Fjarðarpósturinn - 16.04.2014, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 16. apríl 2014
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
RAGNAR SCHEVING
ÚTFARARÞJÓNUSTA
ÓLÖF HELGADÓTTIR
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HÁLFDÁN HÁLFDÁNARSON
ÚTFARARSTJÓRI
FRÍMANN ANDRÉSSON
ÚTFARARSTJÓRI
FJÖLSMÍÐ
LÍKKISTUVINNUSTOFA
Síðan 1993
Stapahraun 5
220 Hafnarfjörður
www.uth.is
uth@simnet.is
565-9775
Rekstur sjálfseignarstofnunarinar
Hafnar öldrunarsmið stöðvar er ofar
lega í umræðunni þessa daga og
skyldi engan undra. Það hlýtur að
vekja athygli að eftir að þáverandi
framkvæmdastjóri lýsti því yfir í lok
desember að staða Hafnar væri fín og
að búið væri að gera upp skuldir stofnunarinnar, væri staðan
um 4 mánuðum síðar svo slæm að íbúar þurfi að leysa til sín
íbúðirnar og að sjálfseignastofnunin muni hverfa frá rekstr
inum. Reksturinn er sagður hafa verið erfiður alla tíð og því
hljóta menn að velta því fyrir sér af hverju rekstrinum var
ekki breytt fyrir löngu síðan. Hver var eftirlitsskylda þeirra
félaga sem að sjálfseignarstofnuninni stóðu? Voru Hafnar
húsin allt of lítil rekstrareining til að geta staðið undir bæði
framkvæmdastjóra og húsverði í fullu starfi? Þessi veikburða
samtök voru þau sömu og lögðu nýlega fram tillögur að
mikilli uppbyggingu á Sólvangsreitnum þar sem rífa átti hús
og byggja hærri hús og fleiri en þar eru núna.
Menningarhátíðin Bjartir dagar hefjast síðasta vetrardag
með mjög þéttri dagskrá. Allt benti til að hátíðinni yrði aflýst
í ár en hátíðin hlaut töluverða gagnrýni á opnum fundi um
menningarmál sl. haust. Hún þótti orðin of rýr og áhugi
bæjarbúa ekki nægilegur. Þrátt fyrir þetta var blásið til bjartra
daga nú í tengslum við sumardaginn fyrsta sem nú kemur í
beinu framhaldi af páskunum. Það á eftir að sýna sig hvernig
til tekst en hátíðin er ekki með ólíku sniði og í fyrra. Gestir
þurfa að greiða inn á fleiri atburði en áður en sumir þeirra eru
nokkuð stórir eins og tónlistarhátíðin Heima þar sem
tónleikar verða í heimahúsum. Fólk kemst að vísu ekki á
marga tónleika þar sem hátíðin stendur aðeins í 4 klukku
stundir. Óvenju mikið er í boði á fyrsta degi og því verða
bæjarbúar að velja og hafna. Það er vonandi að bæjarbúar
bregði sér í miðbæinn á Björtum dögum því það er engin
hátíð ef bæjarbúar taka ekki þátt.
Eitt af því sem bæjarbúum er hvað mest umhugað um
þegar rætt er um málefni bæjarins er almenn umgengni.
Draslaraháttur og sóðaskapur virðist eðlilega fara illa í
bæjarbúa. Þó finnst mörgum allra verst að horfa upp á það
sinnuleysi sem upplifa má hjá bæjaryfirvöldum. Aðgerðir til
að sporna við sóðaskap eru frekar máttlausar og menn skýla
sér bak við erfiða stjórnsýslu. Á árinu 2000 samþykkti
umhverfisráðuneytið samþykkt um ungengni og þrifnað utan
húss í Bessastaðahreppi, Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi.
Þar eru skýr ákvæði og vitnað í lög um hollustuhætti og
mengunarvarnir þegar kemur að úrræðum og viðurlögum.
Mættu bæjarfulltrúar gjarnan taka þessi mál föstum tökum í
lok kjörtímabils síns og láta dæma sig af verkum sínum í
komandi kosningum.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn Föstudagurinn langi
Kvöldvaka við krossinn
kl. 20
Dagskrá í tali og tónum sem tengist
atburðum föstudagsins langa.
Páskadagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 8
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn.
Morgunverður í safnaðarheimilinu á eftir
www.frikirkja.is
Skírdagur
Fermingar kl. 11 og 13.30
Altarisganga og
Passíusálmasöngur kl. 18
Sálmar 38 - 45 sungnir.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Föstudagurinn langi:
Helgistund kl. 11
Magnea Tómasdóttir söngkona og Guðmundur
Sigurðsson organisti flytja vers úr passíusálmunum.
Lesið úr píslarsögunni. Prestur sr. Þórhildur Ólafs.
Passíusálmasöngur kl. 18
Sálmar 46 - 50. Smári Ólason flytur erindi um gömlu
passíusálmalögin og kynnir nýja bók um efnið.
Páskadagur:
Hátíðarmessa kl. 8
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Guðmundur
Sigurðsson. Barbörukórinn. Hátíðarmorgunverður.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Víðistaðakirkja
Skírdagur 17. apríl:
Fermingarmessa kl. 10.30
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Föstudagurinn langi 18. apríl:
Guðsþjónusta kl. 11
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Páskadagsmorgunn 20. apríl:
Hátíðarmessa kl. 8
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði
og meðlæti í safnaðarheimilinu
að messu lokinni.
www.vidistadakirkja.is
Föstudagurinn langi, 18. apríl
Lestur valinna
Passíusálma kl. 17-18
Gömlu lagboðar sálmanna verða leiknir
á milli lestranna
Páskadagur 20. apríl
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn
Matthíasar V. Baldurssonars.
Ólöf Inger Kjartansdóttir syngur einsöng.
Prestur er sr. Kjartan Jónsson.
Sunnudagaskóli á sama tíma
Þar verður farið í páskeggjaleit.
www.astjarnarkirkja.is