Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 04.09.2014, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 04.09.2014, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. september 2014 RAGNAR SCHEVING ÚTFARARÞJÓNUSTA ÓLÖF HELGADÓTTIR ÚTFARARÞJÓNUSTA HÁLFDÁN HÁLFDÁNARSON ÚTFARARSTJÓRI FRÍMANN ANDRÉSSON ÚTFARARSTJÓRI FJÖLSMÍÐ LÍKKISTUVINNUSTOFA Síðan 1993 Stapahraun 5 220 Hafnarfjörður www.uth.is uth@simnet.is 565-9775 Það er farið að hausta. Lauf er farið að falla og í haustlitir eru að koma á trén. Þá ætti sumarverkum að vera lokið, bæði hjá íbúum og bæjarfélaginu okkar. Víða eru göt ur merktar með hvítri málningu og á að vera merki um viðgerðir. Auð vitað vildum við hafa göturnar fínar á sumrin en það er líklega mikilvægara að loka holum og rifum í malbik­ inu fyrir veturinn. Merkingar á yfirborði vegar hafa oft valdið mér heilabrotum. Af hverju er t.d. brotalína á milli akreina í tvístefnugötu þegar ekið er út úr hringtorgi en ekki þegar ekið er inn í þau? Gangbrautir eru ætlaðar gangandi vegfarendum og eru settar svo fólk fari ekki hvar sem er yfir götuna og þar eiga að vera merkingar svo ökumenn sjái greinilega að þarna megi þeir eiga von á gangandi fólki. Af hverju eru sums staðar aðeins tvær hvítar línur yfir götuna þegar reglur segja að þar eigi að vera sebrabraut? Af hverju er víða tekið úr gangstéttarbrún og úr miðeyju án þess að þar sé að finna neinar gang­ brautar merkingar. Fólk tekur þessu sem gang brautum en ökumenn ekki! Á þessu bera bæjaryfirvöld ábyrgð. Á þetta hefur oft verið bent og víða hefur verið brugðist við en alls ekki alls staðar. Vill ekki einhver sem ber ábyrgð á þessum málum skýra út fyrir bæjarbúum hvers vegna þetta sé svona? Spennandi verður að sjá hvernig ný bæjarstjórn ætlar að nýta og markaðssetja allar lausu lóðirnar í Skarðshlíð. Þar liggja miklir fjármunir fastir og fleiri íbúum fylgir aukið útsvar. Engin framtíðaráform hafa verið kynnt og það hlýtur að liggja á að koma lóðunum í verð. Mjög þarf að vanda til skipulagsvinnu og allt of oft þarf að gera breytingar á skipulagi sem bæði geta verið kostnaðar­ samar og auk þess oft til ama fyrir íbúa. Þá verður líka spennandi að sjá hvort ný bæjarstjórn hafi metnað til að halda hugmyndasamkeppni um nýtt miðbæjarskipulag sem miðar að því að fjölga verslunarrýmum við Strand­ götuna og gera hana líflegri. Hveitibrauðsdögum nýrrar bæjarstjórnar fer brátt að ljúka og við bæjarbúar bíðum spenntir eftir aðgerðum. Í samtali við Fjarðarpóstinn segir Haraldur L. Haraldsson, nýr bæjarstjóri að vinna eigi á næstu 4­6 mánuðum úttekt á rekstri bæjarins og stjórnkerfinu og þá megi búast við tillögum til endurbóta. Það þýðir að í janúar til mars á næsta ári verði tillögurnar klárar. Hann setur fram athyglisverðar skoðanir á því að hægt sé að bæta fjárhagsstöðu sveitarfélagsins nokkuð hratt án þess að skera niður. Segir hann að hagræðing þurfi ekki að fela í sér niðurskurð. Oft megi gera hlutina á hagkvæmari hátt og jafnvel betur! Guðni Gíslason ritstjóri. leiðarinn Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn Sunnudagurinn 7. september Messa kl. 11 Sr. Jón Helgi, Guðmundur organisti og Barbörukórinn annast stundina. Messunni verður útvarpað Sunnudagaskóli kl. 11 í safnaðarheimilinu í umsjón Önnu Elísu. Öll börn velkomin og eru foreldrar hvattir til að koma með þeim. Uppbyggjandi og skemmtileg stund. Handavinnukvöld kvenfélagsins fimmtudaginn 4. sept kl. 20 www.hafnarfjardarkirkja.is. HAFNARFJARÐARKIRKJA 1914 - 2014 35 ár Stolt að þjóna ykkur Útfararskreytingar kransar, altarisvendir, kistuskreytingar, hjörtu Bæjarhrauni 26 Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 www.blomabudin.is Sunnudagurinn 7. september Sunnudagaskóli kl. 11 Gospelguðsþjónusta kl. 20 Kór kirkjunnar og húsbandið leiða tónlistina. Hressing og samfélag á eftir. Starf barnakórsins á mánudögum kl. 15:00 Starf eldri borgara á miðvikudögum kl. 13:30 Nýr gospelkór fyrir unglinga 13 ára og eldri byrjar föstudaginn 12. sept. kl. 16:30 Hausthátíð Ástjarnarkirkju sunnudaginn 14. september. Fjölbreytt dagskrá, m.a. Ástjarnarkirkjuhlaupið www.astjarnarkirkja.is Sunnudagurinn 7. september Kvöldmessa kl. 20 Kórinn og Fríkirkjubandið sjá um tónlistina. Sunnudagaskóli er alla sunnudaga í kirkjunni kl. 11. Foreldramorgnar eru í safnaðarheimilinu á miðvikudögum kl. 10-12. Krílasálmar - tónlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 3-24 mánaða er í kirkjunni á fimmtudögum frá 10:30 til 11:15. Valgreiðsluseðill er nú aðgengilegur í heimabanka - þökk sé þeim er greiða. Við minnum á bókina okkar, Loksins klukknahljóm. Fæst á www.frikirkja.is, í safnaðarheimilinu, Fjarðarkaupum, Kirkjuhúsinu, Blómabúðinni Burkna og Hár-Ellý á 4.900 kr. www.frikirkja.is Víðistaðakirkja Vetrarstarfið að hefjast Sunnudagur 7. september: Sunnudagaskólinn kl. 11 Mikið gaman! Guðsþjónusta kl. 11 Molasopi á eftir Starfsfólk Víðistaðakirkju www.vidistadakirkja.is

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.