réttaráhrifum og vildi fá afstöðu dómstóla og vísaði í upplýsingalög um samskipti á milli ríkja. Því mótmælti Her­ mundur og sagði eiganda Depfa banka vera bankasam steypu í hlutafélagsformi. Neitaði Hafn­ ar fjarðar bær að afhenda m.a. Fjarð ar póstinum samninginn þrátt fyrir úrskurð nefndarinnar. Úrskurðarnefnd um upp lýs­ inga mál hafnaði málarökum Hafnarfjarðarbæjar og taldi ekk­ ert hafi komið fram sem sýndi að fyrir hendi væru lagaskilyrði til að fresta réttaráhrifum. Var sá úrskurður kveðinn upp 28. janúar sl. og undi Hafnar fjarð ar­ bær þeim úrskurði og hefur afhent lánssamninginn með ákveðnum yfirstrikunum. Lánssamningur loks afhentur Hafnarfjarðarbær verst með kjafti og klóm

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.