Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.05.2014, Blaðsíða 10

Fjarðarpósturinn - 22.05.2014, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. maí 2014 Framtíð Fyrir alla HAFNARFJÖRÐURXS Hvernig vinna Píratar? Í ár bjóða Píratar í fyrsta skipti fram lista til bæjarstjórnar í Hafnarfirði. Píratar eru að vissu leyti frábrugðnir öðrum fram­ boðum, en Píratar vinna eftir svokallaðri grunnstefnu sem í stuttu máli geng­ ur út á að standa vörð um borgaraleg réttindi og að taka ákvarðanir byggðar á greinar góð­ um upplýsingum og upplýstri umræðu. Grunnstefnan Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarð­ anir, beita sér fyrir eflingu og vernd borgararéttinda, að allir ein staklingar eigi rétt á friðhelgi einkalífs, tjáningarfrelsi og rétt­ inn til að safna og miðla upp­ lýsingum. Við teljum gagnsæi vera mikilvægan þátt í að upp­ lýsa almenning og að upplýsingar eigi að vera öllum aðgengilegar. Upplýst ákvarðanataka Við ákvarðanatöku móta Pírat­ ar stefnu sína í ljósi gagna og þekkingar, óháð því hvort tillaga virðist í fyrstu æskileg eða ekki. Afstaða okkar til hugmynda er óháð því hverjir forsvarsmenn hennar eru eða hvaðan hún kemur. Við leggjum áherslu á að skoða hugmyndir, afla okkur upp lýsinga um þær og taka ákvarð anir byggðar á þeim. Við teljum að allir eigi að hafa rétt til aðkomu að ákvörðun­ um áður en þær eru teknar og hafi til þess aðgang að sömu gögn­ um og bæjarfulltrúar, án þess að þurfa að bera sig sérstaklega eft ir þeim. Út frá þessari stefnu leggj um við mesta áherslu á opið bókhald – að hver einasta færsla í bók haldi Hafnarfjarðar verði birt, fyrir utan þær færslur sem ekki er hægt að birta vegna per­ sónu vernd ar sjónarmiða. Þann ig tryggj um við að íbúar geti raun­ verulega fylgst með fjármálum bæjarins. Til viðbótar við stöðugt upp­ lýsingaflæði á netinu munum við, nái Píratar fulltrúa inn í bæjar­ stjórn, halda grasrótarfund á tveggja vikna fresti til að ræða mál efni bæjarins við íbúa, fá frá þeim hugmyndir og miðla upp lýs­ ing um úr störfum bæjar stjórn ar. Höfundur er oddviti Pírata í Hafnarfirði. Brynjar Guðnason Ást okkar á Hafnarfirði á sér engin takmörk. Hér erum við fædd og uppalin, hér höfum við valið okkur framtíðarstað og hér viljum við eldast, verða gömul. Rætur skipta máli og hvar fók velur sér að skjóta rótum skiptir máli. Aðflutt eða innfædd. Sú útþenslustefna sem ráðið hefur lögum og lofum í skipulagsmálum Hafnarfjarðar þ.e. að dreifa byggðinni upp um fjöll og firnindi, er kostn­ aðarsöm aðferð við að byggja bæ. Sú hagkvæmni sem við ætt um að njóta, búandi í þéttbýli, er ekki að skila sér til okkar íbúanna og til langs tíma er þetta ekki heillavænleg þróun. Við þurfum að fara betur með, þétta byggð og huga að innviðum. Skólahverfi eldast of fljótt og gatnakerfið tekur æ meira pláss á kostnað hraunsins. Við viljum, með bættu skipulagi og stór­ bættum almennings sam göngum, draga úr sóun og stefna að því að sem flestir íbúar bæjarinns geti leyst daglegt líf án þess að grípa til einkabílsins. Við ætlum ekki að „gera“ Hafnarfjörð að ferðamannabæ. Leiðin til að laða að ferðamenn er að byggja bæ sem er aðlaðandi fyrir okkur sjálf. Bær sem er heillandi og lifandi, bær sem við njótum að eyða frítíma okkar í, dregur að sér ferðamenn. Það er ekki líklegt til árangurs að byggja upp ferðamannabæ á meðan við sjálf erum einhverstaðar í öðrum bæj ar félögum eða verslunar mið­ stöðvum að njóta lífsins. Flens­ borgarhöfn, Slippurinn, göngu­ stíg ur inn meðfram ströndinni, Sundhöllin og Hellisgerði eru dæmi um svæði þar sem stór­ kost leg tækifæri bíða okkar bæj­ ar búa til þess að gera góðan bæ betri. