Fjarðarpósturinn - 22.05.2014, Side 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. maí 2014
Sundfélag Hafnarfjarðar • sh@sh.is • www.sh.is • 555 6830
Allar upplýsingar um sumarsund Sundfélags Hafnarfjarðar og innritun
verða á heimasíðu SH www.sh.is.
styrkir barna og unglingastarf SH
Tímabil í boði:
10.-20. júní
23. júní - 4. júlí
7.-.18. júlí
21. júlí - 1. ágúst
Sumarsund fyrir
hressa krakka
Sumarsundskóli
Sundfélags Hafnarfjarðar, SH, er með
námskeið í Ásvallalaug, Sundhöllinni
og Lækjarskólalaug í sumar
Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 4-10 ára
og standa yfir í tvær vikur eða 8-10 skipti.
Er barnið þitt að byrja í skóla í
haust og er óöruggt í vatninu?
Skráðu það í Sumarsund SH!
Hafnarfjörður h.f.?
Sveitarfélag er að mörgu leyti
áþekkt fyrirtæki í dreifðri eignar
aðild, þar sem íbúarnir eru bæði
hluthafar og viðskiptavinir. Tekjur
bæjarfélagins koma frá íbúum og
eru notaðar til að kosta
þá þjónustu sem við telj
um auka velsæld. Hagur
fyrirtækja er sömu leiðis
undir því kom inn hvers
virði þjón ustan er fyrir
viðskipta vininn.
Pólitík hefur löngum
birst mér sem leiftrandi,
úthugsaður og ósnert an
legur vettvangur gáf aðs
fólks, sem veit hver hinn
eini sannleiki er. Þar er ræðusnilldin
mælikvarði á trúverðugleikann.
Orð, látbragð og plott er hluti af
þessum heimi, snaggaraleg til svör
og hnyttin hnútuköst. Sá sem er
seinn til svara eða forðast sviðsljós
hikar við að blanda sér í leikinn.
Eftir nám í verkfræði, lá bein ast
við hjá mér að vinna á al mennum
vinnumarkaði, enda upp fyllti ég
ekki ímynduð skil yrði mín til að
fara í pólitík. Sem stjórnandi veit
ég að besti árang urinn fæst með
því að eiga góð sam skipti við fólk
og rökræða mál og leiða til lykta út
frá hagsmunum allra.
Stjórnendur í atvinnulífinu leggja
hart að sér við að efla stjórn unar
hæfi leika sína og á síðustu ára tug
um hefur fag mennska aukist mjög
við stjórnun fyrirtækja og stofnana.
Ég þekki af eigin reynslu að það er
ekki grund vallar munur á því að
vera stjórnandi í upp lýsinga tækni
fyrirtæki, prent smiðju eða banka.
Gilda önnur lögmál í fyrirtækj
um en í sveitarfélögum? Er mun ur
á því að afla arðs fyrir hluthafa eða
efla velsæld íbúa? Vel rekin
fyrirtæki með skýra framtíðarsýn
setja gróða ekki endilega
í for gang. Tal um pen
inga er hins veg ar alls
ráðandi í illa reknum
fyrir tækjum. Það sama
gildir um sveitar félög.
Bæjarstjórnarfundir
sem fylgj ast má með á
netinu eru afar ólíkir
stjórnarfundum í góðu
fyrir tæki. Erfitt er að
hugsa sér stjórnarmenn í
vel starfhæfu fyrirtæki stunda
kapp ræður og skipa sér þannig í
and stæðar fylkingar.
Erindi Bjartrar framtíðar inn í
hafnfirska pólitík er að breyta nú
gildandi hefðum og skapa aukna
sátt í bæjarstjórn. Við viljum að
góðar hugmyndir nýtist, sama hver
setur þær fram og að átök um
kennisetningar flokka eða sér hags
muni víki fyrir yfirvegaðri umræðu
sem leiðir til ábyrgrar ákvarðana
töku. Við viljum meiri gleði og
bjartsýni inn í umræðuna og hætta
að einblína á neikvæða hluti. Við
búum í góðum bæ sem hefur alla
möguleika á að verða eftirsóknar
verðasti staður á Íslandi fyrir fjöl
breytt fyrirtæki og allskonar fólk.
Ef við sameinumst um það
markmið eru okkur allir vegir
færir.
Höfundur er framkvæmda-
stjóri. Er í 2. sæti á lista
Bjartrar framtíða.
Einar Birkir
Einarsson
Aukið sjálfstæði skóla
Samkvæmt rannsóknum, m.a.
einni frá Harvard háskóla – en
niðurstöður hennar voru birtar í
mars á þessu ári, þá skipta gæði
samskipta mestu máli til að
hámarka árangur og
vellíðan.
