Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 04.09.2014, Blaðsíða 12

Fjarðarpósturinn - 04.09.2014, Blaðsíða 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. september 2014 Garðyrkjufræðingar veita garð eigendum ráðgjöf og taka að sér trjáklippingar og sjá um að fjarlægja afklippur fyrir hóflegt gjald. Trjágróður á lóðarmörkum er víða til vandræða í Hafnarfirði. Húseigendum ber skylda til að tryggja að trjágróður vaxi ekki út fyrir lóðarmörk og út yfir gang­ stéttar eða götur. Víða er trjá­ gróður við gangstéttar og götur til óþæginda en á allt of mörgum er hann hreinlega hættulegur þar sem fólk getur slasast á augum eða þar sem gróður hindrar sýn að umferðarskiltum. Byggingarfulltrúi hefur í einhverjum tilfellum sent íbúum bréf og óskað úrbóta og fékk einn íbúi í Kinnunum slíkt bréf þó hvergi væri gróður á hans lóð til trafala. Hins vegar er ástandið mjög slæmt t.d. í Bröttukinn þar sem gróður nær víða langt út á götu. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hverfur einstefnumerki algjörlega og erfitt er að leggja bílum þar. Hafnarfjarðarbæ er heimilt að klippa tré, sem valda hættu á lóðarmörkum, á kostnað eigenda verði þeir ekki við áskorununum um úrbætur. Mikilvægt er að klippa trjá­ gróður þannig við lóðarmörk að trén vaxi ekki út fyrir lóðarmörk. Því er ekki nóg að klippa við lóðarmörk, heldur þarf í flestum tilfellum að klippa nokkuð inn fyrir lóðarmörk. 30 ára Stofnuð 1983 styrkir barna- og unglingastarf SH Sundstund gefur gull í mund Frístundaheimili Knattspyrnufélagsins Hauka Haukar munu í vetur standa að rekstri frístundaheimilis að Ásvöllum fyrir börn í 1. og 2. bekk grunnskóla kl. 13:00 – 17:00 virka daga. Áhersla verður lögð á aukna hreyfifærni barna, byggða á þroskaþáttum skv. aðalnámskrá grunnskóla, þar sem hver einstaklingur fær tækifæri til að þroska líkamlega- og félagslega hæfileika sína með aðstoð fagmenntaðra einstaklinga. Börnin verða sótt í skólann og komið á Ásvelli. Boðið verður upp á síðdegishressingu. Frístundaheimilið verður opnað mánudaginn 15. september. Mánaðargjald fyrir einstakling er kr. 20.000,- en daggjaldið er kr. 1.200,- Umsóknir skal senda á netfangið erna@haukar.is. Nánari upplýsingar og fyrirspurnir á www.haukar.is, í síma 525 8700 eða á erna@haukar.is, ivar@haukar.is, eða bryndis@haukar.is. © F ja rð ar pó st ur in n 20 14 — L jó sm .: G uð ni G ís la so n Fjarðargötu 13-15 beint á móti Póstinum Sími 555 2056 Opið kl. 9-18 Laugardaga kl. 10-14 Tilboð 4.-11. september • Litun og plokkun – kr. 4.000,- • Vax upp að hné – kr. 3.500,- Íbúar bera ábyrgð á að gróður hindri ekki sýn Tími trjáklippinga nálgast – Ekki láta þinn gróður valda slysi! Hér hverfur merkið „innakstur bannaður“ en sjáið bílinn! Opnum í kvöld! A. Hansen barinn opnar á ný Opið kl. 20-01 virka daga en til kl. 03 um helgar. Trúbador alla fimmtudaga - Kjartan Arnald í kvöld! Tilboð á krana alla fimmtudaga Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.