Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.05.2014, Blaðsíða 3

Fjarðarpósturinn - 22.05.2014, Blaðsíða 3
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 22. maí 2014 Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn Skipulags og byggingaráð Hafnarfjarðar hefur auglýst breytt deiliskipulag Hleina við Herjólfsgötu. Breytingin felst í að lóðirnar Herjólfsgata 30, 32 og 34 eru sameinaðar í eina lóð þar sem gert er ráð fyrir tveimur fjögurra hæða byggingum með 32 íbúðum og bílakjallara. Walter Ehrat íbúi að Dranga götu 1 segist ekki hafa trúað eigin augum þegar hann sá að búið væri að senda út tilkynningu um auglýsingu á þessari breyt ingu. Árið 2006 var einnig auglýst eftir athugasemdum íbúa við breytingu á deiliskipulagi þar sem gert var ráð fyrir blokkar íbúðum á svæði þar sem fyrir voru tvö einbýlishús. Níu íbúar á svæðinu sendu þá inn athuga semdir en þrátt fyrir það var tillagan samþykkt í bæjarstjórn án nokkurs samráðs við íbúa. Tillagan var kærð til Úrskurðar nefndar skipulags og bygginga mála (www.usb.is mál 91/2006 Hleinar) sem komst að þeirri niðurstöðu árið 2009 að málsmeðferð hafi verið ábótavant. Krafðist Úrskurðarnefnd ógildingar á samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Walter segir að alla jafna hefði almennur borgari talið að málinu væri lokið með þeim úrskurði. „Enn á ný auglýsir Hafnar­ fjarðarbær sömu breytingu á deiliskipulagi. Það virðist sem mótmæli íbúa svæðisins og niðurstaða Úrskurðarnefndar hafi lítið vægi gegn hagsmunum verktaka sem langar til að byggja blokkir á þessu fallega svæði. Tillaga um breytinguna var tekin fyrir á 1721. fundi bæjarstjórnar 19. mars 2014 og samþykkt án mikillar umræðu að virðist. Það hefur margt verið gruggugt við þetta mál frá upphafi og enn á ný virðist eiga að reyna að læða því gegn hugsanlega jafnvel án þess að bæjarstjórn þekki forsögu málsins,“ segir Walter. Walter segir að enn á ný verði íbúar að reyna að verja sig fyrir þessum yfirgangi með mótmælum og kærum. Hvetur hann íbúa til að láta heyra í sér og mótmæla þessum aðgerðum með því að gera sínar athugasemdir við deiliskipulagstillöguna fyrir 18. júní nk. Byggja á blokkir í andstöðu við íbúa í hverfinu Úrskurðarnefnd krafðist ógildingar árið 2006 Þarna eiga að koma blokkir og húsið verður rifið. Flatahrauni 5a • sími 555 7030 www.burgerinn.is © F ja rð ar pó st ur in n 20 14 05 Sumarglaðningur! gildir 22.-26. maí þegar sótt er 2 fyrir 1 15“ eldbökuð pizza af matseðli þegar keypt er 2 ltr. Coke Á Facebook síðu Fjarðarpóstsins getur þú skoðað fjölmargar myndir frá opnun frjálsíþrótta hússins í Kaplakrika, frá kóramóti eldri borgara, frá leik SH og Ægis í sundknattleik og fleiru.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.