Það skiptir máli að
það sé gaman í vinn
unni. Það getur aukið
ánægju stjórnenda og
kennara að gefa þeim
meira frelsi og nýta
krafta þeirra sem sjá
um málin dag frá degi.
Í grunnstefnu Pírata
segir að Píratar telji að
draga þurfi úr
miðstýringu valds á öllum
sviðum. Píratar vilja að
kennurum og stjórnendum skóla
sé treyst til þess að móta
skólastarfið. Að miðstýra ekki
um of með einni leið.
Með því tryggjum við fjöl
breyttar hugmyndir sem ættu að
leiða okkur sem heild til betri
lausna í skólakerfinu. Samhliða
auknu sjálfstæði leik og
grunnskóla til skólaþróunar þarf
að tryggja að árangur breytinga á
námi og kennslu sé metinn
reglulega.
Mikilvægt er að nemendur fái
markvissa þjálfun í að læra út frá
áhuga sínum og kenn
arar fái svigrúm til að
kenna út frá sínum
hug myndum og vinnu
brögð um.
Við teljum að auka
þurfi áherslu á gagn
rýna hugsun, t.d. með
heim spekikennslu. Þá
mætti kenna hagnýt
fög eins og forritun og
fjár mála læsi, sem við
teljum að nýtast muni
nemendum sem þátt tak endum í
samfélagi framtíðar innar.
Píratar hafa ekki trú á skóla
stefnu sem kenn arar og nem
endur taka ekki þátt í að móta,
enda á það ekki að vera hlutverk
bæjarstjórnar að hafa stefnuna
undir smásjá.
Höfundur er aðstoðarfor-
stöðu maður Miðstöðvar
símenntunar í Hafnarfirði og
skipar 3. sæti á lista Pírata.
Finnur
Gunnþórsson
32 íbúðir í almenna sölu við Skipalón
Fjarðarmót byggir 96 glæsilegar íbúðir á svæðinu
Um helgina verða fyrstu tvær
íbúðirnar að Skipalóni 5 til sýnis
fyrir áhugasama íbúðarkaup
endur. Eru þær í fimm íbúðahæða
húsi sem í eru 32 íbúðir, 2ja til 5
herbergja.
Hjálmar Hafsteinsson, einn
eigenda Fjarðarmóta ehf., segir
að fyrirtækið sé að byggja 96
íbúðir á svæðinu en Fjarðarmót
er um 40 ára gamalt byggingar
fyrirtæki sem hefur mikla
reynslu af byggingu íbúðarhúsa í
Hafnarfirði. Hann segir starfs
manna veltu hjá fyrirtækinu mjög
litla og því njóti fyrirtækið þess
að hafa mjög reynslumikið fólk í
vinnu. Hjálmar segir byggingar
framkvæmdir hafi gengið mjög
vel. Byrjað var á undirstöðum í
nóvember 2012 og reiknað er
með að hægt verði að afhenda
íbúðirnar í júlí nk. Bílakjallari er
í húsinu fyrir hluta íbúða. Húsið
er teiknað af ASK arkitektum
sem hafa teiknað öll húsin við
Skipalón. Þau eru mjög vönduð,
með aðkomu að íbúðunum frá
svalagöngum sem lokaðir eru
með gleri. Aðkoma að íbúðunum
er mjög rúmgóð, bæði í stigahúsi
og á svalagöngum. Íbúðirnar eru
rúmgóðar og full innréttaðar en
hægt er að fá þær afhentar með
eða án gólfefna. Þessar íbúðir
hafa engar kvaðir um aldur íbúa
eins og íbúðir í mörgum húsum á
svæðinu og höfða því til allra
aldurshópa. Rúmgóðar suður
svalir eru á öllum íbúðum og
útsýni úr íbúðunum er víða mjög
glæsilegt. Húsið er einangrað að
utan og klætt viðhaldslítilli
klæðn ingu.
Fasteignasölurnar Ás og
Hraun hamar verða með íbúð
irnar í sölu. Íbúðirnar sem verða
til sýnis um helgina eru 3ja og 5
herbergja á 2. hæð. Verð íbúð
anna í húsinu verður frá um 23
milljónum fyrir 2ja herbergja
íbúð upp í um 46 milljónir kr.
fyrir 5 herbergja íbúð.
F.v. Hjálmar Hafsteinsson, einn eigenda Fjarðarmóta, Hilmar
Bryde frá Hraunhamri og Eiríkur Svanur Sigfússon frá Ás.
Útsýnið er glæsilegt úr mörgum íbúðanna.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Rúmgóðar suðursvalir eru á öllum íbúðum.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n