Fjarðarpósturinn - 22.05.2014, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. maí 2014
Hver einstaklingur, hver gata
og hvert hverfi er mikilvægur
hlekkur í keðju hvers
samfélags. Hér í
Hafnar firði má segja að
hvert hverfi hafi sína
sérstöðu og sérkenni.
Hafnarfjörður er stórt
bæjarfélag á íslenskan
mælikvarða, sem
byggst hefur upp og
þróast, ef segja má frá
tímum Hansa kaup
manna frá 15. öld.
Þrátt fyrir stærð Hafnarfjarðar
og sífellda fjölgun og breytta
samsetningu íbúa þá býr
Hafnarfjörður enn að ákveðnum
bæjar brag sem
einkennist af
væntumþykju íbúa til
síns hverfis. Hvert
hverfi hefur sinn bæjar
brag og sinn sjarma og
því þarf að viðhalda.
Það er því mikilvægt
að horft sé á þarfir
þeirra sem þar búa.
Væntingar hvers
hverfis til þjón ustu
veittri af bæjarfélaginu eru því
misjafnar. Mörg hverfi hér í
Hafnarfirði hafa þurft að búa við
afleiðingar lélegrar fjárhagsstöðu
bæjarins á undanförnum árum
sem komið hefur niður á aðstöðu
og öryggi íbúa, hvort sem er
gangandi hjólandi eða akandi.
Göngu og hjólastígar,
ruslatunnur sem og sópun gatna,
svo ekki sé talað um söltun og
snjómokstur, hefur ekki verið
bæjarfélaginu til sóma og verið
ábótavant í öllum hverfum
bæjarins. Ný hverfi hafa þurft að
búa við ókláraðar gangstéttir og
fleiri frágangsmál.
Mörg hverfi hafa sett á
laggirnar hverfafélög sem huga
að hagsmunum íbúanna, hvort
sem er til að bæta aðstöðu, fjölga
grænum svæðum, tryggja öryggi
eða standa fyrir ákveðnum
viðburðum. Hverfafélag Valla
hverfisins er gott dæmi um
hverfa félag sem barist hefur fyrir
bættum aðbúnaði íbúa sinna sem
og staðið fyrir skemmtilegum
viðburðum.
Íbúalýðræði er mikilvægt í
hverju samfélagi til að hægt sé
að búa til bæjarfélag þar sem
unnið er út frá skoðunum, vænt
ingum og vilja íbúanna. Taka
þarf ákvarðanir sem teknar eru í
sátt og samlyndi við íbúa og
heyra raddir þeirra sem þekkingu
hafa á sínu eigin hverfi til að ná
fram betri gæðum í þjónustu
fyrir heildina.
Tökum saman þátt í að byggja
upp bæjarfélag þar sem gaman
og gott er að búa. Byggjum upp
og breytum saman sem íbúar
Hafnarfjarðar, þar sem hver
hlekk ur í keðju samfélagsins er
virtur og metinn að verðleikum.
Þannig náum við sameiginlega
fram hagsmunum fyrir heildina.
Höfundur skipar 6. sætið á
lista Sjálfstæðisflokksins.
Golfnámskeið
Keilis fyrir
krakka á
aldrinum 5-12
Markmið golfleikjanámskeiðanna:
– eru fyrir allar stelpur og stráka á aldrinum 5-12 ára
– að fyrstu kynni af golfi eru jákvæð og það er gaman að leika golf
– farið verður í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga
– leiknar eru nokkrar golfholur á golfvelli
– kennsla er gjarnan í formi golfleikja ýmiss konar
– áhersla er á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum
– iðkendur geta tekið fleiri en eitt námskeið
Golfleikjaskóli Keilis er fyrir alla krakka frá aldrinum 5-12 ára.
Á námskeiðunum er nemendum skipt í tvo aldurshópa, 5-8 ára og 9-12 ára.
Námskeið sem í boði eru:
10.-13. júní 4 dagar (þri. - föst.)
16.-20. júní 4 dagar (mán. - föst. frídagur þri. 17. júní)
23.-27. júní 5 dagar (mán. - föst.)
30.-04. júlí 5 dagar (mán.- föst.)
07.-11. júlí 5 dagar (mán. - föst.)
14.-17. júlí 5 dagar (mán. - föst.)
Hægt er að velja um námskeið frá kl. 9:00 - 11:45 eða kl. 12:30 - 15:15.
Fimm daga námskeiðin kosta kr. 10.000. Fjögurra daga námskeiðin kosta kr. 8.000
Veittur er 20% systkinaafsláttur. Veittur 20% afsláttur ef sótt eru fleiri en eitt námskeið.
Krakkarnir kynnast einnig leikjum og æfingum með svokölluðum SNAG búnaði,
en hann hentar sérlega vel til að auðvelda iðkendum að ná betri tökum á
íþróttinni og að auka skemmtanagildið.
Námskeiðum lýkur með pylsuveislu og afhendingu viðurkenningarskjals frá GK.
Skráning hefst 22. maí á slóðinni https://keilir.felog.is/ Ef fólk lendir í vandræðum þá eru leiðbeiningar á heimasíðu Keilis, keilir.is
22,8 milljónir
kr. styrkir til
skóla
Þróunar- og ný sköp-
unar sjóður fræðslu ráðs
Tillaga sviðsstjóra að styrk
veitingu Þróunar og snýsköp
un ar sjóðs fræðsluráðs var
samþykkt með þremur atkvæð
um á fundi fræðsluráðs á mið
vikudaginn. Fulltrúar Sjálf
stæðis flokksins greiddu ekki
atkvæði með tillögunni og sátu
hjá við atkvæðagreiðslu..
Samtals var ráðstafað til
grunn og leikskóla kr.
22.845.000,. Þessir fengu styrki:
Hraunvallaskóli:
kr. 2.100.000,- Læsi - Lífið
sjálft - stefnumörkun í læsi í
1.-4. bekk.
Hraunvallaskóli:
kr. 1.150.000 „ART - Ag gress-
ion Replacement Train ing“.
Hvaleyrarskóli:
kr. 1.400.000, Læsi mótun
heildarstefnu.
Lækjarskóli:
kr. 2.770.000,- Nýbúakennsla.
Lækjarskóli:
kr. 610.000,- „First Lego
League“.
Lækjarskóli:
kr. 440.000,- Enska - efling
ensku kennslu, Mentorver kefni.
Víðistaðaskóli:
kr. 2.210.000,- Læsi til náms.
Öldutúnsskóli:
kr. 1.200.000 Teymisvinna
1. og 5. bekk.
Arnarberg:
kr. 2.190.000,- Læsishvetjandi
umhverfi í eldri deildum.
Álfaberg:
kr. 1.600.000 Læsi - Snemm-
tæk íhlutun.
Brekkuhvammur:
kr. 1.000.000 Læsi - Snemm-
tæk íhlutun, læsisstefna
Hlíðarberg:
kr. 900.000 Læsi - snemmtæk
íhlutun.
Hörðuvellir:
kr. 750.000 Stærðfræði kennsla
- „Numicon“.
Norðurberg:
kr. 1.400.000 Læsi - snemm-
tæk íhlutun
Tjarnarás, Stekkjarás, Hraun
valla leikskóli:
kr. 250.000 Læsi - snemmtæk
íhlutun.
Víðivellir:
kr. 875.000 Læsi - snemmtæk
íhlutun.
Hvert hverfi skiptir máli
Kristín
Thoroddsen