Fjarðarpósturinn - 22.05.2014, Side 14
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. maí 2014
NÆSTA BLAÐ Á MIÐVIKUDAG!
Fjarðarpósturinn kemur næst út miðvikudaginn 28. maí.
Auglýsingaskil eru á hádegi í mánudag.
Sjá nánar á www.fjardarposturinn.is
Stofnað 1982
Dalshrauni 24 • Sími 555 4855
steinmark@steinmark.is
Reikningar • Nafnspjöld
Umslög • Bæklingar
Fréttabréf
Bréfsefni
Og fleira
þjónusta
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hægstætt verð.
Sími 664 1622 - 587 7291.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 849 6827 -
hjalp@gudnason.is
Bílaþrif. Kem og sæki.
Alþrif, þvottur, bón og vélarþvottur.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
Garðsláttur í einum grænum.
Tek að mér garðslátt í stærri
görðum. Hagstætt verð. Geri tilboð.
Uppl. í s. 845 2100.
Húsgagna-, dýnu- og teppa hreins-
un. Við djúphreinsum: rúmdýnur,
sófasett, tungusófa, hægindastóla,
teppi og mottur. s. 780 8319 eða
email: djuphreinsa@gmail.com
bílar
Kia Sportage árg. 1999 til sölu.
Ekinn aðeins 126 þ. km. Tilboð
óskast. Uppl. í s. 565 5693
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
www.fjardarposturinn.is
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Lýðræðisbærinn
Hafnarfjörður
Hafnarfjörður hefur á undan
förnum árum verið leiðandi á
meðal sveitarfélaga í lýðræðis
málum og stigið stór skref í átt til
aukinnar þátttöku íbúa í mikil
vægum ákvörðunum.
Aukin þátttaka
íbúanna
Árið 2002 voru sett
ákvæði inn í samþykktir
Hafnarfjarðarbæjar um
að bæjarstjórn beri að
leggja í dóm kjósenda
stærri og þýðingarmeiri
mál. Þetta var nýmæli í
samþykktum íslenskra
sveitarfélaga og er enn
einsdæmi. Sama ár var Ung
menna ráð stofnað, hið fyrsta
sinnar tegundar á Íslandi. Árið
2003 voru teknir upp reglulegir
íbúafundir bæjarstjóra í öllum
hverfum bæjarins og íbúaþingið
„Undir gafli“ haldið haustið
2004. Vorið 2005 fékk Hafnar
fjörður viðurkenningu sem
leiðandi sveitarfélag í stjórnsýslu
og upplýsingaþjónustu. Árið
2006 var stofnað Öldungaráð,
sem einnig var hið fyrsta sinnar
tegundar á landinu. Þessari
þróun var svo enn frekar fylgt
eftir með stofnun Notendaráðs
fatlaðra árið 2012. Nú viljum við
bæta um betur og koma á
sérstöku innflytjendaráði, skip
uðu íbúum af erlendum uppruna
sem verði bæjaryfirvöldum til
ráðgjafar.
Opin stjórnsýsla
Margt mætti nefna um þau
skref sem tekin hafa verið í átt að
auknu íbúalýðræði í
Hafnarfirði. Árið 2013
var einnig opnað fyrir
rafrænan aðgang að
öllum undirskjölum
bæjar ins og var Hafnar
fjörður fyrsta sveitar
félagið til að stíga þetta
stóra skref í að opna
stjórnsýsluna með
þess um hætti og er enn
eina sveitarfélagið sem
hefur gert það hér á landi. Hefur
bærinn einmitt verið tilnefndur
til nýsköpunarverðlauna fyrir
þessa framkvæmd.
Hafnarfjörður áfram í
fararbroddi
Við í Samfylkingunni viljum
að Hafnarfjörður verði áfram í
fararbroddi í því að skapa íbúum
formlegan vettvang til umfjöll
unar um einstaka málaflokka.
Við viljum nýta upplýsingatækni
og nýjar aðferðir við framkvæmd
íbúakosninga til að gefa bæjar
búum kost á að hafa áhrif á fleiri
sviðum. Við hræðumst ekki lýð
ræðið, heldur stöndum með því.
Höfundur skipar 3. sæti á
lista Samfylkingarinnar.
Adda María
Jóhannsdóttir
Grunnskólakennarar hafa
beðið þolinmóðir eftir launa
leiðréttingu og viðurkenningu á
því mikla álagi sem fylgir þessu
starfi. Því miður þurftu
grunn skóla kenn arar að
grípa til vinnu stöðvunar.