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, það þarf heilt þorp til að halda utan um fjölskyldu og það þarf heilt þorp til að hlúa vel að eldri borgurum. Saman erum við þetta þorp. Við sem skipum 3. og 4. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Hafnar­ firði, bjóðum fram krafta okkar í þetta verkefni. Borghildur Sturludóttir og Pétur Óskarsson. Borghildur Sturludóttir Pétur Óskarsson „Þó hraun þín séu hrjóstrug er hvergi betra skjól“ Sólgarður Óseyrarbraut 27, Hafnarfirði solgardur@solgardur.is | sími 864 5111 Moldarsala Gróðurmold til sölu Opið alla virka daga kl. 16 - 19 og um helgar kl. 12 - 16 Hafnfirsk börn og skóla í fyrsta sæti Framtíðin býr í börnunum og í hverju samfélagi er mikilsvert að sé hlúð að þeim sé eins og kostur er. Við í Hafnarfirði verðum að setja markið hátt og ekki sætta okkur við annað en að skólar og íþrótta­ og tómstundastarf sé til fyrirmyndar. Hér á að vera gott að búa og eftir sóknarvert fyrir fjöl skyldufólk að setj­ ast að. Net- og tölvutækn- ina í alla skóla Í skólum bæjarins er unnið frábært starf á hverjum degi og hefur stjórn end­ um og starfsmönnum tekist mjög vel til í þeim fjárhagslegu þreng­ ingum sem stofnanir bæjarins hafa búið við undanfarin ár. Það er mat okkar sjálfstæðismanna að tími sé kominn til að bæta aðbúnað og starfsumhverfi skól­ anna. Og um leið ánægju og möguleika starfsfólks til nýsköp­ unar og þróunar í starfi. Því beri að draga úr miðstýringu og auka fjárhagslegt og faglegt svigrúm skólanna. Þannig er að okkar mati best hægt að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, áhuga og þroska. Mikilvægt er að gera átak í net­ og tölvutækni innan skól­ anna líkt og ráðist hefur verið í hjá nágranna­ sveitar félög um okkar. Nýjungar og mögu­ leikar upplýsinga tækn­ innar nýt ast ekki síst til að tryggja einstaklings­ mið aða þjónustu við nem endur til að styrk­ leikar þeirra og hæfi leik ar fái notið sín. Hafn firskir nem endur eiga skilið það besta. Frístundabílinn aftur! Samþætting skóla dags og tómstunda barna er einnig mikil­ vægt við fangs efni. Þurfa skól­ arnir, bæjar félagið og þeir sem sinna íþrótt um, listum og æskulýðsstarfi að vinna saman að því markmiði að öll börn eigi Rósa Guðbjartsdóttir jafna möguleika á að stunda það tómstundastarf sem þau kjósa, óháð efnahag og öðr um að stæðum. Frístunda bíllinn auð­ veldaði yngstu börn unum að sækja tómstundir sínar og var kærkomin þjónusta fyrir fjöl­ skyldufólk í bænum. Við sjálf­ stæðis menn börðumst fyrir því á kjörtímabilinu að hann yrði starfræktur áfram og viljum að hann verði tekinn upp aftur. Fjölgum tækifærum barnanna til að eflast og þroskast á eigin forsendum – því hvert barn skiptir máli. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins. Leikskólinn Hvammur fékk viðurkenningu fræðsluráðs Hafn ar fjarðar á þriðjudaginn fyrir þróun verk efnis innan skól ans um mál örvun, læsi og samskipti. Hvammur fékk viðurkenningu Frá afhendingu viðurkenningarinnar til Hvamms á mánudag.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.