Fjarðarpósturinn - 12.06.2014, Side 3
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 12. júní 2014
Það er löng hefð fyrir Vormót
um Hraunbúa, fyrir löngu komin
með stóran staf en í ár var 74.
mótið haldið í Krýsuvík en þar
hefur það að jafnaði verið haldið
síðustu 50 ár. Skátarnir eru með
svæði undir hlíðum Bæjarfells
þar sem mótin eru haldin. Krýsu
víkurmótin hafa verið landsþekkt
fyrir rigningu og gulir regngallar
oft verið einkennisbúningur
glaðra mótsgesta. Í ár skein sólin
skært og hlutverk Björgunar
sveitar Hafnarfjarðar sem sá um
sjúkra gæslu var aðallega að
meðhöndla sólbruna.
Fjöll voru klifin og hlaupin,
skátar renndu sér niður í aparólu,
sigu í klettum, elduðu yfir eldi,
fóru í leiki, sungu, súrruðu og
nutu þess að vera saman með
öðrum skátum. Fjölskyldubúð
irnar voru stórar að venju, gamlir
skátar mættu með fjölskyldur
sínar sem og foreldrar skátanna
sem nutu útiverunnar og nátt
úrunnar í kring. Allir skemmtu
sér saman á varðeldi og á
tónleikum með Ingó veðurguði.
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Gleraugnaverslunin þín
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 1333336
MJÓDDIN
Álfabakka 14
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Fjarðargötu 13-15
Sími 555 4789
SELFOSS
Austurvegi 4
Sími 482 3949
Frí
sólgler með styrkleika
fylgja kaupum á gleraugum
Menningar og listafélag
Hafn arfjarðar ehf. hefur tekið
við rekstri Bæjarbíós. Kristinn
Skag fjörð Sæmundsson segir að
félagið hefji leik með tón leikum
Björgvins Halldórssonar og
hljómsveitar á föstudaginn kl.
20. „Þetta er föstudagurinn þrett
ándi, fullt tungl og enginn veit
hvað gerist,“ segir Kiddi og
kímir. Þetta verður í fyrsta sinn
sem Björgvin spilar í Bæjarbíói
en þar mun hann flytja úrval laga
af blómlegum ferli sínum. Í
samtali við Fjarðarpóstinn segir
Björgvin að þetta verði nokkurs
konar stofuskemmtun. Hann
muni syngja lög sem fólk þekkir
og segja frá sögunni á bakvið
lögin en Björgvin hefur sungið
um 800900 lög á ferlinum.
Björgvin segist fagna því að rífa
eigi upp starfið í Bæjarbíói og
sjálfur eigi hann góðar minningar
frá myndum með Roy Rogers á
æskuárum. Með Björgvini er
hljómsveit; Jón Elvar á gítar,
Þórir Úlfarsson á hljómborð,
Friðrik Sturluson á bassa og
Jóhann Hjörleifsson á trommur.
Áhugasömum er bent á að
tryggja sér miða í tíma á midi.is
eða í Súfistanum.
Hafnfirskar myndir og
fyndni
Ekki verður minna um að vera
um helgina því á laugardag kl.
21 verður sýnd myndin Astró pía
frá 2007 og stutt myndin Kara
mellumyndin frá 2003 í leik
stjórn Hafnfirðingsins Gunnars
B. Guðmundssonar. Auk þess
verða þeir Radíus bræður og
Hafnfirðingar, Steinn Ármann
Magnússon og Davíð Þór Jóns
son með uppi stand. Miðaverð er
1.500 kr. og miðasala í Bæjarbíói.
Myndir Þráins Bertelssonar
Sunnudagurinn verður til eink
aður Þráni Bertelssyni og sýndar
verða fjórar af hans klass ísku
myndum. Kvikmyndin Jón Oddur
og Jón Bjarni verður sýnd kl. 15,
Löggulíf kl. 17, Dalalíf kl. 19 og
Nýtt líf kl. 21. Aðeins kostar 500
kr. inn á hverja sýningu og 1.000
kr. inn á allar myndirnar. Miðasala
er í Bæjarbíói.
Framundan
Þann 29. júní verða útgáfu
tónleikar gítarleikarans og bæjar
listamannsins Andrésar Þórs í
tilefni af útgáfu hljómdisksins
„Nordic Quartet“ haldnir í Bæj
ar bíó. Tónleikarnir eru opnu nar
tónleikar Jazzklúbbs Hafnar
fjarðar og verður öllum Hafn
firðingum og þeim sem vilja
heim sækja Hafnarfjörð boðið
ókeypis á tónleikana á meðan
húsrúm leyfir.
Kiddi segir að sumarið verði
notað til að prófa sig áfram og
kanna vilja bæjarbúa en stefnt
verði að því að frá og með
haustinu verði daglegir viðburðir
í bíóinu. Hann segist harma það
að Kvikmyndasafnið hafi horfið
á braut og vonist til að það komi
aftur í Bæjarbíó. Segir Kiddi að
með samkomulagi við Bíó
paradís og fleiri rétthafa kvik
mynda verði hægt að sýna ýmsar
kvikmyndir í Bæjarbíó, íslenskar
sem erlendar.
Björgvin Halldórsson á tónleikum
Opnunarhátíð nýrra tíma í Bæjarbíói
Kristinn S. Sæmundsson.
Skraufþurrt Vormót
Skátarnir bjuggu þá til vatnsrennibraut
Skátar, ungir sér aldnir nutu útiverunnar og samverunnar á fyrsta
skátamóti sumarsins - á Vormóti Hraunbúa í Krýsuvík.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n