Fyrsta vinnu stöðvunin
var 15. maí, önnur
vinnustöðvunin hefur
verið boðuð 21. maí og
þriðja vinnu stöðvunin
27. maí. Von andi tekst
að semja áður en til þess
kemur. Sam kvæmt
formanni félags grunn
skóla kenn ara þá þokast í rétta átt
og það er vel. Umræðan um þessa
vinnu stöðvun hefur verið sáralítil,
fjöl miðlar virð ast ekki hafa áhuga
á þessum aðgerðum, sjálfsagt af
því að hér er um að ræða stétt sem
vinnur með fólk en ekki peninga.
Ég hef fengið símtöl frá fólki sem
veit ekki af því að það
eru boðaðir þrír dagar í
vinnustöðvun. Ein
hverjir hafa látið það út
úr sér að það sé skipu
lagsdagur í grunn
skólum Hafnar fjarðar
og því skipt ir þetta ekki
öllu og sumir tala um að
það séu vandræði á
heimilinu því nú veit
fólk ekki hver á að
,,passa“ barnið þeirra. Hvar er
umræðan um það álag sem fylgir
starfinu? Hvar er um ræð an um að
meðallaun kenn ara séu um
320.000 kr. og það fyrir skatt?
Hvar er umræðan um þau
fjölmörgu verkefni sem hafa
færst yfir á kennara síðustu ár án
þess að launin hafi hækkað?
Þessi vinnustöðvun hefur áhrif
á rúmlega 42000 grunnskóla
nem endur og snertir allflest
heimili með einum eða öðrum
hætti. Af leiðingarnar eru þær að
nem endur missa úr daga,
kennarar missa úr daga til að
skipuleggja námsmat, stjórnendur
missa kenn ara úr vinnu varðandi
skóla nám skrá og skipulag næsta
skóla árs og svona mætti lengi
telja.
Kennari í fullu starfi skilar
rúm lega 42 klst. í vinnu í hverri
viku. Með þessum ,,umfram“
tíma eru kennarar að vinna af sér
jólaleyfi og páskaleyfi. Yfir
sumar tímann eiga kennarar að
sinna yfir 100 klst. í endur mennt
un. En um ræðan er ekki um þessa
miklu vinnu kenn ara, hún er um
það að kenn arar eiga svo gott frí.
Það er kominn tími til að snúa
umræðunni við. Það er kominn
tími til að sýna kennurum
stuðning í sinni baráttu. Ég efast
um að aðrar starfsstéttir gætu sætt
sig við aukið álag og fleiri
verkefni en með sömu laun.
Horfum fram á veginn, leiðrétt
um kjör kennara og viðurkennum
það gífurlega mikla álag sem
fylgir þessu starfi.
Höfundur er skólastjóri og
skipar 10. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins.
,,Hver á núna að passa barnið mitt?“
Valdimar
Víðisson
Kjörskrá í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnar
kosninga þann 31. maí 2014 liggur frammi
almenningi til sýnis í Ráðhúsi Hafnarfjarðar,
þjónustuveri, Strandgötu 6, frá kl. 816 hvern
virkan dag frá 21. maí 2014.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort
nöfn þeirra séu á kjörskránni. Athugasemdum við
kjörskrá skal beina til bæjarráðs Hafnarfjarðar.
Einnig má fá upplýsingar um hvar kjósendur eru á
kjörskrá á www.kosning.is
Hafnarfirði 19. maí 2014
Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar
KJÖRSKRÁ FYRIR
HAFNARFJÖRÐ
HR sundkennsla
Næsta skriðsundsnámskeið fyrir byrjendur
verður haldið 3.-26. júní, alls 7 skipti.
Kennd verða undirstöðuatriði í skriðsundi.
Tími: þri og fim kl. 19:00-19:50
Staður: Sundhöll Hafnarfjarðar
Skráning: Holmsteinn10@gmail.com
Síðasta námskeið fyrir sumarfrí
18. júní-1. júlí frá kl. 9.00 - 12.00 30 tímar
2. júlí-15. júlí frá kl. 9.00 - 12.00 30 tímar
Leiklistarnámskeið
Skráning og nánari upplýsingar
sími 565 5900
namskeid@gaaraleikhusid.is
www.gaaraleikhusid.is
Gaaraleikhúsinu við Víkingastræti
Fyrir börn 8 til 12 ára
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Skoðaðu fjölmargar
myndir úr bæjarlífinu
Smelltu á
LÍKAR VIÐ